Dagblað - 22.12.1925, Blaðsíða 2
2
DAGBLAÐ
Matarverslun
Tómasar Jónssonar
biður viðskiftavini sína að senda
Jólapantanir sínar strax.
Utan úr heimi.
þeir ógrynni fjár til útlána og
ennfremur selja þeir mikið af
hráefnum til Frakklands.
Khöfn 19,—21. des. 1925.
Grikkir og Alþjóðabandalagið.
Símað er frá Aþenuborg, að
stjórnin haíi tilkynt Alþjóða-
bandalaginu skriflega, að hún
aðhyllist skilyrðislaust úrskurð
þess í landamæramálinu.
Tjárhagnr Frakka hatnar.
Símað er frá París, að fjár-
hagsútlitið haíi skyndilega batn-
að. Stóriðjuhöldar buðust til
þess í gær, að lána rikinu 10
miljarða, er notist til þess að
borga innanlands skuldir, eða
nokkurn hluta þeirra, en sum-
part til þess, að standast kostn-
að af styrjöldunum í Marokkó
og Sýrlandi. Skilyrðið aðeins
lítilfjörleg skatta-ívilnun.
Tyrkir óánægðir yflr úrslitum
Hosnlmálsins.
Simað er frá Vínarborg, að
blöðin í Tyrklandi séu afskap-
Jega reið yfir úrslitunum í Mos-
ulmálinu og reyni á allan hátt
að æsa fólkið til styrjaldar.
Ný al'vopnunarráðstefna.
Símað er frá Genf, að Alþj.-
bandalagið hafi opinberlega boð-
ið Bandaríkjunum, Þýzkalandi
og Rússlandi á afvopnunarróð-
stefnu þ. 15. febr. n. k.
Frankinn hækkar.
Vegna tilboðs stóriðnaðarins
steig frankinn talsvert i gær,
bæði i Frakklandi og útlönd-
um. Er álitið, að stjórnin taki
með þakklæti á móti tilboðinu,
nema ef vera kynni að social-
istar sporni við því, að það verði
tekið. Verði tilboðinu hafnað er
álitið, að afleiðiugarnar verði
algert hrun.
Bandaríkjamenn eru fúsir til
þess að veita lánið, enda hafa
Örðngleikar Pjóðverja.
Símað er frá Berlín, að allar
tilraunir til þess, að mynda
ráðuneyti hafi mistekist. Afskap-
legt atvinnuleysi, óteljandi gjald-
þrot. Búist við blóðugum óeirð-
um. Ekki ósennilegt, að stjórnin
verði að Ij\sa lanðið í umsáturs-
ástand.
Mosul-málið.
Símað er frá Angora, að þing-
ið hafi verið kallað saman til
þess að mótmæla úrskurðinum
í Mosul-málinu.
Neyðaróp frá föngum í Síheríu.
Blaðið Socialdemokraten í
Kaupmannahöfn birtir bréf frá
Socialdemokrötum, er voru hand-
samaðir og settir í dýblissu í
Tobelsk í Síberíu. Tókst að
smygla bréfum úr dýblissunni.
Stendur í því, að fangarnir kvelj-
ist til dauða úr sulti, af óhrein-
indum og djöfullegri meðíerð
yfirleitt. Engin læknishjálp er
fáanleg handa þeim og er þeim
kastað saman í klefana og deyja
þar í hrönnum. I bréfum ákalla
þeir flokksbræður sína um hjálp.
Fjármál Frakka.
Símað er frá París, að mörg-
um þyki varhugavert, að stór-
iðnaðurinn gangi í ábyrgð fyrir
láninu handa ríkinu, þar eð það
liti þá svo út sem ríkið sé al-
gerlega vanmáttugt að bjarga
sér sjálft. Hefir komið fram
uppástunga um, að efna til sam-
skota um alt land handa ríkissj.
Fascistar nota völdiu.
Símað [er frá Rómaborg, að
samband stóriðnaðarins sé al-
gerlega undir yfirráðum fascista.
ÍDagðlað.
Bæjuriuálablað. Fréttablað.
Ritstjóri: G. Kr. Guðmundsson,
Lækjartorg 2. Símar 744 og 445.
ViÖtalstími kl. 5—7 síöd.
Afgreiðsla: Lækjartorg2. Sími 744.
Opin alla virka daga kl. 9—7.
Blaðverð 10 au. eint. Askriftar-
gjald kr. 1,50 á mánuði.
Prentsmiðjan Gutenberg, h.f.
Borgin.
Nætnrlæknir Ólafur Jónsson, Von-
arstræti 12, sími 959.
Nætnrvörðnr i Laugavegs Apóteki.
Tíðarí'ar. Norðanátt um land alt
og töluvert frost. Hvassast í Vest-
mannaeyjum. Veðarskeyti komu
ekki nærri alstaðar vegna simslit-
anna. Loftvægislægð fyrir austan
land. Búist er við allhvassri norðan-
átt með snjókomu á Norðurlandi.
Hriðaveður var á ísafirði í morgun
og eins á Akureyri.
Þorláksmessa er á morgun. Munu?
þá flestar búðir verða opnartil mið-
nættis, en á aðfangadaginn verðs>
búðirnar aðeins opnar til kl. 4.
Nic. Bjarnason kaupm. og franr-
kvæmdarstjóri Björgvinjar félagsins
er 65 ára í dag.
Er hann Reykvíkingum og mörgum<
öðrum að góðu kunnur. Hefir hann>
nú haft skipaafgreiðslu að aðalstarfi?
í full 17 ár er hann hefir rekið með»
miklum dugnaðí og frábærri reglu-
semi.
Gott færi er nú austur yfir fjall
og fara bifreiðar daglega austur um
allar sveitir. Er slikt óvanalegt á
pessum tima árs.
Til Pingvalla fór einnig bifreið í
gær og er þangað ágæt færð og
snjólaust á heiðinni.
Nóva ætlaði [að fara af ísafiröi i
morgun áleiðis hingað, en óvist er
hvort hún hefir fariö af stað vegna
hriðarveðursins sem er þar vestra.
Frú Karolína Hendreksdóttir (Siem-
sen) kona Ottós N. Porlákssonar
verður 50 ára á morgun.
Lelðréttingar. í greininni »Prír
merkir jNorðmenu látnir«, voru
nokkra r” prentvillur:
Um próf. Nordhagen: Hann skar-
aði snemma'jTam úr o. s. frv.
L.[.Söraas: Par á að standa: (»/or-
meh = aðferðin).
Einnig hefir nafn Jóhannesar
Ilaarklau verið mislesiö allstaðar í
handritinu.