Dagblað - 12.10.1925, Page 1
Mánudag f' JÍ? I. árgangur.
lt oklöber t/v/T^/l /21
1925. AUrWWWM VrWV tölublað.
MESTU vandamálhverrarþjóð-
areru þau, sem að einhverju
leyti snerta uppeldi æsku-
lýðsins. Hátt við himinn sög-
unnar ber merki þeirra andans
manna, sem tóku að sér það
vandasama starf, að vekja og
glæða í hjörtum hinna ungu
þann neista er síðan varð að
bjórtum loga, sem lýsti þeim og
öðrum ófarinn æfiveg.
Enn í dag eru þeir í sannleika
sagt nýtustu mennirnir og þær
nýtustu konurnar, sem í kyrð
«g næði með festu og lipurð, en
umfram alt af góðum og hlýj-
um hug, gerast raerkisberar hvers-
konar menningar meðal æsku-
lýðsins. þær þjóðir, sem fremst-
ar hafa staðið á braut sannrar
menningar og hafa haft á að
skipa nýtum kennimönnum,
kennurum og postulum í and-
ans heimi, hafa einnig staðið í
fylkingarbrjósti verklegra fram-
fara, vísinda og lista. Þetta er
staðreynd, sem ekki verður á
móti mælt. En dýrkeyptur hefir
tíðum sá auður orðið, sem ekki
var látinn í askana í fyrstu, og
dýrkeypt sú, reynsla, sem að
lokum færði fjöldanum heim
sanninn um það, hve mikið vér
eigum þeim að þakka, sem fórn-
að hafa lífi sínu, — kröftum,
heilsu og hinum svokölluðu lífs-
þægindum í baráttunni fyrir þau
málefni, sem ein höfðu lífsgildi
og voru þeira heilagri en alt
annað. — Skóli lífsins stendur
öllum opinn, en skólagangan
reynist tíðum löng og ströng,
og þvi lengri, sem undirbúning-
urinn hefir verið lélegri. Og þótt
segja megi að sjálfmentaðir menn
hafi koraist langt margir hverir
og orðið nýtustu menn sumir,
þá mun enginn hafa fundið bet-
Ur til þess en þeir, hve miklu
ver þeir stóðu að vígi en hinir,
sem áttu kost góðrar mentunar
í æsku. — nú ý þessum síðustu
tímura er mjög mikið gert til
þess að menta börn og unglinga
á ýmsan hátt, einnig hér á landi.
Gömlu mennirnir segja, að ekki
verði þverfótað fyrir alskonar
skólum og að i unglingana sé
troðið alskonar lærdómi fram
undir tvítugs aldur, hvort sem
þeir séu færir um eða ekki, að
veiía honum viðtöku. Þannig
alist upp hópur miðlungsmanna
og þar fyrir neðan, — slæping-
ar, sem aldrei nenna að vinna
ærlegt handtak, né »hugsa ær-
lega hugsun«. —
Nokkuð kann að vera hæft í
þessu, og víst er um það, að
»öðruvisi mér áður brá«, þegar
alt var látið deyja drotni sínum,
sem ekki var fært um að lifa
hjálparlitið. Af þessu mentunar-
káki kann og að stafa allur sá
miðlungsbragur, sem svo víða
gætir í þjóðlífi voru. —
Kennarar þeir, sem þannig
gefa kost á sér til barna- og
unglingakenslu, eru sennilega á
misjöfnu menta- og þroskastigi.
Börn og unglingar, sem kenslu
njóta, skifta þúsundum, og er
því þörf margra kennara.
Þegar þannig er ástatt, að
eftirspurnin er meir en framboð-
ið, er hætt við að kennaravalið
verði ekki á marga fiska yfirleitt.
Og í þjóðfélagi, þar sem alt
er miðað við alin og vog og
flestir hugsa fyrst og fremst um
kaupið, verður kenslan einnig
verslunarvara, misjöfn að gæð-
um og illa úti látin stundhra.
Enginn efi er á þvi, að þótt
góðir kennarar sé hér innanum,
þá er of mikið af hinum, er
starfa með hangandi hendi fyrir
kaupi sínu. Þeir eru auðþektir
úr, sem með brennandi áhuga
vekja ást og virðing nemenda
sinna fyrir hinu góða, fagra og
sanna, enda þótt kjör þeirra og
kenslukaup sé þeim ósamboðið.
Væri ekki úr vegi að kenslu-
málastjórn landsins gerðí strang-
ar kröfur um mentaþroska og
hæfileika þeirra manna, sera
fást við kenslustörf i skólunum,
um leið og kjör þeirra væri
bætt, sem eiga það skilið.
Það er aldrei of vel vandað
til góðra kennara, því á herð-
um þeirra hvilir öðrum fremur
framtiðarheill þjóðarinnar.
Utan úr heimi.
Khöfn, FB., 10. okt. ’25.
Hljóðbylgjur frá hafsbotnl.
Kafari nokkur, sem vann á
hafsbotni skamt frá Helgolandi,
sendi frá sér Radiotilkynningar
um starf sitt þar niðri, og
heyrðust þær greinilega um alt
Vestur-Þýzkaland.
Frá Locarno-fundinmn.
Símað er frá Locarno, að al-
varlegt ósamkomulag ríki á fund-
inum. Stresemann hefir sagt í
viðtali við blaðamenn, að ástæð-
an fyrir því, að Þýzkaland krefj-
ist breytinga á 16. gr. í sáttmála
Alþjóðabandalagsins viðvíkjandi
samtökum gegn friðrofi sé sú,
að Þýzkaland sé næstum her-
laust land.
Fascistar og frímúrarar.
Sfmað er frá Florenc, að Fas-
cistar hafi drepið 4 frímúra vegna
þess að þeir héldu áfram félags-
akap þrátt fyrir bann Musso i
Abd-el-Erim ekki ilúinn.
Simað er frá Parfs, að fregn-
in um flótta Abd-el-Krims sé
nú álitin ósönn.
Khöfn, 11. okt. ’25.
Lloyd George og landbúnaður
Englands.
Simað er frá London, að
Lloyd George hafi byrjað fyrir-
lestraferð um gervalt landið, til
þess að vinna að umbótum í
landbúnaði og hentugra fyrir-
komulagi landbúnaðarmálanna.
ViII hann láta skífta öllum
stórum jörðum í margar smáar,
m. a. í þeim tilgangi að sporpa
við atvinnuleysi.