Dagblað

Eksemplar

Dagblað - 05.06.1925, Side 1

Dagblað - 05.06.1925, Side 1
Föstudag 5. júní 1925. I. árgangur. 102. iölublað. NDARLEGT má það kalla, að svo virðist sem tveir aðalatvinnuvegir landsins, landbúnaður og sjávarútvegur, geri hvað þeir geta til þess að níða hver annan niður, eða þeir menn, sem fremstir þykjast í hvorum flokki. En þeir, sem ala á illindum milli þessara at- vinnuvega, eru sannkallaðir vargar í véum, því að atvinnu- vegirnir verða að haldast í hend- ur, til þess að vel fari. Gamall málsháttur segir: »bóndi er bústólpi, bú er land- stólpi«, og frá því ísland bygð- ist hefir þjóðin aðallega lifað á landbúnaði. Nú á seinni árum hefir orðið breyting á þessu, þar sem eru hinar stórfeldu framfarir sjávarútvegsins. Þeim inönnum sem að þeim framför- um hafa unnið, ber að þakka vel, en eigi má það þó gleym- ast, að sá atvinnurekstur er hið mesta áhættuspil. Og á hvað verður að treysta, ef illa skyldi fara um hann? Ekki annað en landbúnaðinn. Hann er land- stólpinn. þetta hefir mörgum gleymzt siðan hin svonefnda kaupstaða- menning hélt innreið sína í vort fámenna þjóðfélag. Uppgripin við sjávarsíðuna hafa orðið þess I valdandi, að margir líta nú smáum augum á bændur, sem berjast látlausri baráttu kyn- slóð eftir kynslóð og bera lítið annað úr býtum en hvers dags þjáningu. En um bændur má það segja, að þeir hafa litið illu auga til hinnar vaxandi út- gerðar,. og er það máske að vonum, því að hún hefir dregið marga tauma úr höndum bænda. Á hitt ber þó að líta, að illa mundum vér nú staddir, ef stór- útgerðin hefði ekki verið á þess- um kreppuárum. Á hverju þvi heimili, þar sem ekki er góð samvinna, fer margt illa. Ef við litum nú á þjóðfé- lagið sem eitt hejmili, þá sjáum 'við að góð samvinpa milli at- vinnuveganna er nauðsynleg til þess að vel fari. Stéttarígur og illindi verða aldrei til annars en ills eins. Nokkrir menn hafa séð þetta og þá þörf sem á því er, að landbúnaður og sjávarútvegur haldist í hendur og hjálpi hvor öðrum. Regar góðæri er til sjáv- ar, á útvegurinn að stuðla að framförum í landbúnaði, en þeg- ar í harðbakka slær fyrir út- gerðinni á landbúnaðurinn að vera bakbjarl. Þetta hefir og hinn framsýnasti og duglegasti atvinnurekandi þessa lands, Thor Jensen, séð, því að hann er tvent í senn, stærsti útgerðar- maður þessa lands og liklega stærsti bóndinn á landinu. Væri íslandi vel borgið, ef margir væri hans líkar, jafn stórhuga og áræðissamir i viðskiftum, út- gerð og búskap og hefði jafn óbifandi traust á landinu og framtið þess og skildu eins vel og hann, að atvinnuvegirnir verða að haldast í hendur til þess, að þjóðarbúskapurinn geti blessast. „Eir aí Kurdistan". Jay Bonsou er maður nefnd- ur. Hann var skraddari i Chi- cago fram að árinu 1920. Þá fór hann til New York og út- básúnaði þar, að hann væri af konuugsættum, faðir sinn hefði verið Emir Abdulla og frændur sínir væri þeir Fuad konungur í Egyptalandi, Alfons Spánar- konungur, Mustafa Kemal pg Feisul konungur. í fylgd með honum var einhver kvensnift, með demant í nefinu. Lögðu menn nokkurn trúnað á sögu hans, og veitti Harding for- seti honum viðtal í Hvíta húsinu. Samt fór nú svo, að hann varð að hverfa skyndilega frá New York. Fór hann þá fyrst til Frakklands, og þaðan til Englands. Þar hafði hann ofan af fyrir sér með skraddaravinnu um hríð, en eirði ekki, og fór aftur til Ameríku. Far fékk hann ekki landgönguleyfi, og kom því aftur til Englands. Petta var í marz 1923. Kallaði hann sig þá »prins af Kurdis- tan«, og tók á leigu dýrustu íbúðina í Savoyrgistihúsj. Eftir lítinn tima hljóp hann þaðan án þess að borga, og náði sér nú í íbúð í Hyde Park gisti- húsi. Þar tók lögreglan hann og setti í fangelsi. Var hann þá dæmdur landrækur og hefir síðan verið á sifeldu ferðalagi yfir Atlanzhaf, því að enginn vill hafa hann. í júlí í fyrra kom hann til New York frá Cherbourg í Frakklandi. í marz í vetur var hann sendur þaðan til Englands. Vildi hann þá ekki vera á þriðja farrými, heldur greiddi sjálfur rúm á fyrsta farrými, og var þá í ein- kennisklæðum, eins og margir skopsöngvarar nota, með gulln- um axlasporum. Þegar skipið kom til Liverpool, var hann kýrsettur og sendur með næsta skipi til Ameríku aftur. Par fekk hann ekki landgönguleyfi, heldur var hann hafður í haldi á Elliseyju um hríð, og síðan sendur til Frakklands. Pangað kom hann 4. maí. Hafði hann þá orðið að sætta sig við að ferðast á 3. farrými og hafði ekki annað meðferðis en lítinn böggul. Yfirvöldin í Cherbourg tilkyntu honum þegar, að liann fengi ekki að vera lengur en x/2 mánuð þar i landi. Brosti þá »prinsinn« og kvaðst vera á leið til London, og þaðan til Beyrutb, því að hann hefði ill- an bifur á stjórninni í Angora og óttaðist það, að hún mundi gera Kurdum einhverja skrá- veifu. Segist hann eiga »margar miljónir« i ættlandi sínu, ep

x

Dagblað

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblað
https://timarit.is/publication/605

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.