Dagblað - 16.11.1925, Síða 1
STÖÐVUN fiskiflotans er mörg-
um manni áhyggjuefni. Ber
þar að sama brunni og fyr.
Kaupgjald háseta er deiluatriðið.
Nýir samningar eru á döfinni
og skipunum er lagt upp þar til
samkomulag næst. Tilboð eru
gefin af félagi útgerðarmanna
fyrir þeirra hönd. Kröfur fram
bornar af stjórn Sjómannafélags
Reykjavíkur frá meðlimum fél.
Reynt er að miðla málum af
útnefndum sáttasemjara. Hann
leggur til málanna svo sem hann
hefir bezt vit á. — Til grund-
vallar er lagt það lágmarkskaup,
sem undanfarið hefir giltalment
og síðan tekið tillit til hækkun-
ar íslenzku krónunnar og meðal-
verðfalls nauðsynja. Gengið er
til atkvæða meðal sjómanna,
bæði í félagi þeirra og á skip-
um úti. — Annar aðilinn —
útgerðarmenn — fallast á til-
iögu sáttasemjara, en samtalinn
meiri hluti sjómanna neitar
sættinni. — Eftir að flest skip-
in voru komin inn, er á ný leit-
að samkomulags. í þetta sinn
eru svo margir á fundi í Sjó-
mannafélaginu, sem húsrúm
leyfir og verða ýmsir frá að
hverfa. Að atkvæðagreiðslu lok-
inni eru uppi Iátin atkvæðin:
167 á móti og 145 með. Gizkað
á að um 200 hafi ekki greitt
atkvæði. Er nú beðið eftir hver
úrslit verða atkvæðagreiðslu sjó-
Qiannafélaga í Hafnarfirði, sem
^úist er við í dag. Mun mjög
uödir þeim komið, hver endir á
þessu vandamáli verður.
þegar bornar eru saman fyrri
atkvæðagreiðslurnar og hinar
síðari. er munurinn þessi:
í fyrra sinnið eru atkvæði
greidd í sjómannafélögunum og
a skipum úti — atkvæðin send
sÍQUeiðis. í síðara sinnið eru
atkvæði greidd á fundum.
^ fyrra sinnið eru stjórnir
Sjóiuannafélagsins mótfallnar til-
'öguttv sáttasemjara. í síðara
sionið meðmæltar. Rær finna,
5X0 setö eðlilegt er til ábyrgðar
þeirrar, er á þeim hvílir, ef neit-
að er sættum á ný. Búast má
við, að þetta verði síðustu sátta-
boð, útgerðarmenn láti skip sín
liggja framundir vertíðarbyrjun
ef ekki næst samkomulag á þess-
um grundvelli. — Þeir hafa ráð
á því. — Framundan ekki svo
glæsilegar aflavonir í há skamm-
deginu. — En fjölskyldumaður-
inn hefir ekki ráð á 10 vikna
atvinnumissi.
Ungir einhleypingar, sumir
þeirra sveitapiltar, vanir öllum
sparnaði, er hafa haft drjúgan
afgang undanfarin misseri láta
sér -á sama standa um nokk-
urra vikna hlé. Þeir eru líka
fleygir og færir og geta leitað
sér atvinnu hvar sem hún býðst.
En heimilisfaðirinn, sem hefir
fyrir mörgum börnum að sjá,
verður — þrátt fyrir alt, að
sætta sig við verri kjör en hann
hefði óskað eftir. —
Svo er á eitt að líta. Láns-
traust landsins og landsmanna
yfirleitt útávið, gæti beðið hnekki
við stöðvun útgerðarinnar. Gæti
þá seinni villan orðið argari
hinni fyrri.
Ber því alt að sama brunni, að
mjög er nauðsynlegt að sam-
komulag náist, því með því eina
móti verður verulegum vand-
ræðum afstýrt.
Utan úr heimi.
Khöfn, FB., 13. nóv. ’25.
Ritfrolsi takmarkað.
Símað er frá Rómaborg, að
ritfrelsi blaða og andstæðinga
(stjórnarinnar) hafi verið tak-
markað meira en nokkru sinni
áður. —
Katbátnr hverfnr.
Símað er frá London, að kaf-
bátur hafi »sökt sér« fyrir strönd-
inni á Devonshire og ekki kom-
ist upp aftur. Skipshöfn 60 mans.
ítalir semja um sknlðir.
Símað er frá Washington, að
samkomulag hafi náðst við ítali
um afborgun skulda þeirra.
ítalir viðurkenna, að þeir
skuldi 2042 miljónir dollara. Af-
borgunarkjör ókunn.
Nobeisverðlaun í eðiistræði.
Símað er frá Stockhólmi, að
Nobelsverðlaun í eðlisfræði fyrir
1924 hafi verið veitt prófessor
Nanne Siegbahn í Uppsölum
fyrir Röntgenspektróskopiskar
uppgötvanir. Engin bókmenta-
verðlaun eru veitt í þetta sinn.
Morðtilraunin við Mussolini
Simað er frá Rómaborg, að
uppvís sje, að fyrirhuguð morð-
tilraun við Mussolini, hafi að
eins átt að vera byrjun til upp-
reistar gegn Fascistum. Að baki
stóðu Socialistar franskir(?) og
ítalskir frimúrarar. Frá Berlin
er símað Ítalíufregnirnar um
morðtilraunina sjeu sumpart
upplogið bragð Fascista.
Ummæli Hindenburgs um Lo-
carnofundinn.
Simað er frá Berlín, að Hind-
enburg hafi haldið ræður víðs-
vegar og farið lofsorðum í þeim
öllum um árangurinn af Lo-
carnofundinum.
Ofbeldlsstjórn Spánverja
illa liðin.
Simað er frá Madrid, að fjöldi
hershöfðingja haíi verið hand-
samaðir. Höfðu þeir gert sam-
tök til þess að steypa ofbeldis-
stjórninni af stóli.
Kafbáturinn sem sökk.
Símað er frá London, að nú
sje algerlega vonlaust um að
takist að bjarga skipshöfninni
af kafbátnum (69 mönnum).
Hefir ekki tekist að komast að
hvar á hafsbotni skipið er.
Fjármái Frakka.
Simað er frá Paris, að Pain-