Dagblað

Tölublað

Dagblað - 03.12.1925, Blaðsíða 1

Dagblað - 03.12.1925, Blaðsíða 1
Fimtadag. * mW #" jfc I. árgangur, 3. desember 7/ J JM # jSk 255. 1925. VVW tölublað. RIÐUN fiskimiðanna hefir öðru hvoru verið til um- ræðu á seinni árum, bæði á mannfundum og í blöðunum. Síðan fiskveiðarnar breyttust í núverandi horf og urðu að tekjumesta atvinnuvegi lands- manna, hafa augu almennings smámsaman opnast fyrir þörf- inni á öryggisráðstöfunum til varnar og eflingar þessari arð- sömu atvinnu. Aðalatriðið hefir þar verið tal- ið verndun fiskimiðanna gegn ólöglegum veiðum og ágangi inniendra og erlendra fiskiskipa. Aðal1 framkvæmdirnar hafa þess vegna stefnt í þá átt, og hafa strandvarnarskipin óneitanlega gert mjög mikið gagn þótt varzla þeirra hafi ekki reynzt fullnægj- andi. Strandvarnirnar eru ein- hver óhjákvæmilegasta sjálsvörn íslendinga eins og nú er högum háttað og öll nauðsyn er á að þær séu enn auknar að mikl- mn mun. Að því hefir alt af nokkuð verið unnið síðustu árin, fyrst með því að taka Þór til strand- varnanna og einnig með þvi að hafa litla gæzlubáta á ákveðn- um fiskimiðum nokkurn hluta ársins. En siðasti áfanginn í þessari sjálfsvarnarbaráttu okk- ar er samþykt siðasta Alþingis, um kaup á nýju strandvarnar- skipi, sem nú hefir verið samið um að smíðað verði í Kaup- Uiannahöfn. Þegar löggæzla þessi er komin 1 viðbót við eftirlit þeirra skipa sem fyrir eru, má telja land- helgisgæzluna komna í viðun- andi horf, a. m. k. fyrst í stað. En það er ekki nóg, að land- óelginnar sé vandlega gætt, því þótt strandvarnirnar væru í á8ætu lagi gefa þær mjög litla tryggingu fyrir viðhaldi fiskjar- 'us, en þag er einmitt aðal at- riðið 0g undirstaða þess að dskveiðarnar geti orðið okkar urðvænlegur atvinnuvegur til frambúðar. Ýmsir haia talið að fiski- mergðin umhverfis ísland væri óþrjótandi og lengi fram eftir mun engum hafa komið til hug- ar að fiskurinu mundi nokkurn tima geta gengið til þurðar. En það er djúpur brunnur sem ekki verður uppausinn og með þeim gengdarlausa veiðiskap sem nú er rekinn hér á miðunum, má fastlega gera ráð fyrir því að fiskmergðin fari minkandi. Vísindalegar rannsóknir hafa einnig leilt í Ijós, að þessi ugg- ur um úrdrátt fiskveiðanna er ekki ástæðulaus og alt bendi til að þess verði e. t. v. ekki langt að bíða, að fiskaflinn fari þverrandi ef ekki eru gerðar nauðsynlegar ráðstafanir til varnar eyðingunni. t*að er einkum eitt atriði sem vænlegast þykir til góðs árang- urs, en það er friðun héillra fiskimiða fyrir uppgripaveiði og er þá auðvitað aðallega átt við veiðar botnvörpunganna. Friðun einhverra fiskimiða vorra er því annar áfanginn í sjálfsvörn okkar um viðhald fiskiveiðanna. Kaupgjaldsdeilan. Sættir komnar á. — Samn- ingar giida til 1. ]an. 1929. Fegar fulltrúar Sjómannafé- Iagsins höfðu með samþykki meiri hluta fundarmanna f fyrra- kvöld fengið fult umboð til þess að ráða til lykta kaupgjalds- málinu fyrir hönd sjómanna, var þegar í stað byrjað á samn- ingum við útgerðarmenn. Var unnið að samningum, með að- stoð sáttasemjara Georgs Ólafs- sonar, nær óslitið þar til i gær- kvöld að sættir komust á, og kaupgjald ákveðið þannig: Núverandi kaupgjald helzt til áramóta, en úr því verður mánaðarkaup háseta 235 kr., mátsveina 309 kr., aðstoðar- manns i vél 360 kr., kyndara 336 kr. og 300 kr. Lifrarpen- ingar 28 kr. á fat. Kaupgjaldið nær til ársloka 1926, en þá skal kaupið ákveð- ið fyrir næsta ár eftir dýrtíðar- vísitölum og miðað við búreikn- ing Hagstofunnar, þannig að vísitalan í október er lögð til grundvallar kaupinu fyrir 1926, og þannig skal farið að ár hvert til ársloka 1928, að kaup sé miðað við vísitöluna 1. okt. ár- ið fyrir að kaup og lifrarhlutur hækkar eða lækkar, eftir því sem vísitalan segir til. Er þá loks endir bundinn á kaupgjaidsmálið, og er því trej'st- andi, að allir hlutaðeigendur megi vel við una málalokin. Utan úr heimi Khöfn, FB., 1. des. ’25. Langflug á næsta ári. Símað er frá París, að ítölsk, brezk, frakknesk) og þýzk flug- félög hafi í hyggju að bindast samtökum um að láta fara fram Atlantshafsflug samfara hnatt- flugi á komandi vori. Flugvélar af líkri gerð og Amundsens verða notaðar. Khöfn, FB. 2. des. ’25. Undirskrift Locarno samn- ingsins. Símað er frá London, að full- trúar 7 þjóða hafi í gær skrifað undir Locarno-samninginn, og lögðu þannig hornsteininn undir Evrópufriðinn. í stórpólitiskum ræðum skýrðu Chamberlain, Bri- and og Stresemann, að hinn gamli andi tortrygni og úlfúðar hlyti nú að hverfa fyrir vakn- andi bróðurhuga milli ríkjanna. Viðhöfnin kvikmynduð. Breta- konungur hefir gert Cbamber- lain að riddara sokkabandsorð- unnar.

x

Dagblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblað
https://timarit.is/publication/605

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.