Dagblað

Útgáva

Dagblað - 07.11.1925, Síða 1

Dagblað - 07.11.1925, Síða 1
EKKI er nú talaö um annað meira en kyrstööu botnvörp- unganna og er það sízt að ástæðulausu, þar sem hvorki er um meira né minna að ræða en algjöra stöðvun annars að- alatvinnuvegs landsmanna. Verð- ur ekki með tölum talinn sá þjóðarskaði, sem af því hlytist ef svo yrði lengi, og afleiðingar þess gætu orðið mjög alvarlegar og margþættar. — Lítið væri um það að segja þótt nokkurt hlé yrði á botn- vörpungaveiðunum, einhvern á- kveðinn hluta ársins, og væri jafnvel öllum fyrir beztu, að þeir væri ekki að veiðum svo sem einn mánuð í mesta skammdeg- inu. Á þeim tíma árs er jafnan illra veðra von, og er engin sældarstaða að vera að jafnaði úti á regin hafi í misjöfnu veðri, meðan dagar eru styztir, en nætur lengslar. Vinnan á botnvörpungunum er líka þannig, að sjómönnun- um er full þörf á einhverri hvíld og getur það varla minna verið en einn mánuður, svo komið geti að nokkru gagni. Eru sjó- menn, öðrum fremur velkomnir að þeirri hvíld, þegar litið er á það erflði, sem þeir leggja á sig og þann feng er þeir færa að iandi. Er merkilegt, að fyr skuli ekki hafa verið rætt um þessa hlutarbót sjómannanna, eins sanngjörn og húu er og ætti að mega vænta þess, að hún gæti komist á með fullu samkomu- íagi allra aðilja. Ea starfshlé horfir öðruvísi við þegar um verkfall vegna ó- samkomulags er að ræða, eins og nú á sér stað. Þá er hætta á ferðum og vá fyrir allra dyr- ttm, Mun flestum vera ljóst hverj- ar afleiðingar slíkt getur haft ef Það helst til lengdar, og þarf *>vi að gera alt, sem hægt er til samkomulag náist. ^fnmikil hagsmunamál og ttm ræðir, eru altat* viðkvæm °S þarf lítid til að upp úr sjóði, svo óvild og æsing komi í stað rólegrar yfirvegunar og tilrauna til samkomulags. Er því illa far- ið að gera þetta að pólitisku æsingamáli, og gæti farið svo, að þeir, sem að því stuðla veitt- ist erfitt að bera ábyrgð þeirra afleiðinga, sem úlfbúðin getur orsakað. — Eftir framkomu blaðanna fyrst í stað, mátti vænta, að þau ætiuðu að fara gætilega í sakirnar og forðast allar ýfingar. En nú virðist ann- að ætla að verða uppi á ten- ingnum, því bæði Morgunblaðið og Alþýðublaðið hafa skrifað mjög ógætilega um málið og misnotað þannig aðstöðu sína til hlutdeildar. Bæði hafa þau gert tilraun til að hleypa hita í umræðurnar, og eru þá um leið gerðar erfiðari allar leiðir til samkomulags. Pyrfti þau bæði að gæta meiri varfærni framvegis þegar mikið liggur við, og forð- ast persónulegar ýfingar að á- stæðulausu. Dagblaðið lítur svo á, að kaup sjómanna megi ekki hækka, heldur verði það að lækka litið eitt, samfara annari verðlækkun. Er aðeins álitamál hvað það ætti að vera mikið, en miklu má það ekki muna enn sem komið er. Þetta er fyrst og fremst samningsatriði, sem samkomu- lag ætti að nást um á friðsam- an hátt. En um leið og kaup hásetanna lækkar^ verður kaup yfirmannanna einnig að lækka hlutfallslega. — Mismunurinn á kaupi háseta og yfirmanna á botnvörpuskip- unum hefir verið geypilega rnikill, og er það í fylsta máta ósanngjarnt, að eingöngu þeir, sem erfiðast hafa beri skarðan hlut frá borði og hlýtur slíkt misrétti altaf að valda nokkurri óánægju og úllbúð. — En um fram alt verðurað ráða þessu al- vörumáli til lykta sem fyrst, og er vonandi, að ekki verði langt að bíða viðunandi úrslita. Utan úr heimi. Khöfn, FB., 6. nóv. ’25. Jafnaðarmenn í Englandi. Símað er frá London, að í nýafstöðnum sveita- og bæjar- stjórnarkosningum, hafi jafnað- armenn unnið 132 fuiltrúasæti. Frá Harokkó. Símað er frá Madrid, að heyrst hafi, að Abd-el-Krim hafi sent mann á fund Frakka og Spán- verja raeð friðartilboð. — Marok- kóstriðið er alls ekki búið. Að- eins hlé vegna rigninga. Fylgi Painleve þverrandi. Símað er frá París, að aðstaða Painleve fari hríðversnandi og er álit manna, að Briand verði eflirmaður hans. Anstarríska embættismanna- verkfaliinn lokið. Símað er frá Vínarborg, að verkfallinu sé lokið. Painleve fastari í settsi. Simað er frá Paris, að Social- istar hafi breytt áformi sínu og styðji meiri hluti þeirra Painleve áfram. Efiirmaðnr Frnnze. Simað er frá Moskwa, að Unschlicht sé orðinn eftirraaður Frunze en ekki Trotsky. Samsæri gegn Hnssolini. Simað er frá Rómaborg, að iögreglan hafi komist á snoðir um, að samtök hetði verið gerð til þess að myrða Musso- ltni. Lögreglan réðist inn í bústað samsærismanna og hand- samaði foringjann, jafnaðar- mannaþingmanninn Zanibeni. Musselini hefir skipað svo fyrir, að leysa skuli upp flokk jafn- aðarmanna í hefndarsKyni. í kvöld er haldin gleðihátíð um gervalla Ítalíu i tilefni af því, að upp komst um samtökin í tæka tið.

x

Dagblað

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblað
https://timarit.is/publication/605

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.