Dagblað

Útgáva

Dagblað - 01.08.1925, Síða 1

Dagblað - 01.08.1925, Síða 1
Laugardag 1. ágúst 1925. I. árgangur. 150. tölublað. ÍDagBlaé If'INZT hefir verið á þaö hér yj i blaðinu, að íslendingar mundi geta framleitt eins mikið af kartöflum og þeir þurfa til matar. Síðan hafa blaðinu borist umsagnir ýmsra manna um þetta mál, og eru flestir á því, að kartöflurækt sé of dýr, sérstaklega hér í Reykjavík, og mundi alls eigi borga sig, ef kaupa þyrfti vinnu við garðyrkjuna. Þetta mun að nokkru leyti vera rétt, en það er vegna þess fyrirkomulags — ólags mætti kalla það — sem hér er á. Lóðagjöld eru hér t. d. svo há, að þau eru þungur skattur á hverri garðholu. Er það hart, að menn skuli þurfa að greiða sama lóðargjald af kartödugarði eins og af byggingarlóð, og sfzt er það fallið til þess að auka áhuga manna fyrir garðrækt. Lóðaverð er og komið svo langt fram úr öllu hófi hér, að menn hafa ekki efni á því að hafa meira svigrúm i kringum hús sin, en minst veröur komist af með. Kálgörðum í bænum fækk- ar því með hverju árinu sem líður, en hús og kofar rísa upp i þyrpingum, þar sem blómlegir garðar voru áður. Engum getur dulist það, að kartöflurækt hefir mikla þýð- ingu fyrir þennan bæ. En eins og nú stefnir, er varla annað sýnna, en að hún muni leggjast niður með öllu. Hið óbeina tjón, sem bærinn mundi biða við það, verður ekki með töl- um talið. Afleiðingin mundi og verða sú, að áhugaleysi fyrir garðrækt mundi útbreiðast héð- an, og er það ekkert tilhlökk- unarefni. Menn munu nú spyrja, hvort nokkur ráð sé til þess að rétta við garðrækt hér og auka kart- öfluframleiðslu. Jú, það eru ef- laust mörg ráð til þess, og er það talsvert undir bæjarstjórn kornið, hvort það tekst. Ef hún vildi viðurkenna, að garðrækt sé til heilla fyrir bæjarfélagið, þá hefði hún ýms ráð til að auka áhuga manna fyrir henni. Rað mundi t. d. vera stór hvöt fyrir menn, sem óbygðar lóðir eiga, að kom þeim i garðrækt, ef ekkert lóðagjald væri af kál- görðum. Með þvf að fella niður slík lóðagjöld, mundi bærinn að vísu missa dálitlar tekjur, en á hinn bóginn mundi hann þó stórgræða á því, vegna þess, að það er enginn efi á þvi, að menn mundu rækta hvern rækt- anlegan blett, ef þeir væri und- anþegnir lóðagjaldi. Ég vona að bæjarstjórn taki mál þetta til yfirvegunar, og ég vona líka, að félagið »Land- nám« láti það til sin taka, og ennfremur »FasteignaféIagið«. Trúi ég þeim félögum báðum vel til þess, að koma málinu áleiðis, og ég get tæplega skilið, að nokkur bæjarbúi þurfi að vera þessari hugmynd mót- fallinn. Kæmist þetta í framkvæmd, að kálgarðar sé undanþegnir lóðagjaldi, mundi það og hafa þau áhrif, að ekki yrði bygt hér jafn þétt og nú er gert. Væri það mikil framför, því að satt að segja er þéttbýlið hér til vandræða, þar sem hvert húsið skyggir á annað, og í mörgum sér aldrei sólargeisla. Spyrjið læknana, hvort það væri ekki framför, ef það skipulag kæm- ist á hér, að garðar væri um- hverfis hvert hús og sólrik her- bergi í hverju húsi. Og spyrjið hagfræðingana, hvort það sé ekki búhnykkur fyrir bæinn, ef borgarar hans notuðu fristundir sinar til þess að rækta lóðir sinar i stað þess að láta þær vera ónotaðar. Og spyrjið upp- eldisfræðingana að þvi, hvort það mundi eigi hollara fyrir börnin hér, að láta þau kepp- ast um að gera sinn »garð« frægan, heldur en að flækjast í greinarleysi á götunum. ÓK AJ A N O S Auðæfaskipið. „8á á fnnd sem flnnur“. Hér i blaðinu hefir áður verið sagt frá auðæfaskipinu Merida, sem nokkrir íþróttamenn í Bandarikjunum hafa fundið á mararbotni og eru nú að bjarga auðæfum þeim, sem í skipinu eru. Merida fórst árið 1911. Kom skipið þá frá Mexiko og með þvi fjöldi auðmanna þaðan, sem flýðu land vegna stjórnbyltingar. Hafði Francisko Madero þá ný- lega verið myrtur, en fylgismenn hans flýðu land og höfðu með sér dýrgripi sína og er talið að miljón dollara virði af dýrgrip- um hafi verið í Merida. Voru þeir læstir inni í tveimur eld- tryggum skápum og vanst ekki timi til þess að opna þá eftir að skipið hafði rekist á Admiral Forragut. Var það rétt með naumindum að hið síðarnefnda skip gat bjargaö þeim, sem á Merida voru. Allir ættingjar Maderos forseta voru um borð i Merida og áttu þeir mikið af dýrgripum þeim er týndust, þar á meðal gimsteina úr kórónu Maximilians keisara og meðal þeirra eru fallegustu rúbinar í heimi. Auk þess voru um borð margir dýrmætir ættargripir Madero-ættarinnar. Auk þess áttu 45 auðugir Mexiko-búar dýrgripi sína geymda i þessum eldtraustu skápum skipsins, þar á meðal biskupinn yfir Yucatan, leðurkógurinn Charles Zettina, og fjórir bankastjórar. Eignar- rétt sinn á þessum dýrgripum hafa þeir allir mist fyrir löngu, og á sá fund sem finnur. Er talið líklegt að ættingjar muni kosta kapps um að fá keypta dýrgripina, ef mönnum tekst að bjarga þeim. Auk þessara dýrgripa hafði skipið meðferðis 22 smálestir af

x

Dagblað

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblað
https://timarit.is/publication/605

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.