Dagblað

Útgáva

Dagblað - 10.10.1925, Síða 1

Dagblað - 10.10.1925, Síða 1
Laugardag 10. október 1925. I. árgangur. 209. tölublað. ÝR FISKUR er af mörgum eftirsóttur matur og er al- ment talinn bæði góð og holl fæða. Hér á landi mætti búast við að hann væri önnur aðalfæða landsmanna og altaf auðfengin, en það er eitthvað annað en svo sé. í jafnmiklu fiskveri og Reykjavík er orðin, mætti ætla að altaf væri hægt að fá fisk eftir vild og að aðr- ar fæðutegundir væru hér ekki auðfengnari. En reynslan virðist vera öll önnur. — Oft er kvartað yfir því að erfitt sé að fá fiskfang til mat- ar og er það sízt að ástæðulausu, því oft er ekki hægt að fá hér nýjan fisk dögum saman. Sumar húsmæðurnar eiga marga heimangönguna í fiskleit, sem oft vill verða til lítils á- rangurs. Kemur það sér oft baga- iega að geta ekki fengið fisk til matar og þó helst um þann tima, sem kjöt er varla eða ekki fáanlegt. — Um þetta leyti árs er auðvitað hægt að fá nóg af kjötmeti, en það er sagt að mað- urinn lifi ekki á einu saman brauði og það er heldur ekki gott að lifa á kjöti eingöngu. Einhæfni í mat kunna flestir illa og er heldur ekki holl, og er því nauðsynlegt að geta feng- ið sem fiestar fæðutegundir af þeim, sem eru til verulegs mann- eldis. — Fiskleysið er bæjarbú- um mjög bagalegt og öll þörf á, að á því verði ráðin einhver bót. Það eykur ekkert framboð á fiski innan bæjar þótt botnvörp- ungunum fjölgi og þeir komi inn hver af öðrum hlaðnir fiski. Sá fiskur, sem hér er seldur nýr er annaðhvort veiddur á opna báta af þeim fáu sjálfbjargar- mönnum, sem ennþá stunda sjó- róðra, eða hann er sóttur í ver- stöðvarnar suður með sjó og ekið hingað á bifreiðum. Sá fiskur, sem þannig er að- íluttur er oft ekki nýr þegar hann kemur hingað til sölu og jafn- vel að hann sé farinn að skemm- ast að nokkrum mun. Pá er það einnig, að verðið á nýjum fiski er venjulega mjög hátt og mun meira en svarar verði á verkuð- um fiski á erlendum markaði. Þeir, sem hafa fisksöluna með höndum eru einráðir um verðið, en fólkið kaupir annaðhvort vegna nýnæmisins eða þess að ekki er annað að fá til matar. það kvarta sumir undan því að kjötverðið sé hátt, en samt er það svo, að margir telja betri kaup í því en fiskinum þegar verð á honum er eins hátt og raun er á. Ýmsar tilraunir hafa verið gerðar til að afla bæjarbúum nægilegs fiskjar, en misjafnlega hafa þær gefist. M. a. hefir bær- inn leigt botnvörpunga til fiski- veiða handa bæjarbúum, en sú útgerð hefir ekki borið sig. Einn- ig hófust verkalýðsfélögin eitt sinn handa með því að gera út mótorbát til fiskveiða, en sú út- gerð mishepnaðist algjörlega. En þótt þessar tilraunir hafi ekki borið æskilegan árangur, er samt sem áður ekki loku fyrir það skotið, að líkt fyrirkomulag geti gefist vel. — Víst er það, að eitthvað verð- ur að gera til að bæta úr fisk- leysinu og einnig, að sá fiskur, sem fáanlegur er, sé óskemdur og ekki seldur með okurverði. Geti ekki fisksalarnir bætt úr þessari bráðaþörf bæjarmanna, verða forráðamenn bæjarins að taka málið í sinar hendur og hlutast til um að því sé komið í viðunandi horf. — Messnr á morgnn. Dómkirkjan kl. 11 séra Friðrik Hallgrímsson og kl. 5 séra Bjarni Jóusson. Fríkirkjan kl. 2 séra Árni Sigurðs- son og kl 5 séra Haraldur Níelsson og Einar H. Kvaran rithöfundur. Landakotskirkja kl. 9 árd. hámessa og kl. 6 síðd. guðspjónusta með prédikun. Sjómannastofan kl. 6’ séra Arni Sigurðsson. Utan úr heimi. Khöfn, FB., 9. okt. ’25. Frá Locarno-lundinnm. Símað er frá Locarno, að al- ment sé álitið, að samkomulag muni nást um vesturlandamæri álfunnar. Frakkar halda því stöðugt fram, að Rjóðverjar verði að lofa því, að láta austurlanda- mærin óáreitt. Pólverjar og Tékkóslovakar styðja málstað Frakka og krefjast tryggingar fyrir öryggi sínu. Chamberlain hefir fastlega skorað á Luther að vinna að því, að Þýzkaland gangi i Alþjóðabandalagið. Khöfn, 10. okt. ’25. RÍ8avaxið loftskip. Símað er frá Washington, að ráðgert sé að byggja loftskip, er verði þrisvar sinnum stærra en Shenandoch, sem fórst á dögunum. Abd-el-Krim fhíinn. Símað er frá Fez: Samkvæmt áreiðanlegum fregnum hefir Abd- el-Krim flúið upp í fjöll ásamt bróður sinum. Alþjóðabandalagið og öryggis- málaráðstefnan. Eftir skeytum þeim að dæma, sem hingað hafa borist undap- farið, er það álit látið uppi af merkum mönnum úti um heim, að Alþjóðabandalagið sé tilneytt að fylgja fram hugsjón Genf- samþyktarinnar um afvopnun og gerðardóm, svo sem Stau- ning forsætisráðherra Dana lét ummælt við setning Ríkisþingsins á þriðjudaginn. — Var boðað til öryggisfundar í Locarno i Sviss 5. október. Setti stjórn Þýzkalands þau skilyrði um þátttöku í slíkum fundi, að alt setulið Bandamanna yrði tekið burt af Kölnsvæðinu og að rætt yrði um orsök styrjaldarinnar,

x

Dagblað

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblað
https://timarit.is/publication/605

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.