Dagblað

Eksemplar

Dagblað - 12.01.1926, Side 1

Dagblað - 12.01.1926, Side 1
Priðjudag 12. janúar 1926. I. árgangur. 289. tölublað. IÞagBlaé SYNDIR ANNARA eru tíðasta hugðarefnið góðgjarnra ná- unga vorra hér í fásinninu á norðurhjara veraldar. Það er svo ofurauðvelt að taka til þess sem hendi er næst, ef segja skal fréttir. Og það þykir meiri tið- indum sæta ef kálfur er borinn á Búrfelli, en þótt ríkiserfingi hefði fæðst í Hollandi. Sé stol- ið úr opinni* hirzlu í illa læstu húsi í Reykjavík, þykir það meiri býsn, en þólt upp komist ódæma seðlafölsun í Ungverja- landi. Falli grunur á Magnús makráða um ólöglega vinsölu, er méir af þvi látið en þótt eyland hafi sokkið í sjó. Brjóti einhver i bág við alment velsæmi, er því á lofti haldið, svo sem væri það stórglæpur, og hinn agnarminsti fluguflótur, sem einhver þykist hafa séð að morgni, er orðinn að griðarstórri maðkaflugu að kvöldi. Þessar undrafréttir eru oftast sagðar »undir fjögur augu« og »í trúnaði«, en eru þó furðu fljótar að berast. Þær tegundir »annara synda« eða ávirðinga, sem bera með sér pólitískan blæ, eru sömu lög- um háðar hér, eru þær auð- virðilegustu og gómsætastar. En þessar syndir fara ekki króka- leiðir munnmælanna. Á þeim er enginn venjulegur kviksögublær. Þær eru skráðar í blöðum stjórn- málaflokkanna, og auðvitað í allra óeigingjarnasta tilgangi notaðar í þarfir fósturjarðai innar. Pólitískar syndir, drýgðar og ódrýgðar, eru skráðar með feitu letri og fylla margar siður í blöðum stjórninálaflokkanna. Syndaselirnir eru hengdir upp á gálga vandlætarans og negld- ir þar í allra augsýn við hlið þeirra, sem taumlausar ástríður °g lægstu hvatir hafa leitt til stórglæpa. Lengra verður elcki til jafnað. — Taka veiður þó frara tii skýi ingar, uð þetta eru S(Jeins syndaselir andstæðing- aQoa, i þessu blaðinu í dsg og itiuu á morgun. — Oghér skift- ir ekki nema í tvö horn: Ann- aðhvort eru þessir syndugu menn hvítir eða svartir. En þannig, að þeir sem eru svartir í einum herbúðunum eru hvítir í hinum og öfugt. Ófagurt er orðavalið um pólitisku andstæð- ingana, og öllum hugsanlegum vopnum beitttilþess að meiðaþá og mannskemma í hverri blaða- greininni á fætur annari, og jafn- vel mörgum i sama blaðinu. En alt er þetta gert af ein- skærri föðurlandsást og með það fyrir augum. að vinna fóstur- jörðunni alt það gagn, sem verða má. Eða haldið þið kannske að þetta sé sprottið af blindu flokks- fylgi eða af eigingjörnum hvöt- um? Eða getið þið svo sem hugsað ykkur, að burgeisahjal- ið, bolsastaglið, samábyrgðar- japlið og Krossaneshneykslið, sé með öðrum huga iðkað en hrein- um og heilum, i þarfir ættjarð- arinnar? — Nei, sussu nei? Én þreyttir getum við orðið á þessum »stóru stefnumálum«. Og í árslok 1925 kvöddum við þessa kunningja okkar og báð- um öllum óvinum blessunar, eins og sannkristnum mönnum sæmir. — Pegar birta tók af degi hins nýja árs og búast mátti við, að þessi gömlu ást- fóstur ræki aftur upp kollinn, veður fram á vígvöllinn gamall herforingi úr liði hinnar gömlu hersveitar Magnúsar landshöfð- ingja, brýnir röddina — kveður sér hljóðs og hrópar hástöfum: Ég er rödd hins nýja sáttmála. Gerið beinan veg réttlætisins, svo sem Jóns Sigurðsson, Arnljótur Ólafsson, Benedikt Sveinsson, Grímur Thomsen og Pórhallur Bjarnarson hafa sagt. Norðlendingnmót ver öur haldið hér í bænum á fimludagskvöldiö. Til- gangur mótsins erað styr|ija heilsu- hælið norðanlands, og er þess vænst að Norðlendingar ijölmenni. Nýí Sáttmáli. II. Frh. Grænlandsmálið. í síðasta tbl. gerði ég grein fyrir þeirri skoðun minni, að það standi alls eigi á sama íyrir oss íslendinga, hvernig Grænlandsmálið verði til lykta leitt. Og eins hitt, að þeir sem fyrst fá ítök og atvinnuréttindi þar vestra, muni eðlilega sitja við þann eldinn sem bezt brennur. Mun ég nú leitast við að færa nokkur rök að þessu tvennu. Nú er Grænland þegar opið í hálfa gátt — Austur-Grænland. Auk samninga þeirra, er Danir og Norðmenn hafa gert með sér, gerði Danmörk á siðastl. sumri samninga við tvö stór- veldi um »beztu kjör« á Austur- Grænlandi, bæði á sjó og landi. Stórveldi þessi eru England og Frakkland. Og munu fleiri koma á eftir, því að nú opnast óðum augu alheims fyrir mikilvægi Grænlands og margvíslegri hag- nýtingu. — Setjum nú svo, að nokkur stórveldi tæki að kapp- hlaupa um Grænland, og ekk- ert er líklegra en að svo verði innan skamms. Er alkunnugt, að bæði Bretar og Ameríku- menn hafa góðan augastað á Grænlandi. Og færi önnurhver þjóðin að færa sig upp á skaft- ið, mun hin eigi sitja hlutlaus hjá og horfa á. — Er ekkert líklegra heldur en það, að t. d. Bretar, og ef til vill Frakkar, fari nú — að Ioknum samning- um — að leita hófanna með ítök þar nyrðra, og þá fyrst og fremst á friðsamlegan hátt: setji upp verstöðvar með stórum botnvörpungaflota og ýmsum ítökum á landi. Er þá hætt við að þiöngt kunni að verða fyrir dyrum, jafnvel á vorum fiski- miðum, er veiðar bregðast þar vestra. Parf ég eigi að fjölyrða um það atriði. Er það öllum

x

Dagblað

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblað
https://timarit.is/publication/605

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.