Dagblað

Eksemplar

Dagblað - 05.05.1925, Side 1

Dagblað - 05.05.1925, Side 1
Priðjudag 5. maí 1925. I. árgangur. 77. tölublað. VIÐSKIFTALÍF þjóðarinnar er að mestu leyti komið undir framtaki einstaklings- ins í skjóli frjálsra laga og skipulagsbundinnar mentunar. Þetta verður sérhver að hafa hugfast þegar um framþróun á viðskiftasvæðinu er að ræða. Þegar plægja skal akur, veld- ur miklu um verklagið, hver plógnum stýrir. En engu síður er hitt mikils um vert: að plóg- urinn sé gott og lipurt verkfæri. Þannig er því varið með við- skiftalífs-akurinn og þá sem eiga að plægja hann og rækta. Til þess að honum sé sannur sómi sýndur, þarf ötula og vel mentaða menn sem gera skyldu sina í hvívetna. En um leið þarf öflug viðskiftatæki, sem fyllilega eru við hæfi þjóðar- innar og fullnægja kröfum tím- ans. Á ég þar ekki eingöngu við góðar samgöngur á sjó og landi, svo beztu verslunarleiðir standi okkur opnar og geri þjóðina saöikepnisfæra, að svo miklu leyti sem efni standa til. Hitt er jafnnauðsynlegt, að landstjórn °g löggjafar búi svo í haginn fyrir einstaklingana, að þeir fái notið sín til fullnustu, og hafi óbundnar hendur til frjálsra viðskifta á öllum svæðum. »Frjáls verslun« eru kjörorð flestra hugsandi manna nú á tím- um, og er með þeim orðum átt við að öllum eigi að vera opin leið til að reka verslun og að engar verslunarhömlur sé lagðar á þá sem starfa á viðskiftasvæð- inu. Er mönnum þá frjálst að gerast milliliðir og láta flytja til landsins allar alengar verslunar- vörur og út allar innlendar og selja þær á frjálsum markaði. Hér á landi hafa ýmislegar itömlur verið lagðar á viðskifta- i seinni tíð, vegna peninga- ^rePpu þeirrar sem ófriðurinn mikli hafði í för með sér. Síðasj var bannaður innflutn- ln8Ur á óþörfum varningi með reglugerð 7. maí 1924, en hún er nú upphafin frá 1. júní næst- komandi, samkvæmt auglýsingu atv.- og samg.málaráðuneytisins 2. maí siðastl. Hefir reynzlan sýnt, að erfitt er að framfylgja slíkum lögum svo enginn verði fyrir misrétti, auk þess sem þau virðast óþörf, eins og högum okkar er nú komið, og hafa að líkindum verið óþörf frá upphafi vega sinna. Er nú sem af létti þungu oki hjá þeim sem slíkan varning hafa flutt inn, og er nú hættan þessi: Að þegar styflan verður tekin úr, flói yfir landið of mikið af allskonar vörurusli í skjóli þess sem nauðsynlegra er og að upp-: i rísi fleiri milliliðir en góðu hófi gegnir til þess að dreifa því um landið. Að vísu eruþað bankarnir sem eiga að vera lífverðir þjóðar- innar á viðskiftasvæðinu, um leið og þeir samkvæmt eðli sínu eiga að greiða fyrir nauð- synlegum viðskiftum, og munu þeir gera sitt til að menn flytji ekki of mikið inn af algerðum óþarfa. Frjáls verslun er nauðsynleg en írelsið er tvíeggjað sverð, og veldur miklu um hver á því heldur. Pað eru reglubundnar sam- göngur þar sem ekki þarf neina skrifaða eða prentaða áætlun fyrir hverja ferð. Ferðirnar eru allar hver annari líkar, fardag- urinn einlægt sami vikudagur- inn eða mánaðardagurinn frá hverjum viðkomustað. Gott skipulag er aldrei á sam- göngum, fyr en þær eru orðnar reglulegar, því að þá fyrst verða þær að föstum lið í þjóðfélags- lifinu. Þetta hafa íslendingar aldrei getað skilið, og þess vegna kann að vera einhver áhætta fyrst í stað að setja þetta fyrirkomu- lag á. En allir útlendingar skilja þetta, jafnvel þótt Norðmenn sé þeir einu, sem í hérlendum sam- göngum hafa þorað að taka þá áhættu, sem einlægt fylgir því að brjóta ísinn. En einmitt fyrir þetta áræði geta þeir einn góð- an veðurdag verið orðnir svo sterkir, að oss verði erfitt að keppa við þá. Hvort sem nú er kominn tími til þess eða ekki, að gera aðal- kjarnann í samgöngunum inn- anlands og við útlönd reglu- bundinn, þá er enginn efi á þvf, að það er kominn tími til þess að taka málið alvarlega til með- ferðar. Á öllum brautum framfaranna berjast tvær stefnur. Hin fyrri er þessi — — að laga allar endurbætur eftir staðháttunum eins og þeir eru. Hin sfðari er — — að laga sjálfa staðhættina eftir endurbættu vinnulagi og endurbættum áhöldum. Báðar þessar stefnur verður að athuga vel, hverskonar fram- farir sem um er að ræða. Fyrri stefnan liggur einlægt nær, og hún er venjulega áhættulitil. Hin síðari er byltingarkend, getur lamað alt, ef hún kemur of snemma, en er afarstórvirk, ef hún er tímabær. Fyrri stefnan leggur t. d. stund á að finna upp endur- bætta ljái og sláttuvélar til að slá í þýfi, en kemst skamt í því, sem vænta má. Hin síðari sléttir völlinn og lagar hann þannig fyrir nýtízku áburðar-, sláttu- og rakstrarvélar, og er það þá því aðeins tímabært, að menn hafi áður lært að koma fljótlega gróðri í hinn nýja völl. Fyrri stefnan reynir að haga samgöngunum svo, að gera sam- band milli sem flestra bæja, I

x

Dagblað

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblað
https://timarit.is/publication/605

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.