Dagblað

Tölublað

Dagblað - 10.05.1925, Blaðsíða 1

Dagblað - 10.05.1925, Blaðsíða 1
Sunnudag fljp fT Jft /. árgangur. lO.maí 8á 1925. ft# yrOT'Íf tólublað. Stúlkan í selinu. Mynd sú sem nú er sýnd í Nýja Bío, er þjóðleikur í sex þátt- um eftir sænskan mann, Henning Ohlsen og lý>ir lilinu á sænsku bændasetri, þar sem tveir synir eru á vaxtarskeiði og fuílir fjörs og gáska. Óðalsblóð rennur í æðum þeirra, en annar verður stnlku að gæfutjóni — í bili, en hún er söguhetjan sem hér sést myndin af: Birgit, sem Jessíe Wessel leikur snildar vel. — þarna sést hin »Söguríka Svíabygð« í tign sinni og synir hennar og dætur, sem búa við misjöfn kjör og heyja baráttu við lund sína og ástríður. í*essi mynd er fróðleg og falleg og hafa allir gott af að sjá hana. EITT af aðaleinkennum núver- andi þjóðlifs vors er deyfð- in og sinnuleysið um ýms málefni, sem miklu gæti valdið til betra viðhorfs um ýmsar nauðsynlegar framkvæmdir. Hver sem lítur yfir heildar- svipinn á þjóðlifinu, mun fljótt komast að þeirri niðurstöðu, að svipleysi meðalmenskunnár sé það, sem mest ber á. Svipbrigði sérstakra eiginda eru engum auðsæ, nema ef telja skyldi afskræmis-yfirbragð ýmsra öfgakenninga. Og einnig ber mikið á þykkjusvip persónu- Jegra skamma, um sum þau at- riði, sem sízt ætti að valda deilum. Annars er drunginn og lognmókið það, sem skapar \ heildarsvipinn á mönnum og málum. Einna augljósast kemur þetta fram í þögninni og afskiftaleys- inu um ýmsar umbótatiliögur, sem komið hafa fram á síðustu árum og birzt hafa í ræðum og ritum ýmsra mætra manna. Sumar þær tillögur hafa áttbetra hlutskifti skilið, en hljóðleikann og afskiftaleysið, sem lykst hefir um þær strax eftir lestur og lyrstu umhugsun. Mörg nýmæli og umbótatil- lögur, sem komið hafa fram á síðustu árum, hefðu átt að geta valdið miklu meiri umræðum en orðið befir, og hlotið óskift- an áhuga allra þeirra, sem hafa önnur og meiri áhugamál en órofinn svefn og fullan maga. Mun nú verða vikið að sum- um þeirra hér í Dagbl., en í þetta sinn aðeins að einu mesta nauðsynjamálinu, sem cetti að vera efst á dagskrá þjóðmál- anna. — Guðm. Hannesson prófessor skrifaði grein í Eimreiðina 1922, sem hann nefnir: Hvernig getum uér bggt landið upp á 25 árum? Sú grein er ein af þeim merki- legustu, sem birzt hafa um það mál. Er þar bæði sýnt fram á öauðsyn framkvæmdarinnar og bent á úrræði til að koma henni fram. Húsnæðismálin eru efst á dag- skrá hjá flestum þjóðum, nema okkur. Mun þó óvíða vera brýnni þörf á bættu skipulagi og skjótam framkvæmdum í því máli en einmitt hjá okkur. Menningarstig hverrar þjóðar sést einna fyrst og augljósast á því hverjar kröfur hún gerir til hýbýlaskipunar sinnar. Stýll og ástand bygginga lýsir betur menningarstigi þjóðarinnar, en Iangur lestur fræðirita. Sú þjóð, sem vill ekki láta telja sig til »skrælingja« verður að gela sýnt betri heildarsvip af hýbýlum sínum en við get- um enn þá gert, meðan það skipulagsleysi og kumbaldahátt- ur er ríkjandi, sem við eigum nú að búa við. Hér í höfuðstaðnum er ekki hvað slzt þörf á að hafist sé handa, þvi að hér er skipnlags- leysið og kotungsbragurinn einna mest áberandi. Er ilt að svo- nefnd höfuðborg landsins skuli ekki vera skipulegar bygð en út- kjálka fiskiþorp né meira sam- ræmi í byggingunum. Húsnæðismálið er, eins og áður er vikið að, eitthvert mesta menningarmál vort, og því er ekki brýnni þörf á öðru, en að það sé rætt sem bezt og vandlegast af þeim mönnum sem haldbesta þekkingu hafa á þvi sviði. Má þeim umræðum ekki linna fyr en viðunanleg úr- lausn er fengin og málið komið á þann rekspöl, að ugglaust sé um nauðsynlegar framkvæmdir. -m. -n.

x

Dagblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblað
https://timarit.is/publication/605

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.