Dagblað

Tölublað

Dagblað - 19.08.1925, Blaðsíða 1

Dagblað - 19.08.1925, Blaðsíða 1
ÁLGENGASTA vígorð and- banninga er það, að áfeng- isbannið sé undirrót alls hins illa í heimi þessum, eða a, m. k. öll hin helzta siðspill- ing á síðari árum, svo sem: aukinn drykkjuskapur, áfengis- smyglun, heimabruggun, ólyfj- ansdrykkja, ólöghlýðni, prettvísi og allskonar glæpir, — alt sé þetta banninu. að kenna! — Það virðist vera orðið andbanning- um trúaratriði, að þegar bann- lögin gengu í gildi, þá hafi djöf- ullinn smokkast úr böndunum — og hlaupið í svínin. Þessar staðhæfingar kaldhamra andbanningar seint og snemma, þótt þeim sé fyllilega ljóst, að tæplega sé heill þráður í allri þeirri röksemdafærslu í öllum þeim efnum, og þótt dagleg reynsla víðsvegar um heim mót- mæli þeim lcröftuglega. — Þeir halda sínu fram eftir sem áður í þeirri trú, að svo megi hamra deigt járn, að bíti. Og víst er um það, að allmörgum kjark- litlum sálum er nú þannig komið, að þær eru hætlar að hugsa sjálfstætt um þessi mál, og segja eins og karlarnir forð- um: — Þetta hlýtur að vera satt, kona góð, ég las það í blaðil Það ætti því að vera holt og fróðlegt, að líta dálítið i kring- um sig og svipast um i þeim löndum, þar scm ekkert er bannið, en ríkulegt af brenni- víni og öðrum »guðs góðum gjöfum« í lögmætu frjálsræði. — það er svo sem auðvitað, að í þeim löndum getur engin áfeng- issmyglun verið til, og þar hlýt- ur siðferðið að vera minst upp á 81 — Nú er alkunnugt, að bæði í Svfþjóð og Danmörku hefir lögregla og tollgæzla verið i hreinustu vandræðum með áfengissmyglunina á seinni ár- um. Tæplega getur það þó ver- ið bauninu á Islandi að kenna. í»ó ganga Svíar með bók upp á vasann með einkaleyfi dr. Bratts fyrir ríflegum mánaðar- skamti af lögmœtu áfengi. Og i Danmörku eru bruggarar og brennivínssalar beztu borgarar ríkisins. Og þar drýpur brenni- vín og bjór af hverju strái. Hvernig skýra nú andbann- ingar þessi fyrirbrigði í þessum wandlega heilbrigðu« og bann- lausu löndum? Vita þeir, ef til vill, að siðferðislega standa þessi lönd ekki feti framar því versta hér hjá oss, hlutfallslega, og að það er síður en svo! Ekki getur það þó verið banni voru að kenna. Kemur það, ef til vill, upp úr kafinu við nánari at- hugun, að nú á siðari árum horfi til vandræða í allflcstum löndum, sökum þeirrar miklu siðferðishnignunar, er heims- styrjöldin hafði í för með sér. Og þessi hnignun er jafn átak- anleg, og engu síður, í þeim löndum, þar sem fáum hefir dottið bann í hug, og menn geta verið frjálsir og fullir dag- lega, ef þá lystir. — Við skulum lita snöggvast á skýrslurnar um áfengissmgglið i Danmörku: Opinberar skýrslur frá tollstofunni segja þessa sögu m. a.: Árið 1922, 1923 og 1924 vóru tekin fyrir 428, 375 og 204 smygl- mál. Upptækt áfengi var allS þessi árin 38,000, 50,000 og 33,000 litrar. Aðal-smyglararnir og helztu aðstoðarmenn þeirra hafa verið sektaðir alt að 20,000 kr. hver, auk þess að áfengið hefir verið dæmt upptækt, ella hafa þeir verið dæmdir til fangelis- vistar. Sömu hegningarákvæðum hefir verið beitt gegn þeim, sem aðstoðað hafa við sölu áfengis, eða hafa keypt áfengi, þótt þeim hafi verið kunnugt um, að það væri smyglað. Einnig hefir verið beitt all ströngum ákvæðum gegn skipum, sem tekin hafa verið að smygli. Héraðsliátíd 'V estmannaeyinga. Vestmannaeyingarhaldavenju- lega héraðshátíð einu sinni á hverju ári, og altaf um þetta leiti sumars, því þá er hlé á veiðiskap hjá þeim, lundatekja búin, en fýlaveiðar ekki byrj- aðar. Allir Eyjarbúar taka þátt i þessum hátíðahöldum sem venjulega standa í 2 daga. Fer hvert heimili með sitt tjald upp i Herjólfsdal en þar fara aðal- hátíðahöldin fram á hinum forna þingstað Eyjaskeggja. Er oft mannmargt i Herjólfsdal þessa daga og gleðskapur mikill. Að þessu sinni álti að byrja hátiðahöldin á laugardag, en varð að fresta því til sunnudags vegna illveðurs. Áður fóru samt fram kappleikar milli Reykvik- inganna og Knattspyrnufélaga Eyjabúa. Á föstudaginn keptu K. R. og Týr og vann K. R. með 2:1. Á laugardaginn keptu þeir aftur við Þór og varð nið- urstaðan sú sama (2 :1). Aðalhátfðahöldin hófust svo í Herjólfsdal um hádegi á sunnu- daginn. Kristin Ólafsson bæjar- stjóri setti samkomuna, en aðal hátiðaræðuna hélt Jóhannes Jós- efsson alþingsmaður og sagð- ist vel. Söngflokkur undir stjórnBrynj- ólfs Sigfússonar kaupm. söng oft og vel um daginn. Kept var þar í ýmsum iþrótt- um og urðu úrslitin sem hér segir: 1. Gfsli Finnsson 6,05 stikur. 2. Páll Scheving 5,95 st. 3. Steinn Ingvarsson 5,67. Stangarstökk: 1. Friðrik Jesson hljóp 3 stikur réttar, 2. Jónas Guðmundsson 2,70 st., 3. Óskar Valdimarsson 2,65 st. — Þess skal getið, að Óskar er aðeins 15 ára gamall. Hástökk: 1. Páll Scheviúg 1,60 st., 2. Gísli Finnsson 1,55 st., 3. Steinn Ingvarsson 1,40 st.

x

Dagblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblað
https://timarit.is/publication/605

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.