Dagblað - 20.06.1925, Qupperneq 1
Lauqardaa ttgr ## m /. árqanqur.
2Ó júni JfílS 115
1925. WWM Vf*fV iölublað.
OÐUM líður að þeim merkis-
atburði í sögu vorri, að
haldið verði þúsund ára
afmæli Alþingis — elzta lög-
gjafarþingsins á þessari jörð.
Þetta er svo einstæður atburð-
ur að telja má víst, að honum
verði veitt athygli um allan
heim og veltur því á miklu, að
þau hátíðahöld sem hér munu
verða 1930 fari þann veg fram,
að okkur verði til fylsta sóma
og álitsauka.
Eins og þessi atburður er sér-
stæður í heimssögunni, svo eiga
hátíðahöldin til minningar um
hann að vera einstæð og sér-
kennileg og því lengi í minnum
höfð. Minningarathöfnin verður
að vera svo vegleg að hún hafi
ekki átt sinn líka áður, né geti
átt á næstu áraröðum. Verður
til alls að vera sem bezt vandað
og öll framkvæmd í fullkomn-
asta lagi. Til þess að þetta geti
oröið þarf fyrst og fremst mik-
inn og margvíslegann undirbún-
ing. Þarf þar að mörgu að.
hyggja og mun ekki veita af,
þótt strax sé hafist handa
um undirbúning nauðsynlegustu
framkvæmdanna og þeirra sem
mestan tíma þarf til að koma í
viðunandi horf.
Búast má við stórflóði erlendra
ferðamanna i sambandi við þús-
und ára hátíðina og mun þar
verða margt tignra gesta. Er því
mikilsvirði, að þau kynni sem
þeir fái af landi og þjóð verði
til þess að afla okkur athyglis
og nokkurrar frægðar í umheim-
inum, og er okkur á hvoru-
tveggja full þörf.
Árið 1930 verður að vera
auðsýnilegur nokkur árangur
hinnar 1000 ára löngu löggjaf-
arstarfsemi, og enn lengri menn-
ingarsögu. Útlendingar og aðrir
þurfa að fá þann heildarsvip af
þjóðmenningu vorri, er okkur
sé fremur til sóma en van-
sæmdar. Aðalstöðvar fólksmergð-
arinnar verður auðvitað Reykja-
vík og Þingvellir. Á hinum 1000
ára gamla og viðfræga sögustað
fara auðvitað aðalhátíðahöldin
fram, en allur fólkstraumurinn
hlýtur að fara um Reykjavík.
— Ein 5 ár eru nú þangað
til hin mikla þjóðhátíð á að
verða, og er því ekki iangur
tími til stefnu um allan undir-
búning, eins mörgu og þörf er
að koma áður í viðunandi horf.
Svo er nú, að ekkert full-
komið gistihús er til i höfuð-
borg landsins. Er það ilt til af-
spurnar, sérstaklega meðal út-
lendinga, og mun þó verða enn
verra með hinum vaxandi ferða-
mannastraum, sem óhjákvæmi-
lega hlýtur að stefna hingað á
næstu árum. 1930 er þetta alveg
ófært, því svo margt stórmenna
mun þá verða hér saman kom-
ið, að ekki er vansalaust að
geta ekki tekið sæmilega á móti
að m. k. nokkrum hluta þeirra.
Aðrar þjóðir gera mikið til
að laða að sér ferðamenn, og
er þar ekki horft f neinn kostn-
að. Hér er ekkert gert í þá átt,
og mun Dagblaðið síðar víkja
að einstökum atriðum þess máls.
— Mjög æskilegt er, að 1930
verði búið að hreinsa svo til á
Ringvöllum, að þeir yrði sem
líkastir því, sem þeir munu hafa
verið fyrir 1000 árum. Reyndar
mun það erfitt verk, að bæta
úr öllum þeim skemdarverkum,
sem þar hafa verið framin,
bæði með húsabyggingum og
vegagerð, en miklu mætti samt
koma þar í likingu við hið upp-
haflega útlit, ef vel væri að ver-
ið. Þarf því strax að byrja á
því verki, og fara þar eftir ráð-
um og tillögum þeirra manna,
sem telja má færasta til að ráða
þar fram úr. Væntanlega verður
Skipulagsnefnd Reykjavíkur ekki
æðsti ráðgjafi þar um, eftir þeim
forsmekk, sem menn hafa feng-
ið af framkvæmdum hennar
viðvíkjandi skipulagi Reykja-
vikur.
— Eins og áður er vikið að,
þarf strax að fara að hyggja að
undirbúningi hinna nauðsynleg-
ustu framkvæmda fyrir þúsund
ára hátiðina. Þyrfti sérstök nefnd
með framkvæmdarvaldi að hafa
þar forgönguna, og ætti sem
fyrst að skipa hana, svo hún
geti tekið til starfa áður en
langt um líður.
Einhverjar »Pingvallanefndir«
munu nú vera til, en um verk-
svið þeirra eða starfsemi er
fæstum kunnugt, og þarf þar
ný og önnur betri átök, ef duga
skal. -m. -n.
Iðnsýiiing’
Mosíellss vei tar.
Iðnsýning að Brúarlandi við
Varmá er liklega einhver merki-
legarta sýningin, sem haldin
hefir verið hér sunnanlands.
I’egar þess er gætt, að litill
undirbúningur var fyrir sýning-
una og svo að segja gripið það
sem hendi var næst, er það al-
veg aðdáanlegt að völ skuli hafa
verið á jafnfjölbreyttum og vel
gerðum heimilisiðnaði og þar er
sýndur. Enginn »kaupstaðabrag-
ur« er þar á handavinnunni,
og er það jafnvel merkilegasta
atriðið, að í næsta nágrenni
Reykjavikur skuli vera unninn
jafn fjölbreyttur og vel gerður
heimilisiðnaður og nú er sýndur
þar upp frá. Þsss er einnig að
gæta að sýningamunirnir eru
frá tiltölulega fáum heimilum
og er fjölbreytnin því virðingar-
verðari og merkilegri.
— Síðasti dagur sýningarinnar
er á morgun og ættu Reykvík-
ingar að nota tækifærið og bregða
sjer upp að Brúarlandi, og full-
yrðir Dagblaðið að þeim tíma
og peningum, sem til þess fer,
sje vel varið.