Dagblað

Eksemplar

Dagblað - 21.04.1925, Side 1

Dagblað - 21.04.1925, Side 1
Þriðjudag 21. apríl 1925. I. árgangur. 66. tölublað. HÉR í bænum eru til margs- konar félög og stofnuð í margskonar tilgangi. En undarlegt er það, að enginn skuli sá vera félagsskapur hér, er hafi það á stefnuskrá sinni, að hafa hönd í bagga með því, hvernig bænum er stjórnað og hvernig fjárreiður hans eru. Menn vita þó, að árlega eykst gjaldabyrði borgarbúa og að svo er komið, að óvíða í heimi mun vera jafn dýrt að lifa og hér í höfuðborg tslands. Af hverju stafar þetta? Um það hafa fæstir Jjósa hug- mynd, og ekki einu sinni bæj- arfulltrúarnir, sem ætti þó að vera kunnugri hag bæjarins en allur almenningur. Eins og haldið hefir verið | fram hér í blaðinu, er það ekki nema eðlilegt, að gjöld bæjarins hækki jafnframt því að hann stækkar. En þótt bærinn hafi tnikið stækkað nú á síðari ár- nm og íbúum fjölgað, hefir hækkun gjaldanna orðið hrað- stigari og almenn óánægja átt sér stað út af þvi. Kemur það jafnan bezt í ljós, þá er niður- jöfnun aukaútsvara birtist. Hjá þingi og stjórn er nú uppi sú stefna, að fara mjög gætilega i fjármálum og að reyna að greiða lausaskuldir ríkissjóðs sem allra fyrst. Þessi sama stefna í fjármálum er og uppi í ttágrannalöndum vorum, eigi að- eins hjá stjórnum þeirra, heldur og hjá bæjarstjórnum. Það eru afleiðingar og eftirköst ófriðar- ins, sem eru þess valdandi. Menn eru farnir að sjá að sér. þessa stefnu þyrfti Reykja- víkurbær að taka upp, og hygg ág, að bezta ráðið til þess að svo verði gert, sé það, að borg- Srar stofni með sér félagsskap i þeim tilgangi, að hafa áhrif á stjórn bæjarins og hönd i bagga úm það, hve mikið hann leggur i kostnað árlega. Menn mega v*ta það, að alt það fé, sem ^ærinn kemst yfir og hefir und- h höndum, er eign bæjarmanna, og getur. varla talist einhlítt, að bæjarstjórn ráðstafi því eftirlits- laust og leiðbeiningarlaust. Slíkur félagsskapur og hér er stungið upp á, á alls ekki að vera settur til höfuðs bæjar- stjórn, heldur á hann miklu fremur að vera ráðgjafi hennar og gæti þar unnið mikið og þarft verk, því að svo er nú jafnan, að betur sjá augu en auga. Er það í raun og veru merkilegt, að slíkur félagsskap- ur skuli ekki hafa komist á laggirnar fyrir löngu, þar sem vitanlegt er, að bæjarmálum er oft og einatt ráðið til lykta án þess að borgarar hafi kynst þeim, eða að þau hafi verið rædd annars staðar en á bæjar- stjórnarfundum. Félagið á og að geta unnið mikið og þarft verk sem samherji bæjarstjórnar um öll nýmæli, og ætti að geta orðið boðberi nýrrar stefnu og framfara á ýmsum sviðurn. Verkefni þess er því ærið, og stefnir eingöngu að því, að auka heill bæjarfélagsins í hvívetna. Er slíkt fagur tilgangur, og því hverjum manni sómi að því, að styðja slíkan félagsskap. Húsaleigulögin. Þá er nú loks komið svo langt, að tilraun er gerð um það að afnema hin illræmdu húsaleigu- lög hér í Reykjavfk. í*rfr þing- menn í Nd., þeir Magnús Jóns- son, Jakob Möller og Bjarni Jónsson frá Vogi, bera fram frv. um það, og segir svo í greinar- gerð þeirra: »Húsaleigulögin 1917 voru án efa ætluð aðeins sem bráða- birgðaráðstöfun út af ófriðar- ástandi því, sem þá var. Var hægt að sætta sig við svo frek- lega skerðingu á umráðarétti húseigenda yfir eign sinni, með- an svo var ástatt ... 1921 voru sett lög er heimiluðu bæjarstjórn Reykjavíkur að setja reglugerð um þetta efni og áttu þá húsa- leigulögin að falla úr gildi. Nú er alveg útséð um, að bæjar- stjórn Reykjavíkur takist að setja slíka reglugerð . . . og húsaleigulögin eru að talsverðu leyti orðin dauður bókstafur, eins og hætt er við, að jafnan fari um slík lög, þegar þau fara að standa til lengdar án þess að menn kannist við réttmæti þeirra«. Hafi þingmenn þessir þökk fyrir að bera fram frv. þetta. Síídveiði á Skagafirði. Með lögum nr. 30, 20. júní 1923, var sýslunefnd Skagafjarð- arsýslu heimilað að gera sam- þykt um síldveiði með herpi- nót á Skagafirði innan línu frá syðri enda Þórðarhöfða til norð- urenda Drangeyjar og þaðan í sömu stefnu á Skaga. Hefir sýslunefnd notfært sér þessi lög og bannað alla síldveiði með herpinót innan þessa svæðis, þar sem síldveiði hefir oft og tíðum reynzt einna notadrýgst, sérstaklega þá er norðanátt er. Nú bera 8 þingmenn í Nd. fram frv. um það, að lög þessi verði afnumin og bera því við, að ekki sé hægt að færa nokk- ur sæmileg rök fyrir því, að Skagfirðingum sé nauðsynlegt að fá þenna hluta fjarðarins friðaðan, en á hinn bóginn um svo mikið fjárhagstjón að ræða fyrir sildveiðamenn og rfkissjóð að engin sanngirni sé í þvi að samþykt sýslunefndar nái að standa.

x

Dagblað

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblað
https://timarit.is/publication/605

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.