Dagblað - 09.12.1925, Blaðsíða 2
2
DAGBLAÐ
1 skeyti til Fréttastofunnar
segir, að »Ólafur Hjaltested hafí
kvartað um lasleika, nokkru
eftir að þeir fóru frá sæluhús-
inu, og ágerðist hann er veður
versnaði. Fór svo, að hann
treystist eigi til að halda áfram
ferðinni. Dvöldu þeir hjá hon-
um lengi, en afréðu loks að búa
um hann þar sem bezt í fönn,
en leita svo hjálpar. Bjuggust
þeir við að ná Fomahvammi á
tiltölulega skömmum tima. Varð
þetta úr. Bjuggu þeir sem vand-
iegast um Ólaf, klæddu hann í
olíuföt utan yfir ferðaföt, hlóðu
utan um hann gæruskinnum og
póstpokum, og voru vongóðir,
er Fréttastofan átti tal við þá í
gærkvöld, að Ólafi myndi liða
sæmilega í snjófönninni, unz
bjálp bæri að«.
Siðan héldu hinir áfram og
fundu bráðlega símalínuna aftur
og komust við illan leik að
Fornahvammi kl. 4 um nóttina.
Höfðu þeir þá verið 18 klukku-
stundir á ferðinni, sem annars
er 5 tima ferð.
Maðurinn, sem þeir mistu af
um daginn var kominn þangað
á undan þeim.
Strax og þeir komu að Forna-
hvammi var brugðið við að leita
Ólafs, en hvorttveggja var að
þeir voru ekki vissir um stað-
inn og veðrið afskaplegt, enda
varð leitin árangurslaus. En i
morgun var gert ráð fyrir að
hefja leit á ný. Flestir hestarnir
voru ófundnir í gærkvöld og
mikið af fóstfíutningnum.
í morgun var ekki hægt að
ná sambandi við Borgarnes né
Fornahvamm vegna símslita.
»I)ansiun nndir hlíðnm« —
Á Útsíra i Noregi (eyja fyrir
vestan Stafangur, langt undan
landi, 414 íbúar) var fyrir
skömmu kosin hreppsnefnd, 12
manna. Kosningu hlutu 11 kon-
ur og — 1 karlmaður. Hefir
verið reynt að ónýta kosningu
þessa. en ekki tekist. Stjórnar-
ráðið sér engin úrræði til að ráða
við hinar ráðríku konur á Út-
sira! — Þær sitja. Manni dettur
i hug vikivakinn gamli:
Danzinn undir hliðum
hann er sig ei seinn
Atján voru konurnar,
en karlinn hann var einn!
Borgin.
SjávarfðH. ÁrdegisháOæður kl.
11,30 í nótt. [Siðdegisháfiæður kl.
1,10 á morgun.
Sólarnpprás kl. 10,9. Sólarlag kt.
2,24.
Meetnrlaeknir. Daniel V. Fjeldsted,
Laugaveg 38. Simi 1561.
Nætnrvörðnr í LaUgavegs Apóteki.
Tlðarfar. Norðanstórviðrið, sem
skall á í fyrradag, helzt ennþá, en
veðurskeyti hafa ekki komið frá
mðrgum stððum vegna simslita.
Lítið frost er par sem til spyrst og
sumstaðar frostlaust. Á Akureyri
var 2 st. hiti í morgun og 4 st. hiti
i Seyðisf. — í Khöfn var við frost-
mark (0) í morgun, og eins á Jan
Mayen, en i Angmagsalik var 12 st.
frost í gær. — Loftvægislægð fyrir
suðaustan land. Búist er við svip-
uðu veðri.
Eiríknr rauði, hinn nýi botnvörp-
ungur Geirs Thorsteinsson & Co,
sem getið var um i blaðinu i gær,
kom hingað frá Englandi í nótt.
Með honum komu Geir Thorsteins-
son og frú, og frú Málfríður Oddsson.
Botnvörpnngarnir sem út voru
farnir, hafa undanfarna daga legið
inni á Vestfjörðum vegna ofveðurs-
ins. Hefir frézt um flesta þeirra og
margir sent skeyli um góöa liðan.
Syningin á útskurði Stefáns Ei-
rikssonar og Soffíu Stefánsdóttur í
litla salnum hjá Rosenberg er dag-
lega opin frá kl. 10—10. Sýningin
mun aðeins verða opin í 2 daga
enn, og því ættí fólk ekki að láta
dragast að lita þar inn.
Karlakór K. F. U. M. heldur sam-
söng í Nýja Bió kl. 7'/» 1 kvöld, und-
ir stjórn Jóns Halldórssonar rikis-
féhirðis. Má þar áreiðanlega vænta
góðrar skemtunar.
ísland kom hingað kl. 11 i morgun
en kl. 1 var það ekki komið
inn á höfnina, vegna þess að hafn-
sögumaðurinn haði ekki komist út
i það vegna ofveðursins.
Símalit hafa víða orðið í gær og
í nótt, og er nú sambandslaust við
margar stöðvar.
#
Feningar;
Sterl. pd................ 22,15
Danskar kr............. 114,06
Norskar kr.............. 93,19
Sænskar kr............. 122,38
Dollar kr................ 4,58
Gullmörk .............. 108,87
Fr. frankar.............. 17,79
Hollenzk gyllini....... 184,09
HÞagBlaé.
Bæjarmálablað. Fréttablað.
Ritstjóri: G. Kr. Guðmundsson,
Lækjartorg 2. Símar 744 og 445.
Viðtalstimi kl. 5—7 síðd.
Afgreiðsla: Lækjartorg2. Sími 744,
Opin alla virka daga kl. 9—7.
Blaðverð 10 au. eint. Askriftar-
gjald kr. 1,50 á mánuöi.
Prentsmiöjan Gutenberg, h.f.
Herkileg sýning.
ísleuzk list.
Tréskurðarlistin er elzt þeirra
íslenzkra lista, sem handlægnt
þarf til jafnt hugvitinu, og sú
eina, sem getur raunverulega
talist þjóðleg. Menn geta verið
rithöfundar og skáld, án þess
að hafa nokkurn snefil af hand-
lægni. En myndlistarmaðurinn
eða útskurðarmeistarinn getur
ekki verið snillingur án þess að
vera skáld.
Stefán Eiriksson hlýtur að
hafa verið hvorttveggja, lista-
maður og skáld. Enginn ísiend-
ingur mun hafa verið eins »odd-
hagur«, enda hlaut hann af því
viðurnefnið, sem sérkendi hann
frá öllum öðrum. Stefán odd-
hagi var snillingur, sem lengi
mun minst, þvi verkin halda
uppi nafni bans margar aldir
fram. Stefán hlaut listeðlið í
vöggugjöf, og blutskifti hans
varð svipað æfikjörum annara
listamanna, sem eru svo óhepn-
ir að fæðast tslendingar, þótt
sumir sæki þangað einmitt sér-
kenni sín og aðalþrótt.
Nýskeð hefir verið opnuð sýn-
ing á smiðisgripum Stefáns,
þeim, sem bægt hefir verið að
ná til og er það fyrsta heildar-
sýningin af verkum hans. Dæt-
ur hans hafa gengist fyrir sýn-
ingunni og á elzta dóttir hans,
Soffía, marga gripi á sýning-
unni. Sýnir hún greinilega hverr-
ar ættar hún er og heldur uppi
merki föður síns með mikilli
sæmd.
Lítið rúm leyfir ekki langa
lýsingu á mörgum hluturu, en;
geta verður hins helzta.