Dagblað

Ataaseq assigiiaat ilaat

Dagblað - 17.11.1925, Qupperneq 1

Dagblað - 17.11.1925, Qupperneq 1
ISLENZKUR iðnaður hefir tek- ið miklum framförum á sið- ustu árum, þótt enn sé hann að flestu leyti á byrjunarstigi. Til skamms tfma þektist varla annar hérlendur iðnaður en heimilisiðnaðurinn gamli, prjón- les og vefnaður, en mikið hafði honum samt farið aftur frá því hann var í blóma sínum, og þó einkutn vefnaðinum. Á hnign- unartíma þjóðarinnar hrakaði heimilisiðnaðinum eins og öðru, sem var þjóðlegt og innlent, og reyndist þar, eins og oftar, hægri leiðin niður á við en upp á móti. Er það fyrst nú á allra siðustu árum, að honum hefir þokað nokkuð upp á við og virðist loks sú sókn vera hafin, sem miklu geti áorkað til efling- ar heimilisiðnaðinum. Er þar mest að þakka Heimilisiðnaðar- félagi íslands, en einnig mikið öðrum mönnum, því óviðkom- andi, sem brýDt hafa fyrir fólki gagnsemi heimilisiðnaðarirís og eggjað lögeggjan til meiri alhafna og framtakssemi á þessu sviði. Menn eru líka betur útbúnir að ýmsum vinntækjum en áður var, og hafa meiri þekkingu til brunns að bera um flesta hluti og svo getur reynzlan einnig lengi kent, og er haldbezti skólinn. — Árangurinn af framsækninni í iðnaðarmálunum og raunbeztu framkvæmdunum er strax orð- inn auðsær og virðist nú augu almennings hafa opnast fyrir nytsemi þessarar þjóðlegu sjálf- bjargarviðleilni einstaklingsins. Auðvitað er hér í mörgu ábóta- vant ennþá, en þó einkum í vandvirkni og hagkvæmni, en búast má við að það breytist til batnaðar með meiri reynzlu og vaxandi samkepni, og er ekki ástæða tii að gera mikið úr, þótt eitthvað mistakist við fyrstu tilraunir. t*að eru margir áfangar á hverri leið lil fullkómnunar, og ^kki að búast við, að alt sé feng- ið með einu átaki. Á það ekki sízt við um hinar ólíku iðnað- argreinar og má þar lengi laga og umbæta, unz náð er beztum árangri. — Tímarnir breytast og raennirnir með, og eftir því verður aðjhaga sér, ef menn vilja ekki dragast aftur úr í fram- hlaupi tímans og daga siðan uppi, sem lífvana steindrangar löngu liðinnar menningar. Listasmekkurinn breytist og kröfurnar um útlit og hagkvæmni verða aðrar og ákveðnari. Á það ekki sízt við i iðnaði, að lúta verður kröfum samtímans og eftir þeirri óhjákvæmilegu st^ið- reynd verður að fara að mestu leyti. En samt má í mörgu halda við þjóðlegum stíl og sérkenn- um heimaiðnaðarins og er þar vandinn mestur að samræma hann breyttum þörfum og ríkj- andi tízku, við hin upphaflegu einkenni og þjóðlega gildi. íslenzkur iðnaður hefir i mörgu ekki fylgst með kröfum samtim- ans né fullnægt þörfum almenn- ings, og hefir slæm aðstaða og ófullkomnar vinnuaðferðir þar mestu um valdið. En eftir þeim framkvæmd- um, sem gerðar hafa verið á siðustu árum, í mörgum iðnað- argreinum, virðist mega vænta betri úrlausnar og að við getum í ýmsu vetið sjálfum okkur nógir, þar sem við þurfum áður að sækja alt til annara. Heilla- drjúg átök og virðingarverð framtakssemi hefir þar verið sýnd af mörgum og fjölgar nú altaf íslenzkum iðnfyrirtækjum, sem vænta má af góðs árangurs. En við mörgu er óhreyft enn, sem gera þarf á þessu sviði, því — betur má ef duga skal. 1. Haniiyrðftkenslft fyrir börn og unglinga veröur haldin hér í vetur aö tilhlutun Barnavinafél. »Sumar- gjöf«. Er mikil þörf á meiri kenslu í liandaviunu, en barnaskólinn get- ur í té látið. Innlend tíðindi. Vestm.eyjum, FB., 16. nóv. ’25. Nýir vitar. Vitamálastjórnin hefir nýlega Iokið við að setja hér upp tvo vita. Annar er Urðavitinn, er sjómenn þráðu' mjög mikið. Stendur hann við sjó, norð- austur af Helgafelli. Ilinn vitinn var settur á syðri hafnargarð- inn. Báðir eru vitar þessir mjög nauðsynlegir, og ber þeim þakk- ir, er stuðlað hafa að þvi, að vitar þessir voru settir upp. — Fjárhagsáætlun Vestm.eyja- bæjar næsta ár: 265,745 kr. Spítalinn kominn undir þak. Veglegt fangahús hefir verið reist hér, ásamt brunastöð. FB., 16. nóv. ’2i. Veiðibjallan ströndnð. Samkvæmt upplýsingum frá skrifstofu hf. Trolle & Rothe hefir Veiðibjallan strandað á Breiðamerkursandi, líkl. á laug- ardaginn. Skipshöfnin bjargað- ist. Engin von er um, að skip- inu eða neinu úr því verði bjargað. Veiðibjallan var á leið frá Danmörku með ýmsar vör- ur, cement, oliu o. fl. — þýzki togarinn Fritzbuer. sen nýlega strandaði þar eystra, er allur sokkinn í sjó. Frá ísafirði. (Eftir símtali í gær).‘ Prestskosning í hinu nýja Hólsprestakalli fór fram á laug- ardaginn. Umsækjendur voru séra Böðvar Bjarnason á Rafns- eyri og séra Páll Sigurðsson prestur í Vesturheimi. Mikið kapp var í kosningunni, en ó- vist er hver hlotið hefir emb- ættið. Atkvæðin verða send hing- að suður og talin hjá biskupi.

x

Dagblað

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblað
https://timarit.is/publication/605

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.