Dagblað

Eksemplar

Dagblað - 20.12.1925, Side 1

Dagblað - 20.12.1925, Side 1
Sunnudag Jp I. árgangur *° æ* waghlao SKAMT er nú að bíða jóla og má sjá þess vott víða. Jóla- svipurinn færist yfir bæinn með hverjum deginum sem líð- ur og jólaannirnar eru fyrir nokkru byrjaðar. Alt fær annan svip og hátíðlegri, því hvarvetna er reynt að tjalda því bezta sem til er. Sérstaklega er það hér í Reykjavík að mikið ber á und- drbúningi jólanna og verður hann meiri með hverju árinu. Er nú t. d. ólíkt því sem var fyrir 10—20 árum þótt ekki sé farið lengra aftur i tímann, enda hefir bærinn mikið stækkað og bæj- arbragurinn breyst á þessum tíma þótt ekki sé lengri. En mörgum finst samt, þrátt fyrir þennan vaxandi undbúning og auknaerfiði að engu meiraverðiúr sjálfri jólahátíðinni en áður var. Alt hverfur í umróti og ysi síð- ustu daganna fyrir jólin, og svo eru þau liðin hjá áður en menn vita af eða eru búnir að jafna- sig eftir erfiði undirbúningsins. í*vi er það, að mörgum finst að jólin verði tilkomumeiri þar sem fámennara er og minna sem glepur. Mun t. d. flestum sem alist hafa upp í sveit vera minn- isstæðari jólin heima í héraði en í fjölbreytni borgarlífsins. Jólin eru eins og allir vita helzta hátíð ársins, og er því ekki nema eðlilegt að mjög sé til þeirra vandað, en samt verður að gæta þess að það verði ekki um of, svo að jólahátíðin hverfi í um- búðirnar. Að því stefnir nú ef sama heldur áfram, og lítur út fyrir að merm séu litlu ánægð- ari en áður var, þótt minna hafi verið í alt borið fyr rneir, og virðist þá ofmikið fyrir baft samanborið við árangur- inn. — Þetta þyrfti að breyt- ast í það horf að minna beri á undirbúningnum en því meira á jólnnum sjálfum, og mundi flest- um þykja það breyting til batn- aðar. Reykvísk Skemtanir. Andlegan þroska eiustaklinga og félagsheilda má all-skýrt marka af þvi, hvernig tóm- stundunum er varið, og hverjar skemtanir menn kjósa helzt þeirra, sem þeir eiga kost á að veita sér. Tómstundum sínum ver hver og einn sem næst sinni eigin löngun, og þær einar skemtanir verða vinsælar og mikið stundaðar, sem hæfa þroskastigi almennings. Full- orðið fólk leikur sér ógjarnan áð brúðum og barnahringlum, og börn leita sér ekki hugsvöl- unar í ritum Platons eða heims- skoðun Einsteins. Nautið nærist á grasi og einhver mesta nautn þess er sú, að leggjast niður og jórtra, þegar það hefir etið fylli sína. En ljónið lítur ekki við grasi, hversu hungrað sem það er. Kjöt verður það að hafa. Gras er því dýri engin fæða fremur en grjót. Ungbarnið nær- isl aðeins á mjólk en fullorðinn maður á fjölbreyttri fæðu bæði úr jurta- og dýraríki. Hvér ein lifandi vera verður að hafa þá fæðu, sem lífsstigi hennar hæfir. En þroskinn er þó all-misjafn eftir því hve kjarngóð fæðan er. Skemtanir eru að mestu and- leg fæða. þessvegna er all-auð- velt að meta andlegt þroskastig manna eftir þeim skemtunum, sem þeir velja sér. Hvernig inun nú reynast and- legur þroski Reylcvíkinga, ef met- inn er eftir þeim skemtunum, sem mest eru iðkaðar í þessum bæ. Hverjar eru þær? Lítum á! Einkaskeratanir: Áfengisnautn, kaffidrykkjur, »sigarettu«-reyk- ingar, »gratnmofóns-músik«, slúðursögur og daður. Opinber- ar skemtanir: Danz, kvikmynda- sýningar, hlutaveltúr og kaffi- húsalif. Hvernig líst yður á, Reykvíkingar? Glæsileg menning. menning*. er ekki svo? En bíðum nú við. Ekki er alt sagt með því, sem komið er. Hér eru einnig á boð- stólum öðru hvoru söngskemt- anir og hljómleikar, þar sem góðir söngmenn og hljóðfæra- Jeikarar flytja fram listir sínar. Hér eru fluttir fyrirlestrar og önnur opinber erindi um ýms menningarmál og hér er haldið uppi leiksýningum á vetrum þar sem bæjarbúum gefst kostnr á að njóta fullkomnari leiklistar, en búast mætti við eftir aðstæð- um. þarna er að finna kjarn- góða andlega næringu. — göfg- andi og þroskandi — þegar hún er sæmilega framreidd. Mætti því ætla, að íbúar höfuðborgar- innar, miðstöð íslenzkrar menn- ingar. — leituðu þar anda sín- um svölunar og næringar. En hver er reynslan? Hvernig eru þessar menningar-skemtanir sótt- ar? Herra trúr! Hálft hús eða vel það. Stundum alls ekki »messu(ært«. Reykvísk menning! Nokkur dæmi: Tveir snjallir listamenn Emil Thoroddsen og Páll ísólfsson, viðurkendir hljóðfæraleikarar, buðu bæjarbúum fyrir skömmu að hlýða á listir sínar. En svo fór, að listamennirnir neyddust til að fresta hljómleikunum vegna ónógrar aðsóknar. Tveim vikum síðar reyna þeir í annað sinn. Gekk þá nokkru betur, en mikið skorti þó á, að áheyr- endur fyltu húsið. Samkvæmt áskorun auglýstu listamennirnir, að þeir myndu endurtaka skemtunina. En nú fór svo, að þeir urðu algerlega að hsetla við þann ásetning. Reykvíking- ar vildu alls ekki heyra meira af góðum pianóleik að svo komnu. Sigurður Birkis, góður söng- maður, boðar til söngskemtun- ar degi síðar. f*að fór á sömu

x

Dagblað

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblað
https://timarit.is/publication/605

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.