Dagblað - 19.10.1925, Side 1
ÁFSKIFTALEYSIÐ um allar
athafnir manna, sem koma
í bág við löghelgað eða sið-
bundið hátterni, er það sem
mestu veldur um ósæmilegt
framferði manna á almannafæri.
Hver og einn fær að miklu leyti
að láta eins og hann vill, án
þess það sé átalið af nokkrum,
og þó sízt af þeim, sem helzt
ættu að gæta viðunandi reglu
og sæmilegrar háttsemi manna.
Druknir menn reika óátalið eftir
götunum með hávaða og ýmis-
legar óspektir, að ótalinni áreitni
þeirra á saklausa vegfarendur,
og þó einkum kvenfólkið. Mjög
alvanalegt er að heyra söng og
háreysti að næturlagi, til mik-
illa óþæginda fyrir þá, sem eru
svo ólánsamir að þurfa fremur
að sofa um nætur en aðra tíma
sólarhringsins, og eru það ekki
eingöngu ölvaðir menn, sem eru
háværastir á næturnar, heldur
einnig drengir á ýmsum aldri,
sem eyða of miklum líma af
æsku sinni í göturangl í ýmis-
legum félagsskap. Einnig má
viða sjá drengjahópa í ýmsum
fyrirferðarmiklum leikjum á að-
algötum bæjarins, og það fram
eftir öllum kvöldum, og verður
ekki séð, að neitt sé amast við
því, að gera göturnar að slíkum
leikvangi.
Skorturinn á eftirlitinu er al-
staðar auðsær, og hljóta allir
að viðurkenna, að svo megi ekki
vera framvcgis, ef allur menn-
ingarbragur á ekki að hverfa af
framterði manna hér í höfuð-
stað landsins. Það er lítt skilj-
anlegt, að eins margir lögreglu-
þjónar og hér eru nú, skuli ekki
geta haft meira eftirlit um hvern-
ig menn haga sér og tekið rösk-
lega í taumana, þar sem þörf
er þegar þetta er athugað,
hlýtur sú spurning að koma
fram, hvort stjórn lögreglueftir-
litsins sé ekki í einhverju töluverðu
ábótavant. Víst er um það, að
yfirtnenn lögreglunnar sjást sjald-
an á ferli, þar sem eitthvað er
um að vera, og þykir gott að sjá
þar lögregluþjón, en margir ó-
knyttir og uppþot eiga sér stað,
án þess lögreglan viti þar nokk-
uð um. — Þegar Halldór heitinn
Daníelsson var hér bæjarfógeti,
var hann oftast á ferli úti um
allan bæ, og ef eitthvað bar út
af einhversstaðar, var hann óð-
era kominn þangað, engu síður
en lögregluþjónarnir,. sem þá
voru aðeins tveir. Og yfirleitt
gaf hann nákvæmar gætur að
öllu sem fram fór, og gætti þess
stranglega, að öllum fyrirmæl-
um gildandi laga um frámferði
manna væri stranglega fylgt. Nú
virðist þetta vera nokkuð á annan
veg, og sízt breyzt í betra horf.
Það er óhjákvæmilcgt, að lög-
reglueftirlitið verðri að aukast
að miklum mun. Þarf fyrst að
athuga, hvort stjórn þeirra mála
sé i svo góðu lagi sem nauð-
synlegt sé, og reynist svo, að
lögregluþjónarnir sem til eru,
geti ekki aíkastað meira eftirliti
en þeir gera nú, verður að fjölga
þeim svo nægilegt sé, því þetta
ríkjandi ástand er að öllu leyti
óviðunandi til frambúðar. Er
enginn efi á því, að framferði
manna á almannafæri yrði mikl-
mörgu betra, ef eftirlitið í
skerpt að miklum mun og meiri
röggsemi sýnd í öllu því, sem
þar að lýtur.
Frú lelp Proppé
móðir þeirra Proppé-systkina lézt
hér i bænum á laugardaginn.
Hún var mjög merk kona og
vel látin og öllum kær, sem kynt-
ust henni. Hún var komin á
áttræðisaldur.
Utan úr heimi.
Iíhöfn, FB., 17. okt. ’25.
Harður vetur í aðsígll
Símað er frá Stokkhólmi, að
harður vetur sé þegar genginn í
garð. Fólk skemtir sér á sleðum
og skfðum. Stórhríð skall á um
Austursjóinn. Mörg skip fórust
og margir menn druknuðu.
Frá Locaruofundinum.
Samningar undirskrifaðir.
Símað er frá Locarno, að upp-
kastið að öryggissamningnum
hafi verið undirskrifað i gær-
kvöldi. — Ákafleg hrifning með-
al aðilja og bróðurhugur.
Tilkynning um undirskriftirn-
ar var þegar hraðsímuð um all-
an heim á svipstundu. Samn-
ingarnir verða bráðlega birtir op-
inberlega. Verða þeir lagðir fyrir
þing allra aðilja, til endanlegrar
samþyktar (ratifikation).
Merkur málari látinu.
Simað er frá Osló, aö málar-
inn Kristian Krogh, hafi látist í
gær.
Þýzkaland og þjóðbandalaglð.
Símað er frá Genf, að fram-
kvæmdaráð Alþjóðabandalagsins
komi saman 7. des. n. k., til þess
að ræða um upptöku Pýzka-
lands. Sennilegt er að upptakan
fari fram á aukafundi þ. 15. des.
T'illiynnin g-
í ríi sendiherra Dana.
Rvik., FB. 15. okt. ’25.
Fréttir nm saltflsksmarkað.
Vikuna fyrir 10 október bárust
utanríkisstjórninni þessar fregnir:
Barcelona: Útflutningur frá ís-
landi 30 smálestir, en fyrir voru
4—500 smál. Verð 88—90 pes-
etar fyrir hver 40 kg.