Dagblað - 26.05.1925, Blaðsíða 2
2
DAGB LAÐ
TDagBlaé.
Arni Óla.
Ritstjórn: q Kr Guömundssoa
Afgr0e'ðsla Lækjartorg 2.
skrifstofa . Sími 744.
Ritstjórn til viðtals kl. 1—3 síðd.
Prentsmiðjan Gutenberg hf.
Auglýsingaverð: Xr. 1.50 pr. cm.
Blaðverð: 10 aura eint.
Áskriftargjald kr. 1,50 á mánuði.
margar útsölur væri hér á
landi.
Forsætisráðherra sagði að það
stæði ekkert í samningnum um
þetta atriði, en fyrverandi stjórn,
sem hefði tekið ákvörðun um
þetta atriði, hefði eigi litist það
nægilegt, að hafa að eins út-
sölu í Reykjavík og hefði hún
þar farið eftir ráðleggingum
hinna kunnugustu manna í því
efni, svo sem samningsmann-
anna íslenzku. En stjórninni
hefði fundist, að þá yrði ekki
farið skemra en að hafa útsölu
í hverjum kaupstað. Játaði hann
að það mundi óheppilegt að
hafa slikar útsölur í Siglufirði
um sildveiðitímann og í Vest-
mannaeyjum um vertíðina og
sjálfsagt að gera eitthvað, ef
hægt væri, til þess að takmarka
ofnautn drykkjanna.
Ingvar Pálsson vítti stjórnina
fyrir það, að hafa fleiri en eina
útsölu, en úr því sem komið
væri, þá væri það brot á Spán-
arsamningnum ef farið væri að
hefta sölu vinanna á þessum
stöðum á nokkurn hátt.
Sigurður Eggerz bar sig upp
undan þvf, að hann hefði orðið
fyrir aðkasti og ofsóknum bann-
manna út af þessu máli og
byggi við þær ofsóknir enn, en
kvað það mundi verða þeim til
lítillar gæfu, að ofsækja sína
beztu menn.
Bæjarstjóri Akureyrar
Kosning bæjarstjóra fyrir
Akureyrarbæ fór svo, að Jón
Sveinsson var endurkosinn með
6 atkv. — Jón Steingrimsson,
bæjarfógeta Jónssonar, fékk 5
atkv. Feiri höfðu ekki sðtt um
stöðuna. .
NYJA BIO
Heimssýningin mikla
í Wembley
(The British Empire Exhibition).
Pathé-kvikmynd í 6 þáttum.
Aldrei hefir nein sýning vakið eins mikla eftirtekt og
Wembley-sýningin mikla í London, þar sem beztu hugvits-
menn hins mikla Bretaveldis hafa í sameiningu unnið að
því, að framleiða sýnishorn af öllu því markverða, sem finst
i brezkum löndum. En þarna sér maður ekki eingöngu hve
framleiðsla á ýmsum vörum er komin á hátt stig, heldur
getur hér að lita sýnishorn af öllu því innan Bretaveldis, sem
hefir menningarlega þýðingu, Miljónir manna hafa flykst að
Wembley og miljónir munu fara þangað í sumar. Hafa fáir
hér tök á þvf, en sú bót er í máli, að hin stórfróðlega og vel
tekna kvikmynd Pathé-félagsins góðkunna veitir mönnum
tækifæri á að sjá hið marga og merkilega, sem sýnt er í
Wembley. Myndin hefir hvarvetna hlotið mikið lof og vakið
geysi eftirtekt, og mun hið sama verða upp á teningnum hér.
Sýnd í kvölð kl. 9.
Aðgöngumiða má panta í síma frá kl. 1 í dag.
Borgin.
Sjávarföll. Síðdegisháflæður er
kl. 7,45 í dag. Árdegisháflæður kl.
8,5 í fyrramálið.
Næturlæknir. Jón Kristjánsson
Miðstræti 3 A. Sími 686.
Næturyörður í Laugavegs Apóteki.
Tíðarfar. Hiti um alt land í morg-
un 5—9 stig, br’eytileg átt, vlðast
hægviðri nema austanrok í Vest-
mannaeyjum.
Björgunarskipið I’ór fór héðan í
gærdag.
Bátaflski er nú talsvert hér i fló-
anum. Bátur reri af Kjalarnesi fyrir
helgina og fékk 50 fiska i hlut »á
bert« skamt undan landi.
Austri kom af veiðum til Viðeyjar
í fyrradag með 101 tn. lifrar. Kári
Sölmundarson kom pangað í gær
með 82 tn.
Laudhelgismál. Haustið 1923 kærði
varðbáturinn Trausti botuvörpung-
inn Kára Sölmundarson fyrir að
hafa verið að veiðum innau land-
helgi á Hafnaleir. Heflr petta mál
staðið í pjarki síðan og var fram-
burður varðbátsmanna á ýmsa vegu.
Hins vegar gat skipstjórinn á Kára
Söimundarsyni sannað að hann hefði
verið á alt öðrum stað en Hafna-
leir um pað leyti. Dómur er nýlega
uppkveðinn í málinu og var skip-
stjórinn á Kára Sölmundarsyni ai-
gerlega sýknaður.
Vélskipið Marian á nú að selja
til lúkningar sektar skipstjórans að
upphæð 1000 kr. Siðasta uppboðið
á að fara fram 20 júní.
Botnvörpangarnir. Pessi skip hafa
komið af veiðum nú um helgina:
Jón forseti 64 tn., Menja 74 tn.,
Gulltoppur 113 tn., Glaður 75 tn. og
Draupnir með 85 tn. lifrar.
Royndin hafði aflað 140 tonn fiskj-
ar í síðustu veiðiför sinni en ekki
120 tonn eins og áður var sagt.
Næst áður hafði skipið 115 tonn.
títflutningnr islenzkra afurða nam
í april kr. 3.523.895, en fyrstu fjóra
mánuði ársins heflr hann numið
samtals kr. 18.350.000.
Heðal farpega með íslandi síðast
voru auk peirra sem áður voru
taldir Sig. Eggerz og frú, Jón A.
Egilson bókari, frú Póra Behrens
með börn, til sumardvalar í Dan-
mörku.
Jarðarför Katrinar Jóhannesdóttur
fer fram í dag.
Kem, aukaskip Bergenskafélagsins
kom hingaö í gær.