Dagblað

Ataaseq assigiiaat ilaat

Dagblað - 27.11.1925, Qupperneq 1

Dagblað - 27.11.1925, Qupperneq 1
Fösludag 27. nóvember 1925. I. árgangur. 250. tölublað. kfragSfað rpÓVINNAN hefir frá upphafi | verið aðal heimilisiðnaður okkar, og fyrstu tilraunirn- ar til eflingar íslenzkum iðnaði voru einmitt gerðar á því sviði. Skúli Magnússon reið þar fyrstur á vaðiö eins og í mörgu fleira, sem til þjóðþrifa horfði. Síðan hafa fleiri komið á eftir, og má með réttu telja þá braut- ryðjendur innlends iðnaðar. Sú reynzla, sem fengin ef af islenzkum tóvélaiðnaði, bendir tvímælalaust til, að ekki vanli nema herzlumuninn, svo við gætum verið sjálfum okkur nóg- ir og staðist erlenda samkepni. Þegar »donsku vefstólarnir« voru fluttir hingað til lands laust fyrir 1800, var það mikil framför frá því sem áður var. Þótt þær næðu ekki mikilli út- breiðslu fyrst í stað, þá urðu þeir samt til að opna augu manna fyrir nytsemi nýrra vinnu- tsekja, sem öllum almenningi gæti komið að gagni. Likt má segja um spunarokkana, sem fluttust liingað 1785. Peir tóku í öllu fram gömlu handsnæld- unni, en samt þurfti nokkuð langan tíma til að koma al- menningi til að nota þá, og var það ekki fyr en eftir 1800, að hægt sé að segja að þeir sé farnir að koma að verulegum öotum. — Rokkarnir og vefstól- ^rnir komu hingað á sömu ár- aftum, og varð útbreiðsla þeirra ^ikil síðar, eins og alkunnugt er. og gagnsemin eftir þvi. Nú er þessum nytsömu vinnutækj- u>n farið að fækka, sérstaklega vefstólunum, sem orðnir eru sjaldgæfir síðan farið var að reka tóvinnuverksmiðjurnar og þær búnar að ná áliti almennings. t öllum iðnaðargreinum er nú stefnt að því, að afkasta sem ^A^tu á sem styztum tíma, og vinnan verði sem ódýrust. ^aúdiðnaðurinn getur að litlu kept við verksmiðjuiðnað- lnn’ °g sannast það greinilega a tóv>nnunni. Nú eru tóvinnuverksmiðjur komnar bæði norðan- og sunn- anlands, sem að miklu leyti fullnægja hinni óvandaðri tó- vörugerð landsmanna. Ennþá eru ekki komnar hér svo full- komnar tóvinnuverksmiðjur, að þær geti framleitt margvíslegar klæðistegundir, og er því enn ófarinn áfangi til þess takmarks, að klæða okkur sjálfir, en að því er okkur nauðsyn að keppa, ákveðið og samtaka. Meiri hluti islenzku ullarinn- ar er ennþá fluttur út úr land- inu óunninn, en útlendur klæðn- aður keyptur aftur dýru verði, þótt hann sé bæði haldminni og óhagkvæmari, með tilliti til islenzkra staðhátta. Breyting á þessu öfugstreymi mundi verða okkur mikill búhnykkur, og ^þurfum við að kappkosta að svo geti orðið sem fyrst. 2. Utan úr heimi. Khöfn, FB., 26. nóv. ’25. Stjórnarmyndnn í Frabblandi. Simað er frá París, að social- istar hafi ekki haft nægan stuðn- ing til þess að mynda jstjórn. Herriot hefir lofað að gera til- raun til þess að mynda nýja stjórn gegn því skilyrði, að soci- alistar gefi ákveðið stuðnings- loforð. Dómur. Símað er frá London, að dómur hafi í dag fallið í mál- inu gegn ráðstjórnarsinna-for- sprökkunum. Sumir voru dæmd- ir í hálft ár, aðrir til árs fang- elsis fyrir uppreistartilraun. Khöfn 27. nóv. 1925. Áaigling. Símað er frá Stockhólmi, að fullsannað sé, að sænska skipið hafi siglt á brezka kafbátinn sem fórst á dögunum. Samband Svía og Norðmanna. Símað er frá Osló, að gerð- ardómssamningur hafi verið undirskrifaður í gær milli Nor- egs og Svíþjóðar. Er hann þess efnis, að öllum misklíðarmálum er skotið til alþjóðadórastól. FráYestur-íslendingum. (Frá Fréttastofunni). íslenzknr þingmaðnr. í hinum nýafstöðnu kosning- um til Sambandsþingsins í Ot- tawa (höfuðborgar Canada), var íslendingurinn H. M. Hannesson kosinn. Er hann fyrsti Islend- ingurinn, sem kosinn hefir verið á Sambandsþingið. Hann er fæddur í Öxnadal í Eyjafirði 27. nóv. 1884. Lögfræðispróf tók hann við Manitobaháskólann árið 1905. Hann gengdi ábyrgð- armiklum störfum í canadiska hernum meðan heimsstyrjöldin stóð og smáhækkaði í tign, unz hann var gerður að herdeildar- foringja. Heimskringla kveður hann gáfaðan mann og ötulan, og hafi hann verið talinn ein- hver skarpasti lögfræðingurinn, sem próf hefir tekið við Mani- tobaháskólann. Hannesson var kosinn af konservativum og fékk hann talsvert mörg atkvæði um- fram þá tvo aðra, er í kjöri voru. Marino Hannesson var kosinn fyrir Selkirkkjördæmi. Hann er kvæntur Kristínu Arn- grímsdóttur frá Héðinshöfða. Sjö sænskir þingmenn, er setið höfðu á alþjóðaþing- fundi í Ottawa, skruppu þaðan vestur til Winnipeg. Meðal þeirra var Wennerström, ritstjóri Ded Nya Norrland. Er bann, eins og kunnugt er, kvæntur Lóu Guð- mundsdóttur frá Nesi. Wenner- ström hélt ræðu í samkvæmi á Fort Garry gistihúsinu í Winni-

x

Dagblað

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblað
https://timarit.is/publication/605

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.