Dagblað

Útgáva

Dagblað - 14.10.1925, Síða 1

Dagblað - 14.10.1925, Síða 1
Miðuikudag 14. október 1925. I. árqanqur. 212. tölublað. agBlaé RIÐJUNGUR annarar aldar er liðinn frá því að synda- flóð það, sem Hiöðver fimt- ándi boðaði, velti einveldinu úr sessi. Blóð stjórnarbyltingarinn- ar miklu flæddi yfir gróðurlaus lönd og veitti jarðveginum frjó- efni frelsisins. Okinu var aflétt. Allir urðu jafnir fyrir lögunum. En ekkert er nýtt undir sólunni. Stjórnskipulag það, sem nú komst á í Norðurálfu, bafði áð- ur verið með fullu fjöri í hinu forna Grikklandi. Á átjándu öld- inni var það andans gull grafið upp, er eitt sinn var undirstaða frelsis og framfara í hinum forn- grísku lýðríkjum. Stjórnarfyrir- komulag Aþenuborgar var fyrir- myndin. Svo mikið dálæti höfðu menn á fornöldinni, að frakk- nesku frelsishetjurnar tóku sér grísk og rómversk nöfn. t>vi hefir réttilega verið hald- ið fram, að menning Evrópu eigi sér rætur í fornöld Grikkja. Á það ekki aðeins við um listir og vísindi. Stjórnmálin eru þar með talin. Sama gildir ísland, hið lýðfrjálsa land til forna, sem Grikkland. Par stóð vagga frelsis þess, er síðar leið undir lok. — Af því sem á undan er farið grípur mann ós^jálfrátt sú hugsun, að hið sama kunni nú að verða hinu lýðfrjálsa skipu- lagi að fjörlesti sem áður. Lýð- frjálsu ríkin til forna liðu undir lok. Þeim var áskapaður aldur. Einveldið tók við. Harðstjór- arnir lögðu fjötur þann á þjóð- irnar, er mörgum öldum síðar varð eingöngu leystur með bylt- ing og blóði. Hvað tekur svo við, þegar hin lýðfrjálsu ríki, sem nú eru *»Ppi, kollvarpa því stjórnarfari, sem nú er ríkjandi? Eða hefir nokkur trú á því, að slíkt á- stand sem nú er haldist öldum saman? — Reynsla fortiðarinn- ar varpar ljósi yfir framtiðina. Lýðfrjálsu ríkin í Grikklandi ^rðu skattlönd Makedoniu. Kon- Un8Ur þeirra varð einvaldur. Og rómverska lýðveldið varð keis- aradæmi, sem breiddi einveldis- arma sína um löndin alt i kringum Miðjarðárhaf, eða all- an hinn mentaða heim þeirra tíma. — Þvi hefir verið haldið frara af sumum, að orsök þess að lýðríkin urðu undir sé sú, að þjóðirnar sendu ekki fulltrúa á þing. Borgararnir tóku sjálfir beinan þátt í stjórn og laga- skipun landsins. Fór þá tiðum svo, að lítill hópur manna, sem kom til þings, réði lögum og lofum. Nú eru sendir fulltrúar til þinga í öllum lýðfrjálsum löndum. Er nú tekið frekar til- lit til heildarinnar. Óskir og þarfir allra landsmanna eru frekar teknar til greina. Sannleikurinn er sá, að í raun réttri voru það ekki borgararnir, sem stjórnuðu landinu til forna. Þeir komu að vísu saman á torgum og samþyktu lögin með uppréttum höndum. En þeir sem stjórnuðu, voru íáeinir menn, er með mælsku sinni höfðu unnið sér traust borgar- anna. Að vísu hafði hinn frjálsi lýður fengið þeim valdið í hend- ur, og þess vegna var þeim skylt að fylgja fram málum þeim, er borgararnir vildu að fram næði að ganga. Lýðurinn hallaðist svo eindregið að þeim, sem lofuðu mestu. En þarna er sennilega fólgin orsök þess að lýðríkin urðu að þoka fyrir einveldinu. Málagarparnir áttu að sækja völd sín og metorð í hendur borgaranna, og fóru því oft og einatt óhyggilega að ráði sínu, leiddu rikið i ógöngur af ótta við atkvæðamissi. En viti mennl Hið sama er uppi á teningnum enn í dag. Þingræðinu er það ofvaxið að marka hollar og réttlátar stjórn- málastefnur, sem haldi saman og uppi hinum einstöku rikis- heildum. Hverir fara með völd- in? Fámennur flokkur manna. Borgararnir láta sér nægja að greiða atkvæði, — Ef þeir fá skömm á pólitísku flokkunum og greiða atkvæði eftir eigin sannfæringu, en utan við alla flokka, þó kveður við úr öllum áttum hrópið alkunna: Fylgirðu ekki flokk er atkvæði þitt ónýtt. t>að er sama sem að þú greiðir ekki atkvæði. Hver er þá munurinn á for- tíð og nútíð? Á lýðstjórnarkerfið, þingræðissælan, sem nú situr í hásæti, lengra Iíf fyrir höndum en lýðríkisstjórnin til forna? Rís ekki önnur alda sterkari og á hina ofan, eins og áður? Eða rennur upp öld hinnar sönnu menningar, sem gerir mennina yfirleitt að sjálfstæðum hugsandi verum, sem með at- kvæðum sínum fá þeim einum völdin í hendur, sem eingöngu láta heill og fremd land síns ráða gerðum sínum en selja ekki sjálfa sig með húð og hári og hestbyrði af fölskum loforð- um. — Framtíðin sker úr. Utan úr heimi. Khöfn, FB., 13. okt. ’25. Kommúnistavorkfallið í París. Símað er frá París, að ekkert hafi orðið af verkfalli kommún- ista. Aðeins fáeinir hættu starfi sínu. Lögreglan var viðbúin í gærkvöldi. Hófst þá handalög- mál milli lögreglumanna og kommúnista, er hinir síðarnefndu reyndu til að stöðva sporvagna. Kommúnisti einn hóf skothríð, en lögreglumennirnir svöruðu í sömu mynt. Margir særðust, en örfáir biðu bana. Harokkóstríðinu lokið? Sfmað er frá Madrid, að Rivera sé kominn aftur frá Marokkó. Fullyrðir hann að striðinu sé í raun og veru lokið. Riffmenn hafi allsstaðar verið algjörlega gerðir afrurreka.

x

Dagblað

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblað
https://timarit.is/publication/605

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.