Dagblað - 17.10.1925, Blaðsíða 1
Laugardag I. árgangur.
17. október T/J fí h //Ti^ 215
1925. /msr WWWS W tölublað.
GÖTULÍFIÐ hér í bænum er
orðið ærið görótt, og margt
gaman sem þar á sér stað,
nokkuð gráleitt viðhorfs.
Pað má heita alvanalegt nú
orðið, að fólk fær ekki að ganga
óáreitt eftir götunum, sérstak-
lega á kvöldin, og er það þó
einkum kvenfólk, sem fyrir á-
reitninni verður. Eins og við er
að búast, eru það druknir menn,
sem mest gera að götuspjöllum,
og eru þeir vanalega verstir við-
fangs. En það eru fleiri en þeir,
sem haga sér ósæmilega á göt-
unum, og eru stálpaðir drengir
og unglingar oft litlu betri en
fylliraftarnir. Framferði margra
unglinga hér í bæ er mjög víta-
vert, og lýsir bæði lélegu upp-
eldi og engri tilfinningu fyrir
almennu velsæmi. Þeir þykjast
jafnvel mestir, sem flest stráka-
pörin hafa í frammi og skara
fram úr öðrnm í óknyltum og
ýmsu ósæmilegu hátterni. Sér-
staklega er ýmisleg áreitni við
kvenfólk mjög algeng, og með
því ljótasta sem hér er haft í
frammi. Úr því kvölda tekur
getur kvenfólk ekki farið óhult
leiðar sinnar, og það jafnvel
eftir aðalgötum bæjarins. Er
þess styzt að minnast, að um
síðustu helgi ætlaði maður að
frelsa kvenmann frá áleitni ölv-
aðs manns, en var þá sam-
stundis sleginn í rot af öðrum
manni, sem að því er virtist
var lítið eða ekkert drukkinn.
Og þetta gerðist á Laugavegin-
um snemma kvölds. Hvers mun
þá mega vænta á fáfarnari göt-
unum og þegar áliðnara er orðið?
Yfirleitt taka menn þvi nijög
illa, ef nokkuð er amast við
ósæmilegu framferði þeirra, og
á sá, er hættir á það, ekkert
eins víst og hnefahögg og heila
dembu af skömmum og verstu
fúkyrðum. Þetla sýnir mjög ó-
heilbrgt bæjarlíf og algert ör-
Þrot á velsæmistilfinningu manna,
°8 er því ekki að ástæðulausu,
þótt þetta veki alvarlegar um-
hugsanir. — Einhver úrræði verð-
ur að finna til þess að ráða
bót á þessum bæjarósóma, en
þau munu ekki vera auðfundin,
og enn síður örugg til viðun-
audi úrlausnar, meðan almenn-
ingsálitið er eins og það er nú.
í þessu sambandi er rétt að
geta þess, að alt of lítið virðist
bera á eftirliti lögregluþjónanna
um framferði manna á almanna-
færi. Eins margir og þeir eru,
virðast þeir furðu sjaldséðir, og
eiga ýmislegar óspektir sér oft
stað án þess lögregluþjónar séu
nokkursstaðar sjáanlegir. Ber
jafnvel minna á eftirliti þeirra
nú, en meðan þeir voru færri,
og skýtur það óneitanlega nokk-
uð skökku við. Gera má ráð
fyrir að þeir fari eftir þeim fyr-
irmælum, •sem þeim eru sett, en
litillar röggsemi virðist gæta um
stjórn þeirra, og eins og nú
er komið, er fátt nauðsynlegra
en að lögreglueftirlitið sé skerpt
að miklum mun. — Verður nán-
ár vikið að þessu i næsta blaði.
Utan úr heimi.
Khöfn, FB., 16. okt. '25.
Friðarhorfor.
Símað er frá London, að ræst
hafi framar öllum vonum úr
öryggismálinu. Að enduðum sam-
eiginlegum fundi í gær var op-
inberlega tilkynt, að allir aðiljar
hafi samþykt i einu hljóði að
gera uppkast aö öryggissamn-
ingi um vesturlandamæri milli
Þýzkalands anuarsvegar og Belg-
íu og Frakklands hinsvegar og
skal gerðardópiur skera úr öll-
um meiri háttar miskliðum.
Ennfremur mun það vera á góð-
um vegi að koma á gerðardómi,
er úrskurði í málum, er snerta
Pýskaland annarsvegar og Pól-
land og Tekkoslovakiu hinsveg-
ar. Chamberlain fullyrðir, að
þetta sé þýðingarmesti fundur-
inn, sem haldinn hefir verið
síðan styrjöldinni lauk. Og nú
séu ófriðarskýin að hverfa af
framtíðarhimni Evrópu.
Samkvæmt símfregnum frá
Berlín, Paris og London fagna
allir einhuga náðum árangri.
Frá bæjarstjórnaríuDdL
Olíngeymsla í Örflrisey. Brit-
ish Petroleum Co. Ltd. hefir sótt
um að fá leigðan nokkurn hluta
Örfiriseyjar, eða jafnvel alla
eyjuna, til olíugeymslu og ætlar
félagið þá að koma þar upp
olíugeymum, og er ætlast til að
leigutiminn verði fyrst um sinn
bundinn við eitt ár.
Hafnarnefnd hefir haft þessa
umsókn til athugunar á 2 fund-
um og hefir hún ákveðið að
svara henni á þá leið, að hún
mundi fáanleg til að leigja fé-
laginu hluta af eynni til steinolíu-
geymslu, ef samkomulag verður
um leigu og aðra skilmála.
Nokkrar umræður urðu um
þelta á bæjarstjórnarfundinum
en engin ályktun var þar tekin,
enda er málið ekki svo langt
komið að það væri tímabært.
Gunnl. Cleessen hóf umræður
og taldi æskilegra að innlendir
menn hefðu umráð yfir Örfiris-
ey heldur en útlent félag og helzt
hefði hann kosið að eyjan hefði
getað orðið skemtistaður fyrir
bæjarbúa, eins og sumir hefðu
látið sig dreyma um, en til þess
mundi hún vera talin altof dýr.
En ef leigja ætti hana til þessa
atvinnureksturs væri nauðsyn-
legt að fleirum gæfist kostur. á
að fá þar leiguréttindi og þá
fyrst og fremst innlendum mönn-
um og mætti hafnarnefnd ekki
binda eyjuna svo, að þeir yrði
útilokaðir frá afnotum hennar.