Dagblað

Tölublað

Dagblað - 11.01.1926, Blaðsíða 1

Dagblað - 11.01.1926, Blaðsíða 1
Mánudag I. árgangur, 11. fanúar T/J /í A //f/fl 288. 1926. WWWB VrwV tölublað. Rosningabardaginn í Kjósar- og Gullbringusýslu mun hafa verið einhver sá drengilegasti, sem um langt skeið hefir farið fram hér á landi. Er slikt gott til fyrirmyndar, því ó- sjaldan hefir skort á drengilega framkonmu frambjóðendanna, gagnvart hvorum öðrum og hef- ir þá oft ekki verið gætt al- menns velsæmis sem skyldi. Persónulegar skammir og brigzlyrði er altaf til vansæmd- ar þeim, sem slíkt bera fram, en eins og alkunnugt er, hefir það verið helzta sérkennið á þjóðmálaumræðum vorum sið- ustu árin og einna svartasti bletturinn i opinberri háttsemi manna, þótt viða sé þar dökk- leitt umhorfs. Sá hefir jafnvel þótt mestur maðurinn, sem mest- um svívirðingum hefir ausið á andstæðinga sina, og sama álýg- in hefir verið endurtekin aftur og aftur, þangað til fjöldinn hef- ir farið að trúa henni. Aðstaða almennings hefir lika verið erfið um að greina sann- leik frá lýgi í öllu þvi moldryki af svivirðingum og ósönnum á- burði, sem hér hefir verið þyrl- að upp um menn og málefni. Blöðin hafa þar flest gengið á undan og þreytt einskonar kapphlaup um ósómann og svo hafa fylgjendur þeirra fetað dyggilega i fótsporin. Þessi að- ferð til upphefðar er mjög óheil- hrigð og lýsir bæði óvönduðum hugsunarhætti og spiltu þjóðlífi. Á engu er meiri nauðsyn en að viðhorf þessarar staðreyndar breyttist til batnaðar og þá fyrst og fremst að meira drenglyndis gætti í framburði deilumálanna. Myndi það öðru fremur verða til þess að valda skýjarofum á stjórnmálahimninum og slá birtu á þjóðlif vort, en slíks er nú þörf. — Kappsókn þeirra Haraldar Guðmundssonar og Ólafs Thórs um kjörfylgið i Kjósar- og Gull- bringusýslu hefir sýnt að berj- ast má með þeittum vopnum i meiri von um góðan árangur en ef notuð væri riðkutar persónu- legra skamma og svivirðinga. Báðir eru mennirnir gáfaðir og ágætlega máli farnir og að mörgu leyti meiri glæsimenni en almenningur á að venjast. Þeir hafa leitt saman hesta sína af kappi og einurð en jafn- framt gætt alls velsæmis í vopna- viðskiftunum. Þjóðmálin hafa þeir rökrætt, en að mestu haldið umræðun- um utan við einkamál hvors þeirra. — Báðir hafa lagt sig alla fram til að afla sér og málstað sínum fylgis, en jafn- framt gætt alls drengskapar í viðskiftunum, Er það almannarómur, að báð- ir hafi vaxið af framkomu sinui í augum alls þorra manna og er það gott þegar ungir menn og mörgum óþektir skapa sér þannig fyrstu kynni. Mælti það mörgum verða til fyrirmyndar. —m.—n. Nýí Sáttmáli. Grænlandsmállð. Ég drap á það lauslega í fyrri kafla greinar þessarar, að háttvirtur höfundur »Nýja S4ttmála« sveigi lítillega að Grænlandsmálinu í bók sinni (á bls. 18 og 149). Þareð ég er einn þeirra einkennilega fáu íslendinga, er lagt hafa orð í belg um það mál síðustu árin (i »Vísi« og »Dagblaðinu«), gríp ég tilefnið til að gera nokkrar athugasemdir við um- mæli þessi. Á 149. bls. í »Nýja Sáttmála« segir á þessa leið: — »Að lok- um myndi ekki vanþörf á að ráða landsmönnum til að hafa auga með þeim mönnum, sem eru að reyna að fá þá út í grænlenzkt æfintýri i bandalagi við Norðmeuu.« — Mér getur eigi skilist, að þörf sé að hafa gát á þessum mönnum (mér eða öðrum), frekar en hverjum öðrum, er ræða einhver mál opinberlega, svo framarlega sem þjóðin sjálf ihugar málið og rökræðir það á skynsamlegan hátt. En hætta myndi stafa af því, væri Grænlandsmálið ekki rœtt held- ur pukrað með það að tjalda- baki t. d. í þingnefndum, þannig, að enginn vissi hvert stefndi, fyr en öllu vœri lokið! Þarf eigi að seilast langt um óþekt dæmi, þar sem um alvarlegt utan- rikismál var að ræða. Af opin- berum umræðum á hvorki né þarf að stafa nein hætta. Séu einhverjir framsæknir um of, eða stefni út á hálar brautir, er innan handar fyrir þá, sem reyndari eru og gætnari, að gripa i taumana i tima. Par standa allir jafnt að vigi! Og sú viöureign á því að vera fylli- lega drengileg, hvernig sem menn annars lita á málin sjálf. — En mér virðist, því miður, vera aðdróttunarkeimur nokkur i áður tilfærðum orðum háttv. höfundar »Nýja Sáttmála«. Mér þykir í rauninni aðeins vænt um að fá tækifæri til að skýra sem ítarlegast frá þvi, hvað fyrir mér vakir um Grœn- landsmálið, svo þar sé engum vafa til að dreifa, né ástæður til getsaka í minn garð. Annars hefi ég venjulega gefið i skyn i blaðagreinum minum um þetta mál, hvers vegna ég hreyfði þvi í hvert sinn. — Er ég fyrir lið- ugum þremur árum síðan ritaði nokkrar greinar í dagbl. Vísi, meðan deilan um Grænland stóð sem hæst milli Norðmanna og Dana, var tilgangur minn aðal- lega sá, að vekja athygli manna hér á landi á máli þessu, flytja sem itarlegastar fréttir af gangi þess og skýra rétt frá málum. Fréttir þær, sem blöðunum bár- ust, voru bæði mjög ófullnægj- andi og oft og tíðum ranghermt

x

Dagblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblað
https://timarit.is/publication/605

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.