Dagblað - 15.05.1925, Síða 2
2
DAGBLAÐ
Frá í dag til laugardags 16. þ. m.
verða seld fataeíni með mifelum afslætti
og TAUBÚTAR meðan endast. Notið
tæhifærið og fáið yfefeur ódýrt í fót —
hæði á yngri og eldri.
Afqr. Álatoss.
Sími 404.
Hafnarstr. 17.
og um rekstur bíla er fullnægi
flutningsþörfinni á líkan hátt og
járnbraut ætti að gera. Við það
reiknast honum að tekjuhallinn
verði á 2. rekstrarári 104 þús.
kr. minni en á járnbrautarrekstri,
eða 303 þús. kr. i stað 407 þús.
kr. og á 10. ári 79 þús. kr.
minni, eða 113 þús. kr. í stað
192 þús. kr.
Útkoman sýnist þá vera þessi,
sem sakir standa, að nokkur
bið hljóti að verða á hvoru-
tveggja. En hvað sem því líður
segir vegamálastjóri að starfað
verði að því næstu árin að bæta
svo veginn austur, að unt verði
að nota á honum stærri bíla.
Vöruflutningur á bílum sem bera
eitt tonn er nú 2 kr. á kílóm.
og er það afardýrt. í Noregi
segir hann verið komið niður í
51 eyri á tonnkílómeter, þar sem
notaðir eru 2 tonna bílar með
2 tonna aukavagni aftan í og
gott skipulag er á flutningnum
að öðru leyti. Verði fenginn
sterkur bílplógur til að moka
veginn á vetrum, þá megi um
hríð una við ástand það sem
nú er.
Ping-tíðindi.
Samþ. stjórnarfrumvörp.
Um stofnun dócentsembættis
við heimspekisdeild Háskóla ís-
lands.
Um samþykt á landsreikning-
um 1923.
Frv. til fjáraukalaga fyrir ár-
ið 1923.
Um breyting á lögum nr. 91,
um aðflutningsbann á átengi.
Um vatnsorkuleyfi.
Samþ. þingmannafrumvörp.
Um breyting á lögum nr. 51,
27. júní 1921, um lífeyrissjóð
embættismanna og ekkna þeirra.
Um slysatryggingar.
Um afnám laga nr. 30, 20.
júní 1923, um breyting á lögum
nr. 56, 10. nóv. 1913, um herpi-
nótaveiði.
Um innheimtu gjalda af er-
lendum fiskiskipum.
Um framlenging á gildi laga
nr 48, 4. júní 1924, um gengis-
skráning og gjaldeyrisvérslun,
og breyting á þeim iögum.
Felt þingm.frv.
Um breyting á lögum nr. 62, 4
27. júní 1921, um einkasölu á
áfengi.
Afgr. þingm.írv.
með rökstuddri dagskrá.
Um samþyktir um laxa- og
silunguklak í ám og vötnum, og
takmörkun á ádráttarveiði.
Fingm.frv. vísað til stjórnar-
innar.
Um aðflutuingsbann á heyi.
Samþ. þingsál.tillögur.
Um endurskoðun laga um
skipströnd.
Um að skora á stjórnina að
halda uppi landhelgisgæzlu fyrir
Austurlandi.
Pingsál.till. vísað til stjórnar-
innar.
Um brúargerð á Hvítá í Borg-
arfirði.
Svarað fyrirspurn
til ríkisstjórnarinnar um útsölu
á Spánarvínum í Vestm.eyjum.
Svarað af dóms- og kirkjumála-
ráðherra 8/s.
Feld tillaga
um að vísa máli til stjórnarinnar.
Um frv. til laga um slysa-
tryggingar. (Sv. Ól.).
Listasafn Einars Jónssonar verð-
ur opið endurgjaldslaust sunnu-
daginn 17. maí, og fyrst um sinn
verður aðgangur ókeypis, fyrsta
sunnudag i hverjum mánuði.
^DagBlað.
Ritstjórn:
Arni Óla.
G. Kr. Guðmundssom
Afgrdðsla Lækjartorg 2.
skrifstofa Sími 744.
Ritstjórn til viðtals kl. 1—3 síðd.
Prentsmiðjan Gutenberg hf.
Auglýsingaverð: Iír. 1.50 pr. cm.
Blaðverð: 10 aura eint.
Áskriftargjald kr. 1,50 á mánuði.
Stólkan í
selinu
sýnd í kvöld kl. 9.
Aðgöngumiðar seldir frá
kl. 5.
Borgin.
Sjávarföll. Síðdegisháílæður eru,
kl. 11,53 í kvöld.
Nætnrlæknlr í nótt er Ólafur Por-
steinsson, Skólabrú 2. Sími 181.
Nætnrvörðnr er i Laugavegs-
Apóteki.
Uotnvörpnngarnir. Draupnir kom
af veiðum í gær með 80 tn. lifrar.
í nótt komu Maí með 103 tn., Pór-
ólfur með 118 tn., Skallagrímur með
121 tn. og Skúli fógeti með 85 tn.
Kári Sölmundarson kom inn til
Viðeyjar með 108 tn. lifrar.
Gullfoss fer á morgun kl. 4 síðd.
Er förinni frestað vegna þingmanna.
Þingslit verða sennilega á morgun.
Kanpendnr Dagblaðsins, sem hafa
flutt búferlum eru beðnir að til-
kynna pað á skrifátofu blaðsins.
Mb. Svannr er væntanlegur hing-
að á sunnudag frá Breiðafirði. fer
aflur á priðjudag.
/
Húsnæðisvandræði eru hér nú
töluverð, jafnvei meiri en við var
búist. Hefir verið ráðgert að taka
'\
\