Dagblað

Issue

Dagblað - 25.08.1925, Page 1

Dagblað - 25.08.1925, Page 1
Þriðjudag 25. ágúst 1925. I. árgangur. 169. tölublað. WacjBlaé CNDIR oki lággengis og fjár- hagsörðugleika hafa marg- ar þjóðir orðið að búa síð- astliðin ár, og eru það fyrst og fremst afleiðingar heimsstyrjald- arinnar sem þeim hafa valdið. fessi röskun á nauðsynlegu jafnvægi peningagildisins er einna verst viðureignar af öllum þeim erfiðleikum sem umrót síðustu ára hefir orsakað. Alstaðar eru menn sammála um, að fyrsta skilyrðið fyrir eðli- legu jafnvægi- og viðgangi at- vinnuveganna sé, að verðgildi gjaldeyrisins sé stöðugt og að fjármálin standi yfirleitt á sem traustustum grundvelli. Þetta er stærsta málið sem nú er á dagskrá þjóðanna og al- staðar snúast umræðurnar um það hvaða leið eigi að fara til að koma fjármálunum í betra horf. Engin algild úrlausn er enn þá fundin og alstaðar mjög deilt um úrræðin til endanlegrar lausnar á þessu vandamáli. Við íslendingar höfum ekki farið varhluta af þeim erfiðleik- um sem gengissveiflur og önn- ur fjármálavandræði hafa í för með sér, og enn er ekki séð fyrir endann á þeim vandkvæðum. Um langt skeið var verðgildi íslenzkrar krónu ekki nema Vs hluti af nafnverði hennar, siðan hefir hún, — einkum vegna óvenjulegs góðæris, — hækkað töluvert, svo hún mun nú svara til 2/® af stofngildi sínu. Mörg- uin hefir fundist að þessi hækk- un hefði getað orðið nokkuð örari á þessum góðæristíma, en þeir sem völdin hafa á fjármál- unum hafa ekki talið örari hækkun æskilega og þar tjáir ekki að deila við dómarann. Nú hefir isienzk króna staðið í stað um nokkurt skeið, eða hækkað lftið eitt á löngum tíma, og eru margir orðnir vonlitlir um að hún nái nokkurn tíma sínu upphaflega gullgengi. Má a. m. k. telja það víst, að þess verði langt að bíða eins og nú horfir. Virðast nú aðeins tvær leiðir vera framundan, önnur sú að bíða hægfara hækkunar krón- unnar um ófyrirsjáanlega langan tíma, eða ákveða strax gullgengi hennar eftir núverandi verð- gildi og hefir það verið nefnt að stýfa krónuna. Skyndi- hækkun í upphaflegt gullverð hefir einnig komið til umtals og hefir það helzt verið Alþbl. sem krafist hefir, að þeirri að- ferð yrði beitt til að koma krón- unni í sitt upphaflega verð. Undir afgreiðslu þess máls er að mestu komið hvernig fjár- hagsástandið verður framvegis og skiftir þvi miklu máli hvaða úrlausn verður valin. Er nú þeirra sem völdin hafa, og að- stöðu til íhlutunar um þetta mál öðrum fremur, að reyna að finna þá úrlausn sem vænlegust er til viðunandi árangurs. Er þar á margt að líta því ekkert er eins nátengt afkomu almenn- ings og einmitt gengismálið. Auðvitað verður aldrei hægt að gera þar svo öllum líki, því hver leiðin sem valin verður, er ekki hægt að komast hjá því, að margir beri skarðan hlut frá borði. Verður því að fara þá leiðina sem veldur sem minstri röskun á nauðsynlegu jafnvægi atvinnuveganna, og má sízt af öllu gera þetta mál að pólitisku deilumáli stjórnmálafiokkanna. Alhliða athugun og skýrandi umræður á leiðunum sem fram- undan liggja, eru vænlegast- ar til viðunandi úrlausnar þessa vandamáls. Engiu bœjarprýði er aö prent- smiðjubyggingu Verklýðsfélaganna við Hverfisgötu. Reyndar á þetta að vera hluti úr stærri byggingu, en varla verður hún áferðarfalleg ef gluggarnir á fyrstu hæð verða ekki stærri en skotaugu, eins og er á þeim hluta hennar sem upp er kominn. Samgöngur. Á siðustu árum hafa sam- göngur vorar bæði innanlands og við umheiminn farið mjög batnandi. Sérstaklega eru það innanlands samgöngurnar sem breyzt hafa í betra horf, til mik- illa hagsbóta fyrir almenning. Umhverfis landið eru sam- göngurnar orðnar gjörólikar við það sem áður var og á strand- ferðaskip ríkissjóðs ásamt flóa- bátunum drýgstan þátt f því. Var það mikil happasending þegar Esja var fengin bingað og hefir óneitanlega gert lands- búum mikið gagn, þótt sjálfsagt meigi deila um hvort kaup og rekstur skipsins hefði ekki mátt betur takast. En þótt bætt sé nú úr brýn- ustu flutningaþörfinni umhverfis landið þá er samt ekki enn svo, að þær samgöngur séu full- nægjandi, Enn þarf þar umbóta við og verður það ljósara með hverju árinu sem liður. Esja ætti helzt aðeins að fara hraðferðir til stærstu hafnanna og nota hana nær eingöngu til fólksflutninga. Flutningaþörfin til stærstu hafnanna er svo mikil og skipið svo dýrt í rekstri að til þeirra staða ætti ferðum hennar að- alllega að vera stefnt, en láta hana ekki krækja inn í hverja vík og vog eins og verið hefir. Reyndar er hún þetta ár undan- þegin Breiðafjarðarferöunu'm, en þær hafa áður reynzt einna dýr- astar og tafsamastar. En fleiri krókaieiðir mætti spara ef jafn- framt væri séð fyrir nógu tíðum og reglubundnum bátaferðum milli smástöðvanna. Ættu þær ferðir bæði að verða útgjalda minni tyrir rikissjóð og einnig hagkvæmari fyrir alla hlutað- eigendur. Vöruflutningana ætti Esja að vera iaus við, að mestu, þarf til þess annað skip, sem eingöngu yrði til þess gert og

x

Dagblað

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblað
https://timarit.is/publication/605

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.