Dagblað - 02.10.1925, Síða 3
DAGBLAÐ
3
Drekkið POLO frá gosdrykkja-
verksmiðjunni HEKLA. Sími 1720.
M.s. Svanur áætlunaríerð máiiudagiim 5 okt. M Telráji Konsert í Nýja Bíó þriðjudag 6 okt. kl. 774 stundvísl. Emil Thoroddsen aðstoðar. Magnús Pétursson hæjarlæknir tekur framvegis á móti sjúk- lingum í Kirkjustræti 10, kl. 5—6 síðdegis.
Viðkomustaðir: Sandur, Ólafsvík, Stykkisliólm* Program: Mendelssohn, — Bach, — Schumann, — Beetho- Sfmí 644.
ur, Saltliólmavik. og ISiítð- ardalur. Kemur við á Stapa, Búðum og Skagarnesi á Suðurleið. ven, — Hubay o. fl. Aðgöngumiðar fást í bóka- verslun ísafoldar og Sigf. Ey- mundssonar á 5 krónur. cJKálningarvörur: Blýhvíta, Zinkhvíta, Fernisolía, Þurkefni, Japanlakk. Löguð málning. Ódýrar en góðar vörur.
Fylgiliréf atheiidist á morguu. Guðm. Guðfinnsson augnlæknir,
Vetramaður óskast strax. A. v. á. tekur framvegis á móti sjúkling- um í Kirkjustræti 10, kl. 9Y2— 11 f. h. og kl. 27«—4 eftir hád. Sími 644. Yfir 120 tegundir af veggfóðri, frá 45 aurum rúllan af enskum stærðum. Ilí. öiti Sc Ljós.
Sonnr járnbrantabóng'BlnB.
alveg áhrifalaus. Euginn hló að orðum hans
nema amman gamla og frændinn frá Guate-
mala, því þau skildu ekki neitt, og svo varð
Kirk að hætta þvi gamni.
Kirk var í hreinustu vandræðum. En hann
skildi þó svo mikið, að fólk þetta var alls ekki
að hæðast að honum, heldur var þetta eitthvað
sem heyrði til siðvenjum þeirra og kurteisis-
reglum. Petta var vel siðað fólk, en uppalið
eftir alt öðrum reglum, heldur en hann hafði
vanist — það var alt og sumt — og þareð
hanu hafði kosið að tengjast þeim, varð hann
auðvitað að fella sig við siði þeirra.
Smámsaman vandist hann umhverfi sínu, og
hann fór nú að litast um í herberginu, er var
nijög einkennilega útbúið. Húsgögnin voru í
sjálfu sér falleg og dýrmæt, en þeim var raðað
i ^éttan ferhyrning eins og girðingu, og á miðju
gólfinu stóð stærðar skrautker, sem þó var alt
annað en fallegt. Hingað og þangað í stofunni
stóð mesti fjöldi allskonar skrautmuna úr ýmsu
efni, en það stóð alt á gólfinu. Á gólfábreiðu í
einu horninu lá tlgrisdýr úr postulini í fullri
líkamsstærð. l?að hafði geisistór augu úr gleri,
þau voru meira að segja stærri en augun i
frændanum frá Guatemala, og það glórði og
glitti svo einkennilega í þau, að Kirk fanst þau
niundu dáleiða sig, og hann dauðlangaði til að
reka fótinn i dýrið. Hingað og þangað í stof-
unni lágu aðrar áþekkar dýramyndir. Alt þetta
hafði mjög ill áhrif á Kirk, en þó fanst honum
að hánn langaði mest til að skellihlæja.
Kirk gat aldrei seinna munað, hvað það i
rauninni var, sem hann hafði talað um þetta
kvöld. Indíánastúlkan, sem hafði opnað dyrnar
fyrir honum, kom seinna inn í stofuna með
aldini á silfurbakka, og rétt á eftir sat Kirk
með disk í hnjánum, fullan af ananas fljótandi
í safa og vini, og auk þess hníf og pentdúk
og kökubita, sem molnaði allur sundur, ef
maður að eins leit á hann, og öllu þessu átti
Kirk að halda í jafnvægi á hnjákollunum. Letta
var mesta þrekvirki, en þó hepnaðist honum
að komast nokkurnveginn slysalaust út úr
þessari eldraun.
Er leið að þeim tíma, að hann þyrfti að fara
að halda heim aftur, vænti hann þess, að hann
fengi þó að segja fáein orð við Gertrudis að
skilnaði, en í þess stað var honum fylgt til
dyra jafn hátiðlega, eins og honum var fylgt
inn, og er hann var kominn aftur út undir
bert loft, var eins og steini væri létt af honum.
Pað var eins og væri hann nýsloppinn úr fang-
elsi; en er hann hugsaði tiljþess, hve meðaumkv-
unarfult Gertrudis hafði horft á hann, varð
hann þegar rólegur á ný. Hann gekk yfir torgið