Dagblað - 29.07.1925, Page 1
SKIPULAGI sjávarþorpa og
kaupstaða hér á landi hefir
verið mjög ábótavaut, og fer
það að vonum, þar sem bæir og
þorp hafa víðast hvar bygst
þannig, að mönnum hefir verið
nokkurn veginn í sjálfsvald sett,
hvar þeir reistu hús sin og
hvernig lóðir voru afmarkaðar.
Hús voru því fyrst reist á víð
og dreif skipulagslaust og þegar
að því kom að gera þurfti göt-
ur, varð að haga skipun þeirra
eftir því hvernig bygt hafði ver-
ið, og var því ekki við góðu að
búast. í hinum slærri kaupstöð-
ura landsins ætti þó þessi öld
að vera liðin, en svo er þó eigi.
Enn þann dag í dag er bygt
skipulagslaust viða hvar og sjálf
höfuðborgin Reykjavík hefir ekki
verið nein fyrirmynd annara
kaupstaða í þessu efni. Og þrátt I
fyrir það, að hér áttu að vera
bezt skilyrði til þess að koma
á nýju og góðu skipulagi og af-
nema gamalt ólag, hefir skipu-
iagsleysið lítið minkað á síðari
árum, en ólagið haldist. Er þetta
alveg furðulegt þar sem hér er
þó bæjarstjórn, byggingarnefnd,
foyggingarfulltrúi og fasteignar-
nefnd, sem eiga að sjá um að
helztu skipulagsreglur sé ekki
brotnar.
í viðbót við þetta mikla
»maskineri« kom svo »skipulags- •
nefnd«, sem á að hafa eftirlit
með skipulagi kaupstaða og
þorpa hér á landi. Hún hefir
aðsetur sitt hér í Reykjavík og
mælti því ætla, að hún léti
skipulag þessa bæjar fyrst og
fremst til sín taka. Að vísu vill
oft fara svo, að mönnum sézt
furðanlega yfir það, sem aflaga
fer á eigin bæ, en eru glöggvari
á hirðuleysi og vanrækslusyndir
nágranna síns. Má því vel vera,
að skipulagsnefnd hafi giöggvari
gætur á skipulagi annara bæja,
því að hér í Reykjavík gætir
litið áhrifa hennar. Rekur nú
hvert hneykslið annað um húsa-
skipun hér í bæ. Hefir Dagblað-
ið áður minst á hina »frægu«
byggingju í Hafnarstræti. Er hún
nú farin að lyfta sér svo hátt,
að nú ætti hver maður að geta
séð hvílík forsmán það er, að
reisa stór og vönduð hús þannig,
hús, sem eiga að standa manns-
öldrum saman. Pað er sök sér,
þólt timburhúsin þar um kring
standi skipulagslaust. Pau eru
mörg að fótum komin eftir fáein
ár, þótt eldur verði eigi til þess
að eyða þeim og má þá jafn-
harðan og þau hverfa færa til
betra skipulags.
Nú er víða verið að byggja í
bænum og er furðulegt að sjá
hvernig að er farið um það. En
þó tekur víst öllu öðru fram ný
steinhúsbygging við Hverfisgötu.
Par var rifið gamalt hús í vor
og þetta nýja hús er reist á lóð-
inni og er hún yfrið stór. Petta
hús stendur norðan megin göt-
unnai', en einhver tilviljun hefir
ráðið því áður, að húsaröðin
þeim megin er í beinni línu. En
»hvergi má lærdómseinkenni
vanta« og þess vegna er þetta
nýja steinhús látið skaga langt
fram í gangstéttina. Dagblaðið
hefir frélt, en ekki vill það þó
bera ábyrgð á að sú fregn sé
sönn, að húseigandi hafi farið
fram á það að mega reisa þetta
hús í beinni linu við hin, en
ekki fengið þvi ráðið! En hvað
sem um það er, — byggingar-
nefnd hafði það að minsta kosti
á sínu valdi að láta þetta nýja
hús eigi skaga fram úr hinum.
Eg vil biðja borgarbúa að
íhuga að hverju stefnir með
þessu hirðuleysi um skipulag
bæjarins. Eru menn ánægðir
með það, að þannig sé haldið
áfram ár eftir ár? Menn verða
jafnframt að gæta þess vel, að
fæst af því, sem nú fer aflaga í
húsaskipun hér, verður aftur
tekið. Flestar þær byggingar,
sem nú eru reistar, eru ævarandi,
og skipulagsleysi þeirra verður
nokkurs konar bautasteinn þeirr-
ar kynslóðar, sem nú er uppi.
Síldveiðaskip.
Síldveiðar stunda nú eftirfar-
andi skip frá Reykjavík og
Hafnarfirði:
Togararnir: Rán, Jón forseti,
Glaður og Ýmir. Kútterar: Björg-
vin, Keflavík og Seagull (eig.
H. P. Duus), Hákon (h.f. Há-
kon), Iho (útgerðarm. Skúli
Jónsson).
Linuveiðarar: Kakali (Proppé-
bræður), ísafold og ísbjörn (eig.
Metúsalem Jóhannessou), Por-
steinn (eig. Geir Thorsteinsson),
Margrét ex Henningsver (Bjarni
Pétursson o. fl.), Aldin (A. Jak-
obsson), Gunnar (Eggert Jóns-
son), Namdal (Magn. Kristjáns-
son o. fl.), íslendingur (Sigm.
Jóhannsson umboðssali), Anders
(Óskar Halldórsson).
Mótorskip: Svanur (Guðm. Kr.
Guðmundsson), Ingólfur, Björg-
vin og Svanur (L. Loftsson),
Arthur Fanney (M. Kristjánss.),
Skjaldbreið (h.f. Herðubreið),
Höskuldur, Úlfur og Nanna (Ósk.
Halldórsson), Pórir (h.f. Kveld-
úlfur), Hurry (Eggert Jónsson).
Bækur og Blöö,
Heiðraða Dagblað!
í dag las ég þessar setningar
um blaða- og bókagerð á land-
inu: »Líklega er hér meira gef-
ið út af blöðum, bókum og
bæklingum en í nokkru öðru
landi, miðað við fólksfjölda eða
lesendafjölda málsins«. Eitthvað
líkt sá ég í Eimreiðinni fyrir
skömmu, og var þá að hugsa
um, að senda ritstjóranum þess-
ar linur, sem Dagblaðið nú fær,
úr því að hitt varð í útideyfu
fyrir mér.
í Review of Reviews stóð ein-
hvern tíma á árunum 1908—
1910, hve margar bækur hefði
komið út á Englandi árið áður,