Dagblað

Tölublað

Dagblað - 26.01.1926, Blaðsíða 1

Dagblað - 26.01.1926, Blaðsíða 1
Priðjudag 26 janúar 1926. Tveir vestur-íslending- AR hafa nýskeð »verið sæmd- ir« heiðursmerki Fálkaorð- unnar. Það eru þeir Thomas H. Johnson fyrv. ráðh. og Árni Egg- ertsson tasteignasali, báðir al- kunnir og merkir Vestur-ísl. — í*að er sannarlega ekki of snemt þótt fósturjörðin mintist loksins einhverra þeirra góðu drengja og merkra meðal ianda vorra vestan hafs, sem íslenzka þjóðin á að þar vestra, og hefir œílð átt, er á hefir þurft að halda! En í þessu atriði erum vér Austur-ísl. sorglega gleymnirl — Víst er um það, að eigi myndi þurfa lengi að leita um íslend- inga-bygðir vestan hafs til þess áð finna marga fleiri, er mak- legir væru þessa heiðurs, og langtum fremur mö.rgum af þeim fjölda lítt kunnra manna inn- lendra og erlendra, er þegar hafa sæmdir verið Fálka-orðunni. — Fyrir hvað? — Sagt er, að Iöndum vorum vestra þyki vænt um þessa við- urkenningu, enda kvað þetta vera í fyrsta sinn, að opinber viður- kenning fósturjarðarinnar falli þeim í skaut! — ErþaðVestur- ísl. til hróss, að þeir Iita þann- ig á raálið. I’arf eigi um það að ræða, að báðir eru menn þessir vel maklegir slíks sóma frá ættjörðu sinni! — En hilt mun þó vega meira í hugum Vestur-lsl., að þeir þykjast í þessu sjá hltjjan hug »gamla landsins« í sinn garð, og þaö snertir hjörtu þeirra! — Feir eru lítt vanir þessháttar héðan að heiman, a. m. k. ekki frá hálfu hins opinbera. íslenzk stjórnarvöld eru venju- lega furðu minnissljó á tilveru Vestur-ísl. Og eigi skyldi mig undra, þótt það komi upp úr kafinu, að þessi »fjörkippur« stjórnarinnar sé á einhvern hátt tilviljun ein í tilefni af för Ein- ars H. Kvaran þangað vestur fyrir skömmu. Eins og kunnugt erf á E, H. K. sterk ítök í kujjj og bjarla fjölda Vestur-ísl. Og það vildi svo vel til fyrir stjórn vora, að hann var þar vestra og gat komið þar fram sem fulltrúi þjóðar vorrar á minn- ingarhátíðinni um 50 ára land- nám íslendinga þar í landi. En var þetta ekki tilviljun ein. Heppni óbeppinna stjórnarvalda, sem gjarnt er áð gleyma? — Og ef svo er, þarf eigi að spyrja, hvaðan hugmyndin um sæmd- arvott þenna sé runnin. En hvað um það. Þessi sjált- sagða viðurkenning í garð Vest- ur- ísl. er jafn makleg fyrir þvi, hvernig semá henni stendur. Og öll ísl. þjóðin mun gleðjast yfir þessum litla votti vinsemdar og maklegrar viðurkenningar héð- an að heimanl — H. Nýtt mannvirki. Vinnubrögðunum við höfnina hefir lengi verið ábótavant í ýmsum greinum, en þó einkum að því leyti hve alt hefir gengið þar hægt og seinlega. Fjölda manna þarf þar til vinnu yfir lengri tíma, þar sem annarstað- ar er unnið með vélum á skömm- um tima. Sérstaklega er það við hleðslu og affermingu flutn- ingaskipa, að þessi vinnubrögð eru tilfinnanlega dýr og seintæk, og er þar einna mest þörf betri vinnubragða. Nú hefir félagið »KoI og Salta hafist handa um að koma þessu í betra horf, og má þar vænta breytingar sem um munar. Hefir félagið í hyggju að koma hér upp »ko!akrana«, og hefir farið fram á það við hafnarnefnd, að fá að setja hann upp á austurbakka hafnarinnar, og einDÍg að fá þar leigða lóð til kolageymslu, 90 metra á leDgd. Hafnarnefndin hefir fall- ist á að veita umbeðið leyfi með nánari skilyrðum sem hún setur. Er ætlast til að kraninn verði svo öflugur, að hann geti lyft 10 tonnum i einu, og þótt tvö skip liggi samsíða, þá nái hann út i það ytra. Ætlast er til að kraninn geti ekki á neinn hátt hindrað aðra vinnu á hafn- arbakkanum. Verður 10 metra bil milli hans og bakkarbrúnar- innar, og ætti það að vera nægi- legt til allrar algengrar vinnu. Auðvitað ætlar félagið fyrst og fremst að nota þetta tæki til eigin þarfa, en jafnframt verður það ákvæði sett i samn- ingana, að það sé skyldugt »til að láta kranann vinna fyrir aðra, þegar það notar hann ekki sjálfs, fyrir borgun er hafn- arnefnd samþykkir«. — Væntanlega verður þessu mannvirki komið upp áður en langt um líður, og er vonandi að þessi krani komi að meiri notum en sá sem settur var upp á Ingólfsgarðinum sællar minn- ingar. Utan úr heimi. Khöfn FB., 24. jan. ’26. Meroler kardínáli dáinn. Sfmað er frá Brussel, að Mer- cier kardínáli hafi dáið i gær eftir þunga legu. Banamein hans var krabbamein. Kouungshjónin voru viðstödd, er hann gaf upp öndina. Fánar voru dregnir í hálfa stöng um alt rikið. Gamlar sögnr frá ófriðar- árannm Simað er frá Berlin, að rann- sóknar-nefndin upplýsi, að að- mirálarnir hafi gegn vilja stjórn- arinnar ætlað að sigla út öllum flotanum og leggja til orustu við enska flotann, en hásetar og kyndarar gerðu mótspyrnu og slöktu undir kötlunum, og forð- uðu ' þar með landi sínu frá heimskulegu glapræði, því af- leiðingarnar hefði sennilega orð-

x

Dagblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblað
https://timarit.is/publication/605

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.