Dagblað - 10.12.1925, Page 1
Fimtudag
10. desember
1925.
I. árgangur.
261
tölublað.
agBlaé
MIÐSTÖÐ bæjarsimans er sú
starfstðð, sem hér mun
mest notuð, enda er tal-
síminn eitt af dýrmælustu þæg-
indum bæjarmanna. Talsímanot-
endum fjölgar líka ineð ári hverju
og eru þeir nú orðnir sem næst
tveim þúsundum, sem hafa sér-
stakan síma. Er talsímanotkun
óvíða meiri miðað við fólks-
fjölda. — Síminn er nú orðinn
okkur svo samgróinn og flest-
um ómissandi, að telja má víst,
að notendum hans haldi áfram
að fjölga með hverju árinu sem
iiður. Fyrst þegar talað var um
að leggja hér síma, töldu sumir
það meslu fásinnu. Fví slíkt
»sport« væri ekki við okkar
hæfi, og langt mundi þangað til
slíkt væri límabært. En reynsl-
an hefir orðið noklcuð önnur,
og munu nú fáir, setn vildu
missa þessa búskaparbót, sem
öðru fremur hefir dregið úr fá-
sinninu og fært samau fjarlægð-
irnar. — En samt er það svo,
að símasamband vort innbyrðis
og við umheiminn er ekki í svo
góðu lagi, sem vera þyrfti og
verður ekki hjá þvi komist fyr
en síðar að gera þá aukningu
og endurbætur, sem nauðsyn-
legastar eru. — Einkum er það
bæjarsiminn, sem mikil þörf er
á, að sé í sem beztu lagi, en
á því hefir oft viljað verða nokk-
ur misbrestur.
Fyrir skömmu var bæjarsim-
inn endurbættur að nokkrum
mun, en ekki er hann enn í
því lagi, sem æskilegt væri og
er þess ekki að vænta meðan
betri útbúnaður er ekki fenginn.
Bezta endurbótin, sem hér væri
haegt að gera, er að fá nýtt
skiftiborð, sem væri að miklu
!eyti sjálfvirkt (»Centralbatterí«-
kerfi) og má telja það misráð-
að því var ekki komið á
Þegar siðasta endurbót var gerð.
í*að er orðin einskonar hefð,
að kenna símastúlkunum um
alt það ólag, sem er á bæjar-
simanum, en það er að flestu
leyti óréttmætt því aðallega er
slíkt að kenna ágöllum sima-
kerfisins sem notað er.
Utan úr heimi.
Khöfn, FB., 8. des. ’25.
Samsteypnstjórn í Þýzkalandi.
Símað er fráBeriin, að Hind-
inburg hafi í gær tekið á móti
foringjum flokkanua og skorað
alvarlega á þá, að mynda stjórn
á rúmum grundvelli. Skoraði
hann á Socialdemokrata að taka
þátt í stjórnarmynduninni.
Frá Alþjóðnbandalngsfundinuni.
Símað er frá Genf í gær, að
fulltrúafundurinn sé byrjaður.
Á dagskrá eru þessi mál: Grisk-
Búlgarska misklíðin, fjármál
Austurrikis og afvopnunarrnálið.
Fjármál Belga.
Símað er frá Brussel, að fjár-
málaráðherrann hafi skorað á
ameriska og brezka fjármála-
menn að lána Belgíu 150 milj-
ónir dollara til þess að tryggja
myntina.
Nýjar álögur í Frakklandi.
Símað er frá París, að Lou-
cheur hafi lýst því yfir, að eina
úrræðið til þess að koma á jafn-
vægi í ríkisbúskapnum, sé að
þyngja skattana að miklurn
muu. Ætla menn, að þingið
muni styðja stefnu fjármálaráð-
herrans.
Brozkir njósnarar í Frakklaudi.
Simað er frá París, að lög-
reglan hafi í gær handsamað 3
njósnarmenn, er njósnuðu um
fyrirkomulag á flugher og flug-
stöðvum Frakka. Njósnuðu þeir
þar fyrir brezka hermálaráðu-
neytið. Atburðurinn hefir vakið
áfarmikið uppnám, en annars
eru upplýsingar enn þá ó-
fullkomnar.
Mosul-málið.
Atkvæðagreiðsla fer bráðum
fram um Mosul-málið. Álitið er,
að Tyrkir muni ef til vill grípa
til vopna, verði úrskurðurinn
Bretum í vil.
Frá hraknígum
norðanpösts.
ÓIAfur Hjaltested fundinn.
I gærmorgun var aftur hafin
leit frá Fomahvammi að Ólafi
Hjaltested og fanst hann þar
sera hann hafði verið grafinn í
fönn. Var staðurinn auðfundinn
því félagar hans hötðu skilið
þar eftir 4 hesta og bundið þá
á streng. Var missagt í blaðinu
í gær að þeir hefðu ekki verið
vissir um staðinn, heldur var
það aðeins vegna ofveðursins,
að þeir komust ekki þangað á
þriðjudagsmorguninn.
Ólafur var með lífsmarki, er
hann fanst, og voru lífgunartil-
raunir þegar gerðar. Ekki náð-
ist strax í lækni, en von var á
honum á hverri stundu í gær-
kvöld. En síðan hefir ekki náðst
sambaud við Fornahvamm.
Hestarnir eru allir fuudnir,
nema einn, sem ábyrgðarpóstur-
inn var á. Einn af þeim sem
fanst var svo aðfram kominn,
að honum var ekki iífs auðið.
Skemdir á Skallagrími.
Skallagrímur mun hafa orð-
ið verst úti af botnvörpungun-
um, sem lent hafa í ofviðrinu.
Kom hann hingað inn í morg-
nn, allur mjög brotinn ofan þilja.