Dagblað - 07.12.1925, Page 2
2
DAGBLAÐ
hvað eftir annað að bræða
hjarta hennar, og innilegast
bráðnar það þó, þegar hún
heyrir hann spila á harmonik-
una fyrir utan, og endar þátt-
inn með því að segja: »Ó, er
það ekki himneskt?«
Haraldur Á. Sigurðsson leik-
ur Lundúnabullu, sem er i fin-
um fötum, en hefír sett á sig
svip og slíkt gerfi, sem enginn
efast um að þrælmenni verði
að hafa. Sú andlitsgrima tók af
allan efa.
Frú Soffía Kvaran leikur Trú.
Fyrir tuttngu árum hefði engin
hérlend leikkona getað leikið
slíkt hlutverk. Hún er ákaflega
skömmustuleg í fyrstu, en þeg-
ar hún sér að Johnny er henni
hliðhollur og hefír talað máli
hennar, þá byrjar hún að gefa
honum gætur, og tilburðir henn-
ar, þegar hún er að laða hann
til að kyssa sig, og sakleysi
hans, þegar hann lét leiðast til
þess, var mjög fín og afarsenni-
leg meðferð á þeim afdrifaríka
atburði.
Arndís Björnsdóttir lék Mary
dóttur hjónanna. Hún er því
nær ný leikkona, en hvenær
sem hún leikur, má ávalt sjá
að það er »dama«, sem á leik-
sviðinu er.
Samleikurinn var góður, og
það er eigindi, sem grær fastar
og fastar við sýningar Leikfé-
lagsins, en vantar einna mest i
tilraunir annara.
Fyrirkomulagið á leiksviðinu
hafði góð áhrif á áhorfendurna,
en vegna þess hve það er lítið,
má ekki hafa þar of mikið af
húsgögnum, því leikendurnir
hverfa innan um þau. Fví verð-
ur að taka það fram, að þessi
tvö blómsturglös sem voru á
borðinu, huldu hvað eftir ann-
að andlitin á leikendunum, svo
engan geðblæ var á þeim að
sjá, og ætti þau að víkja úr
sessi fyrir lágri blómsturskál,
sem sjá má andlitin yfír, neðan
af gólfínu. Allar ljósbreytingar á
leiksviðinu voru góðar.
Af samvizkusemi eða »horror
vacui« — hræðslu við auða
rúmið — hefir inngangur leiks-
ins verið prentaður á leikskrána.
Fað er lýsing á umhverfínu, sem
ekki verður séð. Slikar lýsingar
eiga heima i skáldsögnm, en
ekki í leikritum. Lýsingin sem
Trú gefur á húsinu er þúsund
sinnum skýrari. Þar er lagt átta
sinnum á borð á dag, fjórum
sinnum fyrir eldra fólkið í hús-
inu og fjórum sinnum fyrir
vinnufólkið. Það sýnir rótgróna
brezka heimilishætti, þar sem
allur dagurinn fer í það að
matast.
Þess er að vænta að bæjar-
búar leggi frá sér þvottastamp
og sópa nokkrar kvöldstundir,
þegar leikið verður núna fyrir
jólin, og lita á gluggafægingar í
London eins og þær eru sýndar
í leikhúsinu. Þeim verður það
eflaust til upplyftingar og gleði
í stritinu, — og þess þurfa þeir
Borgin.
Sjávarföll. Siðdegisháflæður kl.
10,30 í kvöld. Árdegisháflæður kl.
10,55 á morgun.
Næturlæknir Gunnlaugur Einars-
son, Stýrimannastíg 7. Simi 1693.
Neturvörður i Laugavegs Apóteki.
Tíðarfar. Óstöðugt veður og breyti-
Ieg vindstaða. Mikil rigning i morg-
un í Vestmannaeyjum og Raufar-
höfn. Heitast var í Vestm.eyjum 7
st., Hornafirði 6, Seyðisf. 5, Rvik 4
st., annarstaðar 0—3 st. — í Fær-
eyjum var 9 st. hiti og á Jan Mayen
3 st. frost. — Loftvægisl. við Suð-
vesturl. Búist ervið allhvassri norð-
lægri átt með snjókomu á Norðurl.
Útskurðarsýning var opnuð i gær
i litla salnum bjá Rósenberg. Er
par sýnt mikið af smiðisgripum
Stefáns sál. Eirikssonar hins odd-
haga, og einnig nokkrir gripir gerð-
ir af Soffiu dóttur hans.
Hjúskaparheit sitt hafa nýlega op-
inberað ungfrú Jakobina Pórðardótt-
ir, Bergst.str. 37, og Einar Ásmunds-
son járnsmiðameistari, Lækjarg. 10.
Jnpiter heitir nýr botnvörpungur,
sem kom hingað í gær. Hefir Bel-
gaum-félagið látiö smiða hann í
Englandi, og er bæði stór og vand-
aður. Skipstj. er Pórarinn Olgeirsson.
Jarðarför frú Áslaugar Blöndahl
fór fram á laugardaginn að við-
stöddu miklu fjölmenni. Séra Frið-
rik Hallgrímsson flutti húskveðju
og kirkjuræðu. Sérstakur söngflokk-
ur, undir stjórn Páls ísólfssonar,
^DagBíaé.
Bæjarntálablað. Fréttnblad
Ritstjóri: G. Kr. Gaðmundsson,
Lækjartorg 2. Simar 744 og 445.
Viðtalstími kl. 5—7 siðd.
Afgreiðsla: Lækjartorg2. Sími744.
Opin alla virka daga kl. 9—7.
Blaðverð 10 au. eint. Askriftar-
gjald kr. 1,50 á mánuði.
Prentsmiðjan Gutenberg, h.f.
söng bæði í heimahúsum og í
kirkjunni, og einnig söng Simon
Pórðarson einsöng. Nánustu ætt-
ingjar og vinir báru kistuna aft
kirkjunni, en stjórn Verslunarráðs-
ius inn. Út úr kirkjunni báru hana
ræðismenn erlendra ríkja, en inn l
kirkjugarð skólabræður Sigfúsar.
Góðnr gestnr. Eggert Stefánsson
söngvari er á leið hingað meö ís-
landi, og mun hann dvelja hér
nokkurn tíma.
Lcikfélag Reykjavíknr lék Glugga,
eftir John Galsworthy í 2. sinn i
gærkvöld. Næst mun verða Ieikift
um miðja vikuna.
Peningar;
Sterl. pd............... 22,15
Danskar kr............. 114,06
Norskar kr.............. 93,24
Sænskar kr............. 122,33
Dollar kr.............. 4,57*/t
Gullmörk............... 108,81
Fr. frankar ............ 17,96
Hollenzk gyllini....... 184,09
íslendingnr kjörinn formaöur
Stúdentafélagsins í Þrándheimi,
Porlákur Helgason stud. techn.*
sem nemur verkfræöi við Tek-
nisk hoiskole, hélt fyrirlestur
um Island og íslenzka menn-
ingu þ. 14. þ. m. í Stúdeutafé-
laginu þar í bæ. Var gerður
góöur rómur að máli hans.
Síðar á fundinum vorn stjórn-
arkosningar og var Þorlákur
kosinn formaður félagsins meö
109 atkv. Næstur honum varð
lektor Due með 49 atkv. en
aðrir fengu um 20 og þaðan
af færri.
Þetta mun í fyrsta sinn, aö
íslendingur er kosinn formaður
í útlendu stúdentaféiagi, a. m. k-
svo stóru (um 700 meðl.).