Dagblað - 03.04.1925, Page 2
2
DAGBLAÐ
en aðrir fornleifafundir þar
syðra og því talið mikils virði
fyrir vísindin til þess að tengja
saman þau brot úr sögu þjóð-
flokkanna þar, sem kunn eru.
Frá kjarstjórnarfiinii.
Bæjarstjórnarfundur var hald-
inn í gærkvöldi, var hann hinn
skemtilegasti og stóð frá kl. 5—
9^/a. Fóru bæjarfulltrúar víða
og héldu engu dauðahaldi í þau
mál sem á dagskrá voru.
Nokkrar hnútur voru sendar
þar á bæði borð, en óskemdir
gengu bæjarfulltrúar frá þeim
leik og skildu sáttir að lokum.
Samþykt voru nokkur bygg-
ingaleyfl, m. a. var Helga Magn-
ússyni & Co. leyft að byggja
verslunar og íbúðarhús við Hafn-
arstræti 19. og Helga Magnús-
syni, einum, leyft að byggja
viðbótarbyggingu við hús sitt í
Bankastræti 6.
Viðurkendir sem húsasmiðir,
voru þessir menn: Jón Sveins-
son Kirkjutorgi, Steingrimur
Guðmundsson Amtmannsstíg 4,
Brynjólfur N. Jónsson Miðstræti
10, Sveinn G. Gíslason Hverfis-
götu 72, Gisli Halldórsson
Hverfisgötu 70 og Sveinbjöm
Kristjánsson Laugaveg 105. enn-
fremur sem múrsmiður Óli Ás-
mundsson Nönnugötu 16. Hafa þá
verið viðurkendir hér 60 húsa-
smiðir og 26 múrsmiðir.
Rætt var um færslu íþrótta-
vallarins og var kosin 3ja manna
nefnd til að íhuga málið í sam-
ráði við stjórn Iþróttasambands
lslands. Voru þeir borgarstjóri,
Björn Ólafsson og Héðinn Valdi-
marsson kosnir í nefndina. Er
táðgert að færa völlinn meðfram
Suðurgötu, og kostnaður við það
áætlaður 29 þús. kr., fyrir utan
væntanlega skúra, og á bærinn
að kosta færsluna.
Töluvert var rætt um hina
nýju bryggju sem bygð hefir
verið fram af austurbakkanum
og nú er nærri fullgerð og kom-
in til afnota. Töldu sumir hana
alt of mjóa, svo að tveir botn-
vörpungar gætu ekki losað við
hana i einu. Borgarsljóri hélt
því fram að bryggjan væri nógu
breið, ef menn aðeins kynnu að
vinna, og væri fuli þorf á að
önnur og betri vinnubrögð væru
viðhöfð við affermingu botn-
vörpunganna en nú eru. —
Einnig kom það fram í umræð-
unum, að höfnin væri þegar
orðin alt of lítil og öll þörf á
meiri hafnarvirkjum vegna auk-
inna siglinga. Annars hélt borgar-
stjóri o. fl. þvi fram, að útgerð-
in hefði vaxið of ört, sérstak-
lega síðasta ár og mundu af-
leiðingar þess koma í ljós áður
en langt um liði og gætu þær
orðið alvarlegri en menn nú al-
ment gerðu sér grein fyrir. Eins
mundi fara fyrir Hafnarfirði og
mundu afleiðingarnar þar verða
enn þá alvarlegri vegna þess,
að alt stendur þar á lausari
grundvelli.
Vítt var sú aðferð sumra út-
gerðarfélaganna, að færa skipin
i annað lögsagnarumdæmi til að
losna hér við eðlilegar álögur
þar sem skipin legðu hér samt
sem áður upp afia sinn og hefðu
alla afgreiðslu.
Nýtt kvikmyndahús hafði
Kjartan Sveinsson sótt um að
mega byggja og starfrækja, og
var því máli visað til bæjarlaga-
nefndar.
Hestamannafélaginu Fák var
leigt Geldinganes ásamt Laugar-
nesgirðingunni og afnotum af
hestaréltinni við Gasstöðina fyrir
1500 kr. á ári. Leigutíminn
eitt ár.
Jónasi Björnssyni i Gufunesi
var bygö jörðin áfram til næstu
þriggja ára fyrir 3,500 kr. af-
gjald og megi hann vinna af sér
1000 kr. af leigunni á hverju ári
með jarðabótum.
Nefnd sú sem falið var að
undirbúa samskotin út af mann-
skaðanum mikla hafði lagt til
að samskotasjóðnum verði fram-
vegis veitt forstaða af 4 mönn-
um, 1 úr bæjarstjórn Reykjavik-
ur, 2. úr bæjarstj. Hafnarfjarðar,
3. frá félagi útgerðarmanna og
4. úr Sjómannafélaginu.
IÐacjBlað.
I Arni Óla.
Ritstjórn: j G Kr Guðttiundsson.
Afgreiðsla 1 Lækjartorg 2.
skrifstofa j Sími 744.
Ritstjórn til viðtals kl. 1—3 síðd.
Prentsmiðjan Gutenberg hf.
Auglýsingaverð: Kr. 1.50 pr. cm.
Blaóverð: 10 aura eint.
Áskriftargjald kr. 1,50 á mánuði.
Lýðveldis-
hetjan.
Sjónleikur í 8 þáttum, eftir
Ilarrlet Itloch.
Aðalhlutverk leika:
Olaf Föiiss,
Philip Bech,
Cajus Brnnn,
Ebba Thomseo,
Thilda Könt-s,
O'la Rastrnp,
Torben Meyer,
Thorlelf Lund o. fl.
Mynd þeSsi er með allra
beztu dönskum myndum,
sem hér hafa sést, bæði
að efni og leik.
Sýning kl. 9.
Borgin.
Sjárnrfðll. Háflæður er kl. 1 i
dag og kl. 1,33 í nótt.
>'8etnrlœkntr er í nótt Konráð
R. Konráðsson, Þingholtsstræti 21.
Simi 575.
Næturvörðnr í Laugavegs Apó-
teki.
Tiðnrfnr. Frost um land alt í
morgun, mest á Austurlandt, 11 st.,
og á Hólsfjöllum 13 st.. Norövestan-
átt á Austurlandi, hrein norðanátt
á Norðurlandi, austlæg átt á Suður-
og Vesturlandi og hvassviðri, storm-
ur og mikil snjókoma i Vestmanna-
eýjum, en annarstaðar hægur.
Útlitið er mjög óstöðugt, austlæg
átt og hvassviðri meö úrkomu
mjög víða.
Aprfl kom”af veiðum í nótf, hafði
um 100 tn. lifrar.