Dagblað - 04.12.1925, Page 2
2
DAGBLAÐ
Leikir ogleikhús.
Frh.
Svo mátti heita þögn uppi á
fjölunum, sem þá voru íslenska
leiksviðið. Bæjarbúar voru reynd-
ar orðnir 2600 manns, en stoð-
irnar sem bezt höfðu stutt allar
þessar tilraunir, voru farnar
undan þeim. En það þýddi
næstum meira, að um ait land
var hallæri frá 1882—87, sem
lamaði þessar tilraunir. Pó tóku
félagsmenn stúkunnar Einingin
sig til og byrjuðu sjónleiki aft-
ur í Glasgow. Þeir léku þar
»Skuggasvein«, »Vesturfarana«
eftir Matth. Jochumsson,Ȓmynd-
unarveikina« eftir Moliere, »Box
og Kox« »Valdsmaður kon-
ungsa, og fleira mun það hafa
verið. Aðalmaðurinn í þessum
ieikum og langbezti leikarinn
var Guðlaugur Guðmundsson,
og af konum, sem þar lékn,
má nefna Guðrúnu Vigfúsdótt-
ur. Félagsmenn og félagskonur
hundrað til tvö hundruð manna
félags eru of fáir til að úr þeim
verði valdir margir góðir leik-
endnr.
1888 hafði Good-Temlarhúsið
verið reist, og það heföi Jón
Guðmundsson getað kallað þall-
hús, því upphækkað leiksvið
var í húsinu, og jafnvel búnings-
herbergi. í Good-Templarhús-
inu var leikið frá 1890—1895
við og við. Meðai annars var
þar sýnt »Æfintýri á Gönguför«,
»Víkingarnar á Hálogalandi«,
»Nýársnóltin«. Yms leikrit í ein-
um þætti hvert, og munu »Vík-
ingarnir« einkum hafa verið það,
sem dró eftirtekt Dana og fleiri
Norðurlandabúa að leiktilraunum
hér á Iandi. Þar lék Stefanía
Guðmundsdóttir i fyrsta sinn.
En það voru nú ekki Templarar
einir, sem höfðu pallhús að
bjóða. Valgarður Breiðfjörð hafði
bygt leikhús 1894, sem var að
mörgu leyti gott, ef kuldinn
hefði ekki verið svo óþolandi
þar, og léku stúdentar 1894—’95,
og voru þar leikin: »Hjá höfn-
inni«, eftir Einar Benediksson.
oFrænka Charlesa, »Systkinin
i Fremstadak eftir Indriða Ein-
arsson og»Hellismenn«eftirsama.
þar var leikin »Sængurkonan«
eftir Holberg og «Gestir í sum-
arleyíinu« eftir Hostrup, og
franskt leikrit, sem hét »Gjald-
kerinn«. Við þessa leiki var
það einkum Sigurður Magnús-
son frá Flankastöðum, sem vakti
eftirtekt á sér. Sama má segja
um Árna Eiríksson og Þóru
Sigurðardóttur, sem léku lengi
eftir það, næstum því hvenær sem
leikið var síðar meðan þau lifðu.
1896 mátti heita svo aö uppi
væru tvö leikfélög, og bærinn
var þá tæplega svo stór að
þess væri þörf. íbúarnir voru
3800 manns. Ýmsir voru til
bæði menn og konur, sem höfðu
sýnt að þeir gátu leikið, en
kraftarnir gátu ekki verið dreifð-
ir í tvo flokka. Leiksýningarnar
voru fremur í hættu staddar,
og tvískiftingin þá var mjög
óvænleg fyrir leiksýningarnar,
sem síðar voru væntanlegar. —
Svo bættist ofan á rígurinn á
milli þessara tveggja pallhúsa,
sem Jón Guðmundsson myndi
hafa kallað húsið sem leikið
var í. — Frh.
Borgin.
Sjávarföll. Síðdegisháflæður kl.
7,55 í kvöld. Árdegisháflæður kl.
8,15 í fyrramálið.
Nætnrlseknir. Daníel V. Fjeldsted,
Laugaveg 38. Sími 1561.
Nætnrvörðnr í Rvíkur Apóteki.
Tíðarfar. Hægviðri um land alt
en breytileg vindstaða. Heitast í
Vestmannaeyjum 5 st., kaldast á
Raufarhöfn 1 st. frost. í Færeyjum
var 4 st, hiti, í Leirvik 6 st., í
Kaupmannah. 6 st. trost, á Jan
Mayen 4 og í Angmagsalik 8 st. frost
í gær. — Búist er við suðlægri átt
með úrkomu á Suðvesturlandi.
Botnvörpnngarnir eru nú sem óð-
ast að búast á veiðar og mun þeir.
fyrstu fara út i dag. Voru sumir
þeirra tilbúnir í gær, en vélstjórar
höfðu áður krafist kauphækkunar
og heimtuðu ákveðið svar áður en
lagt yröi út. Samkomulag mun hafa
náðst i gærkvöld.
Merbileg mynd er nú sýnd á Nýja
Bíó. Er hún sögulegs efnis, frá dög-
um Georgs 4. og gerist bæði i Eng-
landi og Fraklandi. Er myndin bæði
skrautleg og með afbrigðum vel
leikin.
*2)a§Glaé.
Bæjarmálablað. Fréttabinð.
Ritstjóri: G. Kr. Guðmundsson,
Lækjartorg 2. Símar 744 og 445.
Viðtalstími kl. 5—7 síðd.
Afgreiðsla: Lækjartorg2. Simi 744.
Opin alla virka daga kl. 9—7.
Blaðverð 10 au. eint. Askriftar-
gjald kr. 1,50 á mánuði.
Prentsmiðjan Gutenberg, h.f.
Söng'gkemtnn Sigurðar Birkis var
aflýst í gærkvöld, vegna litillar að-
sóknar. Hljómleikar Páls og Emils
voru aflýstir i fyrrakvöld af sömu
ástæðum. Ber þetta vott um furðu
lítinn áhuga fyrir fögrum listum en
þó sérstaklega hljómlist, og styngar
óþægilega í stúf við aösóknina aö
»böllunum« og öðrum álíka skemt-
línum.
Villijálmur Finsen ritstj. fór með
Lyru í gærkvöld áleiðis til Noregs.
Málverkasýning Finns Jónssonar
er opin í siðasta sinn i dag.
Hjnskapnrheit sitt opinberuðu L
des. þau María Ágústsdóttir, cand.
phil. (dóttir Á. Jósefssonar heil-
brigðisfulltrúa) og Sigurður Stefáns-
son stud. theol. — Sigurður hefir
nýskeð lokið grískuprófi og hlaut
I. einkun (13 stig).
i ,
Jarðarför frú Áslaugar Blöndahi
fer fram á morgun og hefst meö
húskveðju á heimili þeirra hjóna
Lækjargötu 4, kl. l*/a.
Gluggar eftfr John Galsworthy
voru leiknir hér í fyrsta sinn í gær-
kvöld.
Orðsending.
Herra ritstjóri I
Geriö svo vel aö láta þá hin&'
mikillátu ijóðelsku kunningja,
eu ekki að sama skapi gætnu,
er rituðu greinarkorn gegn okk-
ur í heiðrað blað yðar 1. des..
þ. á., vita, að svar við grein
þeirra birtist í Morgunblaðinu.
Við teljum óþarft að hafa svo
mikið við þá, að svara þeim
sérstaklega.
Rvík, 3. des. ’25.
Tveir kunningjar.