Dagblað

Issue

Dagblað - 17.08.1925, Page 1

Dagblað - 17.08.1925, Page 1
Mánudag g Jm* /. árgan ”■&* Jjagblaö FÓLKSFÆÐIN í sveitunum er að verða aðaláhyggjuefni bændanna, og margir fleiri hyggja nú að þeirri bliku, sem dregur upp á framtíðarhimni landbúnaðarins. Árlega fækkar vinnandi fólki í sveitunum svo miklu munar, en jafnframt eykst aðstreyraið til kauptúnanna, og þó einkum til Reykjavíkur. Með hverju árinu sem líður verður erfiðara að fá fólk til nauðsynlegustu sveitavinnu, oger jafnvel sama hver kostakjör eru boðin. En á sama tíma fjölg- ar fólkinu við sjávarsíðuna, og framboð vinnulýðsins eykst miklu örara en þörf atvinnuveg- anna krefur. Með fólkstæming sveitanna lileypur ofvöxtur í bæina, og er hvorttveggja jafnskaðlegt eðli- legri þróun og nauðsynlegu jafn- vægi atvinnuveganna. Mörgum bæjarbúa, ekki siður en landbónda, er þetta öfug- streymi mikið áhyggjuefni, en ekki virðist auðgert að stemma þar stigu fyrir. Rótleysi fólksins og breyttar aðstæður til verk- vals mun hér mestu valda, en ekki er f)ar alt, sem dregur fólk úr instu afdölum til yztu annesja. Ýmislegt er það fleira, sem veldur þessari breytingu á háttsemi fólksins, þótt þetta muni vera aðalorsakirnar. Vöxtur bæjanna inn á við og aðflutningur nýrra manna er nauðsynlegur hverju bæjarfé- lagi, ef kyrstaða og úrættun á ekki að verða hlutskifti þeirra. Það er viðurkend staðreynd, að bæirnir sækja bæði þrótt og næringu til sveitanna, og að þangað verði að sækja þá end- urnýjun, sem nauðsynlegust er til viðhalds og framsóknar. En þegar ofvöxtur hleypur í bæina, er öllu hætt, því ofmik- ið aðstreymi er engu betra en litil endurnýjun, því afturkast ofvaxtarins hlýtur að koma fyr eða seinna, og geta afleiðingar þess orðið mjög alvarlegar og erfiðar viðfangs. Þessi röskan á nauðsynlegu jafnvægi atvinnu- veganna er þjóðmál sem alla varðar. Staðreyndirnar eru auð- sénar, og öllum ljóst, að við- horf þeirra þarf að breytast til batnaðar. Það ætti að vera sameigin- legt áhugamál allra flokka og stétta, að efling landbúnaðarins sé sameiginleg nauðsyn land- bænda og sjávarbúa. Sá þjóð- arskaði, sem hnignun landbún- aðarins hlýtur að valda, kemur engu síður niður á kaupstaðar- búanum en sveitamanninum, og er því báðum nauðsynlegt, að þannig sé stefnt að áfram miði, en ekki aftur á bak. Sjálfsvörn sveitarmannsins og hjálpartök bæjarbúans eiga þar að vera saman að verki. „Ógæfa Noregs“ ogr „Morgunblaðið", Að sunnudagstexta flytur Morg- unblaðið lesendum sínum i gær »nýlega« frétt um bannið í Nor- egi. Er það grein, er stóð i sænska andbanningablaðinu »Dagens Nyheter« snemma í júlí- mánuði, og var grein þessi talin ummæli, er forseti Stórþingis Norðmanna, Ivar Lykke frá f*rándheimi, hafði haft við frétta- ritara blaðsins. — Að vörmu spori sendi Lykke blöðunum andmæli gegn grein þessari í Dagens Nyheter. Kvaðst hann eigi hafa komist þannig að orði, er blaðið hermir, og til að gera mönnum ljóst, að hann telji sig eigi bera ábyrgð á frásögn blaðs- ins, skýrir Lykke einnig frá, að grein þessi hafi ekki verið bor- in undir sig, áður en hún var prentuð. Morgunblaðinu hefír láðst að geta þessara andmæla Lykke, og er þó um mánuður síðan, að þau bárust hingað til lands í norskum blöðum. Er því þessa getið hér Lykke til réttlætingar, þótt hann sé andbanningur. Á hinn bóginn er alls eigi ó- trúlegt, að Lykke, forseti, kunni að hafa sagt alt það, er blaðið ber hann fyrir, þótt hann, mað- ur í þingforseta stöðu, vilji ógjarna láta bera sig fyrir þess- háttar ummælum opinberlega. Sögusögn sænska blaðsins er nfl. eigi annað er það, sem and- banningablöðin norsku klifa á daglega, og þrásinnis hefir verið borið til baka með rökum. — í »Bergens Aftenblad« stóð þannig t. d. 'nær orðrétt grein sú, er Mbl. flutti í gær eftir Dagens Nyheter, Jullri viku áður en frétta- ritari sænska blaðsins átti tal við Lykke. Og Bergens Aften- blad endar grein sína á sama hátt og herra Lykke(?) og allir andbanningar enda ræður sínar og ritgerðir: Þess vegna ber að afnema bannið, sem að vorri skoðun er »ógcefa lands vorsa. Annars eru hin opinberu um- mæli andbanninga jafn veigalítil og brosleg í Noregi sem hér á landi og víðar. Fyrir 2—3 árum stóðu merkir andbanningar á Stórþingi Norðmanna, börðu sér á brjóst og sögðu: Oss og öllum góðum drengjum ofbýður áfengis- smyglunin, og öll sú spilling, er af henni leiðir. Veitið undan- þágu fgrir suðrœnu vinin léttu og ljúíTengu, þá mun smgglunin óðara hverfa úr sögunnil — Svo komu Spánarvínin, og reynslan varð auðvitað sú sama í Noregi sem hér á landi. Og nú hrópa sömu mennirnir um endilangan Noreg: — Var þetta ekki það sem við sögðum ykkur! — Af- nemið bannið, í guðanna bæn- um, til þess að bjarga þjóðinni frá Spánarvoðanum!

x

Dagblað

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblað
https://timarit.is/publication/605

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.