Dagblað - 19.01.1926, Síða 1
Þriðjudag
19. januar
1926.
I. árgangur.
295.
tölublað.
WagBlaÓ
JÚKRAHÚSUM hefir fjölgað
hér á landi hin síðustu miss-
erin fyrir forgöngu góðra
manna og félaga á ýmsum stöð-
um. Mönnum er nú orðið full-
ljóst, að ekki getur það talist
einhlýtt að eiga góða lækna-
stétt, ef hún hefir, ekki þau tæki
sem nauðsynlegust eru til vernd-
ar lífi manna, er verða veikir,
og sem verða að fá alla þá
hjúkrun sem unt er að veita.
Hér í höfuðstað landsins er
því svo farið, að sæta verður
tækifæri til þess að fá sjúkra-
húsvist, og bíða sjúklingar tíð-
um eftir því vikum og mánuð-
um saman, og má geta nærri
hverjar afleiðingar slíkt getur
haft. — Yíða út um land er þó
ástandið enn verra, og hafa því
margir fæknar heimtað sjúkra-
skýli í héraði sínu, og sumir
gert það að beinu skilyrði fyrir
setu sinni, að úr þessari nauð-
syn yrði bætt.
Eitt af þeim málum sem hrinda
átti i framkvæmd austanfjalls
var að sjúkrahús skyldi reist á
Eyrarbakka. Þar var og þörfin
mikil. Þetta var á þeim árum
þegar meir var af peningum í
umferð en nú, og alt virtis vera
í mesta uppgangi. — Fé var
safnað og smíðin hófst og hús-
ið reis frá grunni. En aldrei var
verkinu lokið. Fokhelt var það
orðið og rúður allar heilar, en
nú hefir það staðið árum sam-
an, autt og hálfgert sem minn-
ismerki hins mesta ódugnaðar
og framtaksleysis, og hafa ó-
valdir unglingar haft það að
skotspæni, svo nú er engin
rúða heil í því. — Nú þegar
upp kom taugaveiki á Eyrar-
bakka, hefði húsið komið i góð-
ar þarfir og oft mætti spara
ferðir með sjúklinga suður yfir
fjall í misjöfnu veðri ef húsið
væri uppkomið. Ér ekki annað
sjáanlegt, en að landsstjórnin
verði að taka húsið að sér og
láta ljúka smfðinni í sumar og
útbúa það svo, að þar verði
hægt að veita sjúklingum við-
töku með haustinu. — Þetta er
bæði nauðsynja- og metnaðar-
mál, og heilbrigðisstjórnin hlýt-
ur að sjá, að ekki má svo bú-
ið standa.
Utan úr heimi.
Khöfn 16. jan. 1926.
Kuldar í Póllandi.
Símað er frá Varsjá, að ákaf-
legur kuldi sé um alt Pólland.
Úlfar gerast nærgöngulir og ráð-
ast á fólk. Æða þeir jafnvei inn
í borgir.
Bandaríkin og Þjóðbandalagið.
Sfmað er frá Washington, að
senator Borah, sem er formað-
ur utanríkismálanefndar Senats-
ins, hafi lýst því yfir opinber-
lega að hann sé andstæður til-
gangi Coolidge forseta, að Banda-
rikin taki þátt i hinum fasta
dómstól Þjóðabandalagsins.
Útflntningnr Bandarlkjanna.
Símað er frá Washington, að
útflutningur Bandaríkjanna hafi
verið meiri 1925 en nokkru sinni
áður. Var hann 684 milj. doll.
meira virði en innflutningurinn.
Frá Námnslysinn í Bandaríkj-
nnnm.
Símað er frá New York City,
að átta menn hafi bjargast úr
námunni (sbr. skeyti 15. jan.).
Hundrað dánir.
Sextugsafmælí Soderbloms
bisknps.
Sfmað er frá Stockhólmi, að
á 60 ára afmælisdegi sfnum í
gær, hafi Söderblom erkibisk-
up f Uppsölum fengið 70 þús.
kr. gjöf, og 900 heillaóskaskeyti.
Vesúvfns hættnr að gjósa.
Sfmað er frá Neapel, að Ve-
úvfus sé hættur að gjósa.
Bússar og friðarmálin.
Sfmað er frá Moskwa, að
stjórnin hafi ákveðið að taka
þátt í undirbúningsfundi undir
afvopnunarmálin i næsta mánuði.
K.höfn. FB., 17. jan. '26.
Barnamorð.
Sfmað er frá Slagelse, að kona
ein hafi meðgengið fyrir rétti
þar í bæ, að hafa sfðustu árin
myrt 5 böm sín, sem hún hafði
átt með ýmsum. Börnin myrti
hún á hryllilegan hátt, stundum
með hnífstungu eða hún kyrkti
þau. Konan er ekki álitin vit-
skert. Hún var dæmd í 12 ára
fangelsi.
Vetrarharka á Norður-ltalín.
Símað er frá Rómaborg, að
vetrarharka og snjóþyngsli séu
afar mikil um alla Norður-ltal-
íu. Frostið er sumstaðar um 20
gráður og hefir víða haft alvar-
legar afieiðingar.
Ný stofoun.
Símað er frá París, að kom-
ið hafi verið á fót stofnun að
undirlagi Þjóðabandalagsins til
stuðnings andlegri samvinnu.
Var hún vígð í gær með mikl-
um hátiðleik. Tilgangurinn er
að styrkja sambönd og sam-
vinnu milli visindamanna og
listamanna um allan heim.
Khöfn FB., 18. jan. '26.
Smyglskip við Ameríku.
Sfmað er frá Washington, að
siðara misseri ársins 1925 hafi
25 smyglskip verið handsömuð
á opnu hafi. Sum geysi stór.
Atvinnuleysi í Berlín.
Sfmað er frá Berlin, að 20.
blver maður i borginni sé at-
vinnulaus.
Frost á Spáni.
Það er talið, að um 40°/o af
allri appelsfnuuppskerunni á
Spáni hafi eyðilagst af frosti í
hausl.