Dagblað

Eksemplar

Dagblað - 25.04.1925, Side 1

Dagblað - 25.04.1925, Side 1
Föstudag Ý Æ íiiL kDaghlao I. árgangur. 69. tölublað. EINS og menn vita þarf að reisa hér háskóla og stú- dentagarð og jafnvel fleiri opinberar byggingar. Eðlilegast hefði verið, að allar opinberar hyggingar hefði verið í Miðbæn- um, umhverfls Austurvöll, en nú er víst ekki því að heilsa að það sé hægt. Eins og Dagblaðið hefir drepið á, verða háskóli og stú- dentagarður að vera mjög nærri hver öðrum og helzt á sömu lóð. En síðan eg talaði um þetta ftiál og hvar þessar byggingar *tti að vera, hafa ýmsir bent tnér á, að sá staður, sem þar var bent á, væri ekki heppileg- nr vegoa þess, að hann væri alt of nærri höfninni og skark- ali og hávaði þaðan mundi valda ■truflun. þetta getur vel verið fétt, en þá er Skólavörðuholtið lítið betur til þ ess fallið að þessar byggingar sé reistar þar. Þess vegna hefir mér dottið í hug að minnast á nýjan stað, sem væri tilvalinn fyrir háskóla og stúdentagaið. Það eru túnin hér sunnan við Tjörnina. Það mun ákveðið, að vegur Verði ger hringinn í kring um Tjörnina og sú hugmynd hefir lengi verið á prjónunum, að svinnan við Tjörnina yrði gerð- Ur skemtigarður í framtíðinni. ^etta tvent mælir með þvi, að þessar byggingar verði þarna reistar og enn fremur er þarna viðkunnanlegur staður og hæfi- Iega út úr. Þar getur bæjarskark- alinn tæplega valdið neinni truflun, þar er fagurt eftir því sem hér gerist og líkara þvi sem maður væri kominn upp í sveit heldur en í borg. Og fram- hðarskipulag það, sem menn hafa hugsað sér um Reykjavik, ^ alls eigi að geta orðið því til fyirstöðu, að þarna megi þess- ar ^yggingar vera. Svo er enn eitt. Ef nokkurn |íma á að verða úr því, að bær- Jnn eignist skemtigarð sunnan Tjarnarinnar (og þar á slíkur garður að vera, verði honum komið upp á annað borð), þá eru stúdentar sjálfsagðir umsjón- armenn og fóstrar þess garðs og mundu telja það borgaralega skyldu sína, þar sem bústaður þeirra yrði mörgum sinnum meir aðlaðandi og vistlegri, ef slíkur garður væri rétt þar hjá. Pað er alveg rélt, að um- hverfi hefir mikil áhrif á skap- ferli manna og tilhneigingar. Og fyrir námsmenn er það mjög þýðingarmikið að þeir sé eigi neyddir til þess að vera innan- um ys og þys dags daglega. Pessi staður er því útmetinn að þessu leyti og væri bezt að þarna þyrfti ekki að reisa neinar bygg- ingar aðrar en þessar tvær og hafa svo garðinn umhverfis. Fyrir svip Reykjavíkurbæjar yrði þetta og til mikillar prýði, því að sjálfsögðu verður vandað sem mest bæði til háskóla og stúdentagarðs, að hið ytra útlit þeirra verði sem ásjálegast. Yrði það þá án efa mörgum manni augnayndi, að horfa suður yfir Tjörnina með slíkar byggingar í baksýn og sem baktjald hin fögru fjöll í suðurátt. Og verði svo, sem menn vænta, að veg- urinn umhverfis Tjörnina verði aðalskemtigönguvegur bæjarins, þá er hann enn skemtilegri ef þessi hús eru sett þarna, bæði fyrir þá, sem heima eiga í Stú- dentagarðinum (því að umferð gerir tilbreytingu) og eins fyrir hina, sem ganga þenna veg sér til skemtunar. Mælir því flest eða alt með því að þessi staður sé valinn. Hið eina, sem mælt gæti á móti væri máske það, að of langt sé þangað fyrir kennara og nemendur sem heima eiga úti í bæ, en sú ástæða er mjög léttvæg. Vona ég að menn taki þessa hugmynd til rækilegrar yfirveg- unar. Ping'tíðindi. Eleppur og landspítali. í þingsályktunartillögu eftir síðari umræðu i Ed., segir svo: Alþingi ályktar að skora á ríkisstjórnina að leggja fram fé úr ríkissjóði til að stækka geð- véikrahælið á Kleppi og til byggingar landspítala, og skal því fjárframlagi hagað svo, sem hér segir: 1. Árið 1926 veitist stjórninni heimild til að verja úr ríkis- sjóði alt að 100 þús. kr. til hyggingar á Kleppi, þannig, að bygð sé ein bæð ofan á þann kjallara, sem þegar er fullgerður. Ringið væntirþess, að byggingunni verði svo haldið áfram og henni lokið í árslok 1927. 2. Árið 1926 veitist stjórninni heimild til að verja alt að 100 þús. kr. úr rikissjóði til bygg- ingar landspitala, gegn jafn- miklu framlagi úr landspítala- sjóðnum, enda hafi árið 1925 verið varið tii hennar að minsta kosti 100 þús kr. úr þeim sjóði. Þingið gerir ráð fyrir, að þessu verki verði bagað samkvæmt síðari spí- talateiknun húsameistara rík- isins, með þeirri breytingu, er síðar kynni að þykja nauðsynleg og framkvæman- leg án verulegs viðbótar- kostnaðar. Enn fremur ætl- ast þingið til þess, að verk- inu verði haldið áfram á næstu árum, og byggingunni lokið í árslok 1929, ef ekki ófyrirsjáanleg fjárhagsvand- ræði ríkisins gera ókleift að halda henni áfram. Þingið ætlast til, að land- stjórnin geri samning við bæjar- stjórn Reykjavíkur um að fá vatn úr Laugunum endurgjalds- laust til að hita spitalann, gegn því, að landið greiði hlutfalls- lega kostnað við leiðsluna heim til bæjarins.

x

Dagblað

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblað
https://timarit.is/publication/605

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.