Dagblað - 17.11.1925, Page 1
ISLENZKUR iðnaður hefir tek-
ið miklum framförum á sið-
ustu árum, þótt enn sé hann
að flestu leyti á byrjunarstigi.
Til skamms tfma þektist varla
annar hérlendur iðnaður en
heimilisiðnaðurinn gamli, prjón-
les og vefnaður, en mikið hafði
honum samt farið aftur frá því
hann var í blóma sínum, og þó
einkutn vefnaðinum. Á hnign-
unartíma þjóðarinnar hrakaði
heimilisiðnaðinum eins og öðru,
sem var þjóðlegt og innlent, og
reyndist þar, eins og oftar, hægri
leiðin niður á við en upp á
móti. Er það fyrst nú á allra
siðustu árum, að honum hefir
þokað nokkuð upp á við og
virðist loks sú sókn vera hafin,
sem miklu geti áorkað til efling-
ar heimilisiðnaðinum. Er þar
mest að þakka Heimilisiðnaðar-
félagi íslands, en einnig mikið
öðrum mönnum, því óviðkom-
andi, sem brýDt hafa fyrir fólki
gagnsemi heimilisiðnaðarirís og
eggjað lögeggjan til meiri alhafna
og framtakssemi á þessu sviði.
Menn eru líka betur útbúnir
að ýmsum vinntækjum en áður
var, og hafa meiri þekkingu til
brunns að bera um flesta hluti
og svo getur reynzlan einnig
lengi kent, og er haldbezti
skólinn. —
Árangurinn af framsækninni
í iðnaðarmálunum og raunbeztu
framkvæmdunum er strax orð-
inn auðsær og virðist nú augu
almennings hafa opnast fyrir
nytsemi þessarar þjóðlegu sjálf-
bjargarviðleilni einstaklingsins.
Auðvitað er hér í mörgu ábóta-
vant ennþá, en þó einkum í
vandvirkni og hagkvæmni, en
búast má við að það breytist
til batnaðar með meiri reynzlu
og vaxandi samkepni, og er
ekki ástæða tii að gera mikið
úr, þótt eitthvað mistakist við
fyrstu tilraunir.
t*að eru margir áfangar á
hverri leið lil fullkómnunar, og
^kki að búast við, að alt sé feng-
ið með einu átaki. Á það ekki
sízt við um hinar ólíku iðnað-
argreinar og má þar lengi laga
og umbæta, unz náð er beztum
árangri. — Tímarnir breytast
og raennirnir með, og eftir því
verður aðjhaga sér, ef menn vilja
ekki dragast aftur úr í fram-
hlaupi tímans og daga siðan
uppi, sem lífvana steindrangar
löngu liðinnar menningar.
Listasmekkurinn breytist og
kröfurnar um útlit og hagkvæmni
verða aðrar og ákveðnari. Á það
ekki sízt við i iðnaði, að lúta
verður kröfum samtímans og
eftir þeirri óhjákvæmilegu st^ið-
reynd verður að fara að mestu
leyti. En samt má í mörgu halda
við þjóðlegum stíl og sérkenn-
um heimaiðnaðarins og er þar
vandinn mestur að samræma
hann breyttum þörfum og ríkj-
andi tízku, við hin upphaflegu
einkenni og þjóðlega gildi.
íslenzkur iðnaður hefir i mörgu
ekki fylgst með kröfum samtim-
ans né fullnægt þörfum almenn-
ings, og hefir slæm aðstaða og
ófullkomnar vinnuaðferðir þar
mestu um valdið.
En eftir þeim framkvæmd-
um, sem gerðar hafa verið á
siðustu árum, í mörgum iðnað-
argreinum, virðist mega vænta
betri úrlausnar og að við getum
í ýmsu vetið sjálfum okkur
nógir, þar sem við þurfum áður
að sækja alt til annara. Heilla-
drjúg átök og virðingarverð
framtakssemi hefir þar verið
sýnd af mörgum og fjölgar nú
altaf íslenzkum iðnfyrirtækjum,
sem vænta má af góðs árangurs.
En við mörgu er óhreyft enn,
sem gera þarf á þessu sviði, því
— betur má ef duga skal.
1.
Haniiyrðftkenslft fyrir börn og
unglinga veröur haldin hér í vetur
aö tilhlutun Barnavinafél. »Sumar-
gjöf«. Er mikil þörf á meiri kenslu
í liandaviunu, en barnaskólinn get-
ur í té látið.
Innlend tíðindi.
Vestm.eyjum, FB., 16. nóv. ’25.
Nýir vitar.
Vitamálastjórnin hefir nýlega
Iokið við að setja hér upp tvo
vita. Annar er Urðavitinn, er
sjómenn þráðu' mjög mikið.
Stendur hann við sjó, norð-
austur af Helgafelli. Ilinn vitinn
var settur á syðri hafnargarð-
inn. Báðir eru vitar þessir mjög
nauðsynlegir, og ber þeim þakk-
ir, er stuðlað hafa að þvi, að
vitar þessir voru settir upp.
— Fjárhagsáætlun Vestm.eyja-
bæjar næsta ár: 265,745 kr.
Spítalinn kominn undir þak.
Veglegt fangahús hefir verið
reist hér, ásamt brunastöð.
FB., 16. nóv. ’2i.
Veiðibjallan ströndnð.
Samkvæmt upplýsingum frá
skrifstofu hf. Trolle & Rothe
hefir Veiðibjallan strandað á
Breiðamerkursandi, líkl. á laug-
ardaginn. Skipshöfnin bjargað-
ist. Engin von er um, að skip-
inu eða neinu úr því verði
bjargað. Veiðibjallan var á leið
frá Danmörku með ýmsar vör-
ur, cement, oliu o. fl.
— þýzki togarinn Fritzbuer.
sen nýlega strandaði þar eystra,
er allur sokkinn í sjó.
Frá ísafirði.
(Eftir símtali í gær).‘
Prestskosning í hinu nýja
Hólsprestakalli fór fram á laug-
ardaginn. Umsækjendur voru
séra Böðvar Bjarnason á Rafns-
eyri og séra Páll Sigurðsson
prestur í Vesturheimi. Mikið
kapp var í kosningunni, en ó-
vist er hver hlotið hefir emb-
ættið. Atkvæðin verða send hing-
að suður og talin hjá biskupi.