Dagblað

Útgáva

Dagblað - 21.01.1926, Síða 1

Dagblað - 21.01.1926, Síða 1
Fimtudag 21. janúar 1926. I. árgangur. 297. iölublað. rjÆJARSTJÓRNARKOSNING r\ á að fara fram hér í Reykja- vík á laugardaginn eins og kunnugt er. Um tvo lista er að velja, en 5 menn geta náð kosn- ingu í stað jafnmargra sem fara frá. Af þessum 10 mönnum sem eru á báðum listunum hafa að- eins 2 verið áður í bæjarstjórn, síðasta kjörtímabil. Eru það efstu mennirnir á hvorum lista og eiga þeir auðvitað báðir vísa kosningu. Val á bæjarfulltrúum er ekki vandalaust verk, þar sem undir þvi er að mestu leyti komið hvern veg bæjarmálin skipast. Bæjarfulltrúarnir eru f raun og veru forráðamenn allra bæjar- búa og hefir ráðsmenska þeirra bein áhrif á hlutskifti megin- þorra almennings. Undir yfirráð bæjarstjórnarinnar verða allir að beygja sig og lúta þeim lögum sem meiri hluti hennar ákveður. Ósjaldan hefir ýms ráðsmenska bæjarstjórnarinnar mjög orkað tvímælis um gagnsemi til al- menningsheilla og jafnvel orðið mörgum bæjarbúum til verulegs óhagræðis. — Én ilt er að gera svo öllum lfki, og því síður sem verkefni eru fleiri og víðtækari. Sízt af öllu má hlutdrægni eða eiginhagsmunastefna koma fvam f afstöðu bæjarfulltrúanna til þeirra mála sem fyrir liggja. Hagur heidarinnar á altaf að vera takmarkið sem að er kept. En ef bæjarfulltrúarnir nota að- stöðu sina til meiri hlutans, um að koma fram samþyktum til óhagkvæmis almenningi en hagsbóta sjálfum sér éða flokki sfnum, þá er vá fyrir dyrum og og sú frammistaða allra víta verð. — Þeir sem valdir eru forráðamenn bæjarins verða um- fram alt að gæta velfarnaðar almenning f öllum atrlðum. Smámunasemi sérréttinda og flokkfylgis má þar hvergi skjóta upp kollinum, og ætti þeir sem gera sig seka um slfkt, að hafa fyrirgert rétti sínum sem for- ráðamenn bæjarins. — Óneitan- lega er aðstaða bæjarstjórnar oft erfið, því fram úr mörgu vanda- sömu verður hún að ráða. En þess ætti að mega vænta að þar væri altaf svo mikið mannval samankomið að hverju máli yrði ráðið til lykta á hagkvæm- asta hátt. — En þelta hefir ósjaldan farið á annan veg, því oftast hefir almenningur gert sér hærri von- ir um ágæti þeirra manna, sem valdir hafa verið í hvert skiftið heldur en reynslan hefir orðið. Glæsivonirnar hafa fæstar ræzt, því framkoma margra bæjar- fulltrúanna hefir orðið á þá leið, að þeir hafa reynzt til lftils nýtir nema greiða atkvæði sam- kvæmt vilja flokks síns. — En altaf er búist við að betur takist til næst, og því eru gerðar tilraun- ir lil mannaskifta þegar tækifæri gefst. — t*ess er vænst, að hinir nýju menn taki fram fyrirrenn- urum sinum um það sem þeim hefir verið helzt áfátt, en oft fer það á annan veg. Er nú svo komið að meira ræður flokks- fylgi en hæfileikar manna og er þá ekki að búast við að beztu mennirnir einir verði fyrir valinu. Utan úr heimi. Khöfn, FB. 19. jan. ’26. Verkaskifting ráðstjórnarinnar. Simað ar frá Moskvva, að verkaskifti hafi orðið innan stjórnarinnar. — Brjuchanev er orðinn forstjóri fjármálaráðu- neytisins, Kamenov er orðinn »Kommisær« yfir versluninni, en Rykov formaður Verkaráðs og Landvarnaráðs. Peningafölsnuin nngverska. Símað er frá Budapest, að peningafölsunarmálið hafi veriö tekið til umræðu og meðferðar í þinginu Sprenging. Simað er frá Berlín, að kvikn- að hafi í benzfni, er geymt var í kjallara húss nokkurs. Húsið hentist hátt í loft upp og tvístr- aðist. Tíu manns biðu bana, en 80 særðust. Benedikt Syeinsson. Aldarafmæli þjóðskörungsins Benedikts Sveinssonar var í gær, svo sem Dagbl. mintist á. Skal hér lauslega getið helztu æfiatriða þessa merka forustu- manns íslenzku þjóðarinnar um langt skeið, og honum lýst að nokkru. — Benedikt var fæddur að Sandfelli i Öræfum fyrsta Porradag fyrir réttum hundrað árum, sonur Sveins Benedikts- sonar prests og Kristfnar Jóns- dóttur bónda að Skrauthólum á Kjalarnesi, Örnólfssonar. Var hann einn settur til menta af 8 systkinum. Meðal hinna voru Ragnheiður móðir Ólafíu sál. Jóhannsdóttur og Porbjörg ljós- móðir. — Benedikt var mikili athafnamaður þegar í æsku og vinsæll. Gekk í Latinuskólann um tvítugt og settist þá strax í annan bekk. Varð stúdent 1852 og tók embættispróf í lögum við Kaupnannahafnar-háskóla með ágætum vitnisburði. Varð 2. meðdómari og dómsmálaritari í landsyfirréttinum árið eftir 33 ára gamali, og hélt því embætti til 1870. Sýslumaður Þingeyinga varð hann 1874 og gegndi þvf embætti til 1897. — Hann and- aðist í Reykjavík 2. ágúst 1899. Snemma þótti Benedikt skara fram úr öðrum að gáfum og atorku. Fór þar saman kjarkur, óbilandi hugrekki og viljafésta, samfara skarplegum skilniugi á fjölbreyttustu viðfangsefnum og brennandi trú á sigur hins góða. Verklegan áhuga hafði hann þegar mikinn i æsku og náms-

x

Dagblað

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblað
https://timarit.is/publication/605

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.