Dagblað

Issue

Dagblað - 17.04.1925, Page 1

Dagblað - 17.04.1925, Page 1
ROMIÐ hefir fram till. í þing- inu um það að fresta veit- ingu ýmsra embætta, ef þau skyldi losna. Hvað sem um tillögu þessa verður, þá er hún þó orð í tíma talað. Ræð- ur þar ekki um Framsóknar-, íhalds- né Sjálfstaeðishugur, því að þetta er fyrsta viðleitnin, sem nú hefir verið reynd lengi, að draga saman og draga úr þeim ógurlega kostnaði, sem embættaskipun veldur. Má jafn- vel segja, að sum embætti, sem þar um ræðir, sé lítt þörf og önnur mætti draga saman. En hvað sem um það er, þá vekur þetta til umhugsunar um hitt, hvort ekki megi fækka að stórum mun embættismönnum | bæjarins. Er það margra manna mál, þeirra er vel til þekkja, að alt of margir fastir starfsmenn sé á vegum bæjarins. Enda sést á bæjarreikningunum, að það er ekkert smáræði, sem fer í allskonar starfsemi. Og þetta eykst og margfaldast ár frá ári. Von er nú, að slíkur kostn- aður fari vaxandi, jafnframt því sem bærinn stækkar. En hitt er mjög mikið efamál, hve nyt- söm eru sum þau embætti, sem hér hafa verið stofnuð á síðari árum. Hér er alt að kafna í skriffinsku og margfaldur kostn- aður við ýrns störf á móts við það, sem vera þyrfti. Mætti sennilega sameina ýmis- leg störf í þágu bæjarins, hon- um að skaðlausu, svo sem inn- heimtustörf o. fl. einnig fella Diður önnur' miður nauðsynleg embætti. Gjaldabyrðin eykst á hverju ári, og nú að stórum Drun, og altaf fjölgar starfsfólki hæjarins. Vænti ég svo góðs til bæjar- ^Dlltrúa og borgarstjóra, að þeir taki mál þelta til rækilegrar yfirvegunar hið allra fyrsta, og nákvæmlega verði athugað hvaft ýms störf, sem bærinn laun^r, eru honum þörf, og hvort það svarar kostnaði að halda þeim við. Aðalniðurjöfnun útsvara í Reykjavík hefir nú farið fram, eins og Dagblaðið gat um í gær. Einni miljón og átta hundruð þúsund krónum nema útsvörin í ár og er það nær þriðjungi meira en árið sem leið. Hér skulu taldir hæztu gjáldendurnir, þar sem upphæðin nemur 5 þús. krónum, eða meira. Hæztir gjaldendur eru hf. Kveldúlfur með 125000 og hf. Alliance með 65000. Þá koma: 40000 hf. ísland. 35000 H. P. Duus og hf. Sleipnir. 30000 Rræðurnir Proppé. 28000 Geir og Th. Thorstein- son. 25000 Geo Copland & Co og hf. Hængur (Baldur). 21000 hf. Defensor. 20000 Jensen Bjerg kaupmað- ur og Lárus G. Lúðvígsson skó- verslun. 18000 hf. Njáll (Hilmir). 16000 hf. Otur. 15000 hf. Hrönn (Geir) og Egill Jacobsen kaupm. 14000 hf. Njörður og Jes Zimsen kaupm. 13000 Haraldur Árnason kaup- maður og frú Kristjana Thor- steinsson. 12000 Jón Björnsson kaupm. og Þ. Sch. Thorsteinsson lyfsali. 10000 hf. Ari Fróði og hf. Draupnir. 9000 Ásgeir Sigurðsson kaupm. 8000 hf. C. Höepfner, O. Johnson & Kaaber og Stefán Thorarensen lyfsali. 7500 Smjörlíkisgerðin hf. og Steindór Einarsson, Ráðagerði. 7000 O. Ellingsen kaupm, Guðm. Jónsson skipstjóri og Mart. Einarsson kaupm. 6000 Jón Þorláksson ráðherra og hf. Völundur. 5500 Brauns verslun og Kol- beinn Sigurðsson skipstjóri. 5000 Smjörlikisgerðin Ásgarð- ur, Hrogn & Lýsi, hf. Hamar, Sjóvátryggingafélag íslands, hf. Kol & Salt, Veiðarfæraversl. Geysir, Thor Jensen kaupm. og skipstjórarnir Guðm. Guðmunds- son frá Nesi, Guðm. Markússon og Karl Guðmundsson. Sjúkrasamlag fieykjavíkur. Á bæjarstjórnarfundi í gær- kvöldi voru til umræðu reikn- ingar Samlagsins. Var það upp- lýst meðal annars: 1. Að tala meðlima er um 2000. 2. Að sjúkrahjálpar hefði notið árið sem leið 125. 3. Meðul voru keypt á árinu fyrir um 15 þús. kr. 4. Til læknishjálpar var varið 32 þús. kr. Ýmsum fulltrúum þóttu upp- hæðir þessar geypiháar. Þannig hafði einn læknirinn fengið nær 6 þús. kr. fyrir læknisaðstoð. Var álitið, að fyrirkomulaginu þyrfti að breyta, og vilda sumir að ráðinn yrði fastur læknir fyrir Samlagið. Kvað borgar- stjóri þetta hafa verið í ráði fyr, en sætt mótmælum af hálfu Iækna. Ekki kannaðist Gunnl. Claessen við, að slík mótmæli hefðu fram komið. Urðu þeir, sem töluðu, á eitt sáttir um það, að sennilega hefði mátt komast af með minna en 47 þús. kr., eða 300 kr. á hvern sjúkling til meðala og læknis- hjálpar.

x

Dagblað

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblað
https://timarit.is/publication/605

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.