Dagblað - 12.12.1925, Blaðsíða 2
2
D A G B L A Ð
Reikningar
Reykjavíkurbæjar 1924 ogfjár-
málastjórnsemi.
Frh.
Skuldir.
t*etta ár (1925) byrjaði með
rúml. 9 milj. kr. skuld — yfir
3A milj. vaxtabyrði, auk afborg-
ana — á þessum litla bæ og
fyrirtækjum þeim, sem hann ber
ábyrgð á.
t*etta þykir sutnum fulltrúum
bæjarins heldur lítið, svo fúsir
eru þeir að leggja út í nýtt og
nýtt, áður en losnað er við ann-
að i staðinn. Vextirnir einir gera
nú varla minna en 25 kr. á
hvert mannsbarn í bænum, eða
sem svarar 200 kr. fyrir 8 manna
skyldulið.
Ekki lækka útgjöldin meðan
svona er stjórnað, og svona
haldið áfram. Sýnist því mál
að taka i taumana.
Eignir.
Móti þessum ógrynnis skuld-
nm eru eignir bæjarins teygðar
upp og taldar enn meiri (yfir
13 milj. minnir mig), svo ekki
litur efnahagurinn mjög illa út
á pappírnum. En, hvers konar
eignir eru þetta?
Lítill hluti eignanna eru jarð-
eignir, sem uppskera fæst af,
eða fjármunir, sem gefa örugga
vexti. Meginhlutinn felst í óarð-
bæru landi (»lóðum«), húsum
(án leigu), hafnarvirkjum, vatns-
leiðslu, rafleiðslu, gasstöð og
óvissum skuldum.
Skattur, skattur og aftur
skattur á skatt ofan, eru einu
tekjurnar af mestöllum eignun-
um. Pær eru því nálega að öllu
leyti háðar utanaðkomandi afla,
eignum bæjarmanna og afkomu
þeirra. —
Hvaö verður þá úr þessum
tekjum, hver á að borga alla
skattana, þegar afli bregst, eigna-
ráð eru tekin af mönnum, og
allir þurfa að biðja sér brauðs?
B i ð j a — nei, ég ætlað að segja
— heimta brauð, heimta hus,
heimta vinnu. En hvar á að
h e i m t a, þegar bærinn er orð-
inn gjaldþrota og ríkið megnar
ekki að bjálpa, og allir bæjar-
menn eru orðnir svo jafnir,
að engum finst skylt að bjarga
sér sjálfur.
yitðing eigna.
Landsneplar og melabörð bæj-
arins 2,200,000 kr. — Næstum
því eins og bújarðir allar í lang-
mestu sýslu landsins (Árness.).
Gufunesið, kaupverð 150,000 kr.,
Vatnsréttindi 157,000 kr. (Sogið
30,000 og Elliðaár 90,000 hjá
bænum, og lika 37,000 hjá Raf-
veitu). Vatnsplpurnar 1,092,672
kr. Gasstöðin 529,402 kr. Raf-
veita 3,355,310 kr. — Þar i eru
heimtaugar 346,378 kr. Vitanlega
skattur að langmestu leyti, er
nam hundruðum kr. á hvert
hús, og stöðvarhúsin langt úr
öllu hófi yfir fasteignamat. Höfn-
in b,486,í28 kr. — Þar í er t. d.
dýpkun hafnar yfir 3/a miljón
(529,000 kr. Og enn eru holræsi,
götur, vellir, og þessháttar 635,000
kr. f*etta jafngildir því, efbænd-
ur virtu sjálfir jarðir sínar í
hæsta stríðsára verði, bættu þar
við háu verði fyrir jarðrask, slétt-
ur og hlöð, vegi um túnið, út
á engjar og þar fram eftir götum.
Hvernig ætli bönkunum litist
á þessháttar veð, ef bændur
kæmu með það til þeirra? Rað
sýnist fremur barnalegt, að telja
svo og svo rniklar »skuldlausar
eignir« hjá hverju sérstöku fyrir-
tæki, sem þó eru enn í botn-
lausu sknldafeni. Frh.
Borgin.
Sjávarföll. Siödegrsháflæður kl.
2,53 í dag. Árdegisháflæður kl. 3,15
i nótt.
Næturlæknir í nótt er Guðmundur
Guðtinnsson, Hverfisg. 35. Sími 644.
Nætnrvörður í Laugavegs Apóteki.
7. vika vetrar hefst.
Tiðarfar. Hægviðri um land alt
og breytileg vindstaöa. Snjókoma i
Rvík og St.hólmi. Frost alstaðar,
mest á Hólsfjöllum 9 st., minst í
Vestm.eyjum og St.hólmi 1 st. Eng-
in veðurskeyti frá ísaf., Raufarhöfn
og Hornaf. — í Khöfn var 2 st. hiti
i Leirvík 2, Færeyjum 0, JanMayen
7 st frost. — Loftvægisl. við Norð-
urland. Búist er fyrst við breytilegri
vindstöðu en síðan norðvestlægri
át á Suður og Vesturlandi með snjó-
komu viða.
haghlaðið kemur út á morgun —
sunnudag árdegis. —
2)ag&lað.
Bæjarmálablað. Fréttnblað.
Ritstjóri: G. Kr. Guðmundsson,
Lækjartorg 2. Símar 744 og 445.
Viðtalstími kl. 5—7 síðd.
Afgreiðsla: Lækjartorg2. Sími744.
Opin alla virba daga kl. 9—7.
Blaðverð 10 au. eint. Askriftar-
gjald kr. 1,50 á mánuði.
Prentsmiðjan Gutenberg, h.f.
Jólaverðið byrjað. T. d.
12 manna matarslell (postulíns)
kr. 117,00, 6 manna matarstell
(steintau) aðeins kr. 32,00.
Notið tækifærið. — versl. l*örf'0
Hverfisgötu 56. Sími 1137.
U'alleg’t er hangikjötið í
Hagbarðs-glugga á Laugav. 26.
Messnr á morgnn. Dómkirkjan kl.
11 séra Bjarni Jónsson og kl. 5 séra
Friðrik Hallgrímsson.
Frikirkjan kl. 5 séra Á. Sigurðss.
Landakotskirkja kl. 9 f. h. há-
messa kl. 6 e. h. guðsþjónusta meö
prédikun.
l)r. Páll E. Ólasoti flytur háskóla-
fyrirlestur í dag kl. 6—7 um Arn-
grím lærða og fyrstu kynni úllend-
inga af isl. fræðum.
ísland fer héöan kl. 12 í nótt á~
leiðis til útlanda,
Kurlukór K. F. U. M. endurtekur
samsöng sinn í Nýja Bíó á morg-
un kl. 3.
Kjúpur hafa veiöst miklu minna
í haust en í fyrra. Er þvi helst kent
um, að henni hafi fækkað mikið í
fyrra, vegna hinsgengdarlausa dráps.
Sbip sokkið. Botnvörpungurinn
íslendingur, sem var í vetrarlagi inn
á Eiðsvík, sökk á fimtudagsnóttina.
Er talið vist, að leki hafi komist að
honum í ofviðrinu. Eigandi skips-
ins er Sigm. Jóhannesson heildsali
Fasteignaeigendafél. heldur fund i
Bárunni kl. 8 í kvöld. Verður þar
rætt um bæjarstjórnarkosningarnar.
Peningar;
Sterl. pd................ 22,15
Danskar kr............. 114,06
Norskar kr.............. 93,19
Sænskar kr............. 122,38
Dollar kr................ 4,58
Gullmörk............... 108,87
Fr. frankar.............. 17.39
Hollenzk gyllini...... 184,03