Dagblað

Útgáva

Dagblað - 21.12.1925, Síða 1

Dagblað - 21.12.1925, Síða 1
MINNINGARGJAFIR hafa við- gengist lengst af hér á landi og hefir jafnan þótt nokkuð 3korta á einstök hátíðahöld eða vinafagnað, ef engar gjafir væru þar bornar fram. t fornöid var það almennur siður, að menn skiftust á gjöf- am til vináttuhalds, en einkum þótti það sjálfsagt við veizluhöld að menn væru leystir út með gjöfum. — Voru slíkar gjaOr oft verðmætar og miklu í þær eytt ef veizlur höfðu verið fjölmenn- ar eins og oft var og allir leyst- ir út með gjöfum. Þessi siður hefir aldrei lagst alveg niður þótt hann hafi færst í annað horf með nýjum siðum og breyttri háttsemi landsmannna. Enn er það aigengt að gefa minningargjafir við sérstök tæki- færi og eru þar jólagjafinar al- mennastar. Eru þær nú orðnar að einskonar þjóðarsið sem sjálfsagt þykir að fylgja til vin- áttuhalds og ánæjguauka. Myndi það nú þykja óburðug jól, yfirleitt, ef engar væru jóla- gjafirnar, enda eru þær nú orðnar svo almennar, að telja má þær einn lið hátíðahaldsins. Með hverju árinu sem líður, verða jólagjafirnar almennari og margbreyttari og meira fé til þeirra varið. Er það ekki að- eins efnaða fólkið sem þeirra verður aðnjótaodi, því svo er mannúðin orðin mikil á sum- um sviðum að sjálfsagt þykir að láta þá ekki fara í jólakött- inn sem hafa svo lítil fjárráð að þeir geta engu varið til jóla- glaðnings. Mikill fflunur er á því hvað fólk kaupir til jólagjafa og er sumt af því sem valið er til lít- *Uar ánægju og einkis gagns. Ætti fólk að kappkosta að Velja eingöngu smekklegar eða gagnlegar jólagjafir svo meiri not erði að þeim, en slundargaman. þar úr nógu að velja, sem l»æði getur verið til ánægju og komið að varanlegu gagni. kaupkona Vestargötu 12, lézt í fyrrinótt úr lungnabólgu eftir viku legu. Hún var lengi við Brauns- versluu hér í bæ og á ísafirði, hafði nú um nokkurt skeið rek- ið mjólkur- og brauðsölubúð á Vesturgötu 12, ásamt Louisu Ólafsdóttir frá Arnarbæli, og ný- skeð hafði hún einnig komið þar upp matvöruverslun. Guðrún var fædd 27. febr. 1885 og því tæplega 41 árs að aldri er hún lézt. Hún var greind konaog rajög vel gefin. Skipskaði. Botnrörpnngarinn isa strand- aði í nótt á Halarrifi nndlr Jökli. í nótt kl. 4 barst loftskeyta- stðinni skeyti frá Ásu, um að hún væri strönduð undir Svörtu- loftum á Snæfellsnesi. — Um 40 mín. eða til kl. 4,40 mín. hafði loftskeytastöðin samband við skipið en fremur slitrótt og ófullkomið. — Strax og sima- samband náðist við Sand voru fengnir þar menn til að fara á strandstaðinn og einnig brá Gull- foss við úr Stykkishólmi og var hann kominn þangað kl. 1. Um kl. 11 voru tveir botnvörpungar frá Helyers í Hafnarfirði komnir á vettvang, höfðu þeim borist loftskeyti um strandið og brugð- ið þegar við. Kom þá í ljós, að skipið hafði ekki strandað undir Svörtuloftum, heldur á Malar- rifi, en skipsmenn ekki vitað hvar þeir voru. Skipið var að mestu sokkuð, er botnvörpung- ana bar þar að, og voru skips- menn búnir að yfirgefa það. Er talið líklegt að mennirnir hafi komist til Dritvíkur í skips- bátunum, því veður var ekki mjög slæmt og aflandsvindur. Héldu botnvörpungarnir norður með Iandi er síðast fréttist og ætluðu til Dritvíkur. Síðustu fróttlr. t*5rzkur botnvörpungur bjarg- aði öllum mönnunum og er á leið með þá hingað til Rvíkur. ínnlend tíðíndi. Vestmannaeyjum FB., 19. des. '25. Skip strandar. Þýski togarinn Wien frá Nor- denham kom til Vestmannaeyja í morgun, til þess að tilkynna, að 3 sjómilum fyrir austa Hjörleifs- höfða væri enskur togari strand- aður. Skipsverjar mundu sumir vera komnir í land, en aðrir eftir í skipinu og allir mjög nauðlega staddir. Allmikið brim hafði verið og þess vegna hafði þýski tog- arinn ekki getað orðið þeim að liði. Stjórnarráðinu var sam- stundis send tilkynning um þetta og einnig breska konsúlnum hér i Eyjum. Bæjarfógetinn hér náði sambandi við sýslumann Skaft- fellinga og er ráðgert, að hjálp verði send frá Vík á strand- staðinn. Nánari fregn af strandinu. Vík í Mýrdal 19. des. FB. Miðvikudaginn strandaði ensk- ur togari, Walbrough frá Hull, á Mýrdalssandi. Skipsverjar, ÍS alls, komust á land heilu og höldnu og gerðu sér skýli og höfðust við þar í 2 sólahringa. Fundust seint i gær. Skipið kom beint frá Englandi og strandaði um það bii sem hríðarbylur skall á. Skipstjórin og stýrim&ðnr eru komnir til

x

Dagblað

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblað
https://timarit.is/publication/605

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.