Dagblað - 08.06.1925, Qupperneq 1
Mánudag
8. júní
1925.
I. árgangur.
104.
tölublað.
ÖGNIN er aðaleinkenni þeirra
sem nú byggja þenna bæ
og starfa hér, þögn við öllu
sem miður fer, þögn við öllum
afglöpum stjórnarvalda bæjar-
félagsins, doðadeifð og einhuga
afskiftaleysi. Menn þegja í hel
allflestar hugsjónir og framfarir
tii sameiginlegra hagsbóta borg-
arbúa, blunda á kodda afskifta-
leysisins og láta þess í milli
teyma sig eins og naut í bandi
I til þess að samþykkja meö þögn-
dnni alt sem á þá er lagt. Með
bring í nösum og bitil í munni
ganga menn í hvert skifti að
kjörborðinu, í þeirri nautheimsku
fullvissu, að nú sé öllu vel borg-
ið næstu árin í höndum þeirra
íyrirmyndarmanna, sem í það
skiftið taka að sér stjórn bæjar-
málanna, og leggjast svo undir
okið og byrðarnar með tak-
niarkalausri rósemi og þolin-
mæði.
Bæjarfulltrúarnir, sem að vísu
hafa sína byrði að bera, eins
og aðrir, taka að sér hin vanda-
sömu störf í þágu hins opinbera
með það fyrir augum að vinna
til heilla fyrir heildina; koma
saman tvisvar í mánuði til þess
að samþykkja það sem áður
hefir verið samþykt í nefndum
inilli funda, fræða hver annan
um lítilfjörleg ágreiningsatriði,
eins og væru þeir börn í barna-
skóla, brosa hver að öðrum, en
spyrja aldrei um hver sé vilji
borgarbúa — kjósendanna — í
hinum margvíslegu málum sem
alla varða. *
Hver er þá vilji borgarbúa og
stefna sú er einkum lætur á sér
bera? Hvar er sá bakhjarl er
bæjarstjórn þarf að hafa, hvar
sá vakandi kraftur samtakanna?
»Framfarafélagið«, sem sam-
kvæmt stefnu sinni átti að hafa
forgöngu málefna þeirra, er til
famfara horfðu í bæ þessum, var
eina félagið sem um nokkurt
skeið lét sig sérstaklega varða
bagsmuni bæjarbúa. Þegar áhuga-
Qienn þeir, er fyrir því stóðu, tóku
að eldast, sofnaði það, og er nú
fyrir nokkrum árum fallið í val-
inn. Hús átti félagið um eitt
skeið, er siðar var selt, og er
dánarbúið var gert upp, átti það
nokkurt fé í sjóði, sem sam-
kvæmt lögum félagsins rann til
»ekknasjóðsins«. — Fyrir nokkr-^
um árum var stofnað félag hér
er »Sjálfsstjórn« nefndist. Fórþað
félag allgeyst á stað undir ein-
hverja kosninguna, var sérstak-
lega sett jafnaðarmönnum til
höfuðs og bar á sér pólitiskan
blæ, — en viti menn: eftir ör-
skamman tíma dó það úr bráða-
pest og vildi enginn við leyfun-
um líta.
Eiustaka maður hrekkur þó
upp úr dvalanum enn, einkum
ef komið er við kaun hans sér-
staklega, kvartar um meðferðina
á sér við nábúa sína og kunn-
ingja, en sættir sig við hana að
lokum eins og skepna sem
gengur fyrir æki. En ekkert
félag er til hér sem hefir vak-
andi auga á velferð þessa bæjar
og því hvernig fjármálum hans
er stjórnað. Væri þó sízt van-
þörf á slíkum félagsskap, eins
og Dagblaðið hefir oftlega bent
á, og mun ekki um þegja fyr en
úr raknar. — Bæjarfulltrúarnir
þurfa jafnan að hafa það hug-
fast að allur þorri þroskaðra
manna fylgist með gerðum þeirra.
Listsýningín danska.
Stjórn Listvinafjelagsins hafði
boðið um 300 manns til að
vera við opnun hinnar dönsku
listsýningar félagsins í barna-
skólahúsinu á laugardaginn var
kl. 2 síðdegis.
Athöfnin fór fram í leikíimis-
húsi skólans, er var fánum
skreytt. Voru þar ýmsir tignir
gestir saman komnir, Knútur
prins og Barfoed yfirforingi,
helstu embættismenn ríkisins og
bæjarins, sendaherrar erlendra
ríkja og liðsforingjar af herskip-
inu »Fylla«.
Th. Krabbe vitamálastjóri
flutti ræðu og skýrði frá starf-
semi Listvinafélagsins og til-
drögum að sýningunni, færði
stjórn »hinnar frjálsu sýningar«
í Khöfn, listamönnum og ýms-
um stofnunum alúðarþakkir fyr-
ir ágætar undirtektir og stuðn-
ing, Erick Stuckmann málara
fyrir ferðina hingað og alla fyr-
irhöfn með niðurskipun listverk-
anna og að síðustu Knúti prins
fyrir komuna.
Fá talaði Erick Stuckmann
fyrir hönd listamanna þeirra er
lánað höfðu verk sín á sýning-
una og kvað sýningasali »hinn-
ar frjálsu sýningar« i Iíhöfn
standa opna íslenzkum lista-
mönnum ef þeir kysu að halda
þar sýningu.
Loks mælti Knútur prins á
þá leið, að sýning þessi hefði
mætt góðum undirtektum og að
óskandi væri að hún yröi með-
al annars til þess að styrkja
hina vaxandi samúð milli frænd-
þjóðanna. Lýsti hann yfir þvi
að sýningin stæði öllum opin.
F nnduriun
jið Minni-Borg',
Eins og Dagblaðið drap á á
föstudaginn var leiðarþing
haldið þann dag að Minni-Borg
í Grimsnesi. Var veðrið ekki
sem ákjósanlegast. Sóttu þó
þangað um 70 manns, flestir
kjósendur. Hófst þingið kl. 21/*
og stóð þar til laust fyrir mið-
nætti, eða nær 10 kl.stundir.
Benedikt Einarsson í Miðengi
var fundarstjóri.
Þingmenn Árnesinga, Jörund-
ur Brynjólfsson og Magnús
Torfason, gáfu yfirlit helztu
þingmála og skýrðu frá úrslit-
um þeirra. Þvínæst flutti Jónas