Dagblað

Ataaseq assigiiaat ilaat

Dagblað - 22.03.1925, Qupperneq 1

Dagblað - 22.03.1925, Qupperneq 1
Sunnudag 22. marz 1925. I. árgangur. 43 tölublað. MISNOTKUN á verðmæti er altaf talin skaðleg, og er í raun og veru undirrót allra meina mannfélagsins. Samt er ekkert eins misnotað og dýrmæt- asta eign hvers einslaklings — jafnvel eina raunverulega eign hans — timinn. Og engin mis- notkun getur haft eins alvarleg- ar afleiðingar og óbætanlegar, eins og misnotkun tímans. Ekkert ætti að vera hverjum einstakling eins ljóst og það, að iiðin stund kemur aldrei aftur. Með hverju augnabliki, sem Jíður, styttist jarðvist vor og sá timi, sem vér eigum yfir að ráða. Fortíðin er liðin og ekki afturkræf, framtíðin er okkur hulin og við höfum ekki vald yfir henni nema að mjög litlu leyti — enn sem komið er —. Það er því að eins hin líðandi stund, sem vér höfum full ráð ;yfir, — augnablikið, sem kemur og fer. Ög það er þessi tími — hver líðandi stund —, sem okk- ur er svo nauðsynlegt að nota "vel og láta verða að sem mestu gagni fyrir okkur sjálf og aðra. Svonefnd »timanleg« og »and- leg« velferð okkar er að mestu leyti komin undir því, hvernig ~vér notum þetta verðmæti, — I hverja liðandi stund. Hugsum okkur þann mismun, sem verða mundi, ef allir legð- ost á eitt um að nota hvert augnablik sem bezt og hag- kvæmast, og hugsa þar mest alþjóðargagn, en ekki eigin hag. Slíkt mundi umbreyta heiminum á örfáum áruml — ^á mundu meiri framfarir verða ^ ári hverju en orðið hafa á °ld hverri áður. f*að þarf enga heimsbyltingu að þetta geti orðið, en auð- Vltað mundi það gera þá breyt- Iö8u, á hinu ríkjandi ástandi, Seitl verða mundi til ómetanlegs ^a80s jafnt fyrir einstakling, Se® alþjóð. — Vinnan er frum- ^Uyrði allrar velmegunar og þess vegna getur það valdið svo mildu, að vinna vel. Altaf getum við fengið okkur eitthvað til að gera, eitthvað sem betur væri gert en ógert látið, eitthvað sem einhver gæti haft gagn af ef gert vseri. Slíkt þarf ekki að vera nein erfiðisvinna og ekki fremur »líkamleg en andleg«, aðeins eftir starfsþoli og hæfileikuin hvers eins. — Feir eru margir, sérstaklega ungir menn, sem ekkert gera, eða jafnvel verra en ekkert mestan hluta dagsins, mestan hluta ársins, og sumir eyða allri æfinni engum til gagns, en mörgum til ógagns. Mundu þeir ekki sofna sælli að kveldi ef þeir vissu að þann daginn hefðu þeir eitthvað gert, sem annað hvort þeim sjálfum, eöa öðrum, gæti að gagni orðið? Og þær ungu stúlkur sem hugsa mest um útlit og tískutild- ur, munu þær búast við að slíkt verði þeim notadrýgst og happasælast, á allri lífsleiðinni? Heilbrigð hugsun kemst ekki að, ef þessu er svarað ját- andi. Sagt er að hver sé sjálfum sér næstur, og það er alment álitið, en það er fyrst og fremst kjör- orð sjálfselskunnar. Og þeir sem einungis hugsa um sjálfa sig og eigin hag, verða aldrei vel liðnir né »langlífir i landinu«. Höfum það altaf hugfast, að liðin stund kemur aldrei aftur og minnumst þess jafnframt, að framtíðarheill vor er fyrst og fremst komin undir því, hvernig vér notum hvert augnablikið sem við eigum yfir að ráða. Það er sú auðlegð, sem á að skapa okkur og öðrum sanna hamingju og batnandi framtíð. Veturliði. Clementina síærsti botnvörpungurinn, sem íslendingar eiga. Hann er smíðaður í Middlesbough Smith Dock árið 1913 og er 453 smál. brutto, en 201 smál. netto. Vélin hefir 700 bestöfl. Lengd skipsins er 162,4 fet, breidd 25,1 fet og dýptin 14,2 fet.

x

Dagblað

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblað
https://timarit.is/publication/605

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.