Dagblað - 26.01.1926, Qupperneq 2
2
DAGBLAÐ
■" 1 -..... ........ ............ .....
Verslnnarinannaíélag' ReyhJavíkur.
35 ára afmæli
félagsins veröur hátiðlegt haldið með
fjölbreyttri kvöldskemtun og dauzleik
miðvikudaginn 27. jan. kl. 9 siðdegis i Iðnó.
Aðgöngumiðar fyrir félagsmenn og gesti þeirra verð seldir i
dag á skrifstofu Jes Zimsen.
8TJÓRN og SHEMTINEFND.
ið hræðilegur ósigur og friðar-
skilmálar enn harðari.
Erjar Rtíssa og Kínverja.
Símað er frá Moskwa, að Kin-
verjar hafí handsamað einn af
rússnesku eftirlitsmönnunum á
Manchuríu-járnbrautum þeim,
sem áður var simað um. Rúss-
ar krefjast þess, að hann sé lát-
inn laus samstundis, og halda
þvi fram, að Kinverjar hafi rof-
ið samninga um notkun járn-
brautanna. Hóta þeir styrjöld, ef
Kínvarjar skerði samningsbund-
in réttindi.
Khöfn, FB. 25. jan. ’26.
Deilan milli Rússa og Hínverja
harðnar.
Simað er frá Berlín, að Kin-
verjar hafí tekið hóndum marga
rússneska yfirmenn ájárnbraut-
um þeim sem getið hefir verið
um í siðustu skeytum og hrifs-
að undir sig yfirráðin að miklu
leyti. Rússar hafa sent þeim
nltimatum.
í bitreiðam yfir Afríkn.
Símað er frá Kairo, að bif-
reiðaleiðangur undir forystu ma-
jors Treatt, frá Cape Town til
Kairo, sé lokið. Leiðangursmenn
voru heilt ár á leiðinni.
Söngskemtunin
í Fríklrkjunni i fyrrakvöld.
Það var húsfyllir í Fríkirkj-
unni í fyrrakvöld á söngskemt-
un þeirra bræðra Eggerts og Sig-
valda Kaldalóns. — Aðsóknin að
þessum »k\öldum« þeirra segir
söguna bezt. Almenningsálitið
lætur þá njóta fylsta sannmælis.
Og það er venjulega hæstiréttur.
Feim dómi verður eigi áfrýjað.
Samvinna þeirra bræðra á
þessum kvöldum er sálrœn
snilli. Þess vegna »hitta þeir
markið«, — hjörtu áheyrenda.
Þar skeikar þeim ekki. Og í
vorum augum, lítt söngfróðra
manna, með hljómnæm eyru, —
er það aðalatriðið.
Ég hefi alloft (erlendis og
heima) heyrt ágætar raddir með
háa söngmentun syngja sálar-
snautt og kalt. Yndisfagrar ís-
rósir á stórum glugga lítillar
sálar. — Og ég hefi heyrt radd-
ir, litlar bæði og miklar, þar
sem hver tónn hefir verið þrung-
inn af sál, ilmþrungið líf, ang-
andi eius og rauðar og svartar
rósirl — Að mínum dómi er
aðeins hið siðarnefuda list. Hitt
er leikni — leknik. Munurinn
eins og á pianola og pianó-
snillingi með sál í hverjum
fingri. Pianola er altaf »upp-
lögð«. Skeikar aldrei. En snill-
ingurinn er aldrei sá sami —
sál hans er hvern dag ný! —
Pess vegna met ég þá mest,
sam geta verið »misjafnlega upp-
lagðir«. — Svona er ég hlálegur.
Helgi Valtýsson.
Borgin.
Nœtnrlœbnlr. Gunnlaugur Einars-
son, Stýrimannastíg 7. Sfmi 1693.
Næturvörður i Rvíkur Apóteki.
Botnvörpungarnir. Skallagrímur og
Egill Skallagrímsson fóru út á veið-
ar i gær.
Ari kom af veiðum í gærkvöld og
fór í nótt áleiðis til Bretlands.
Botnvörpungnrlnn íglendingnr, sem
sökk á Eiðsvík í vetur, daginn eftir
ofviðrið, hefir nú verið skoðaður
af kafara frá Hamri, og gat hann
ekki fundið neina orsök þess að
skipið hafði sokkuð. Botnvörpung-
urinn er að sjá alheill, og á nú að
gera tilraun til að ná honum af
mararbotni. Hefir Sjóvátryggingar-
félag íslands auglýst eftir tilboöi
par að lútandi.
Annaho kom frá Vestmannaeyjum
á sunnudaginn og var lagt upp I
fjöru í fyrrinótt til aðgerðar. Hafði
komið leki að skipinu á leið hing-
að til lands.
^t>agBíaé.
Bæjarmálablað. Fréttablað.
Ritstjóri: G. Kr. Guðmundsson,
Lækjartorg 2. Simar 744 og 445.
Viðtalstimi kl. 5—7 síðd.
Blaöverö 10 au. eint. Askriftar-
gjald kr. 1,50 á mánuði.
Afgreiðsla: Lækjartorg2. Simi744.
Opin alla virka daga kl. 9—7.
Prentsmiðjan Gutenberg, h.f.
Lyra er væntanleg til Vestm.eyja
í dag og hingað á morgun. Hún fór
frá Bergen á laugardag.
Hið ísl. kvenfélng heldur afmælis-
fagnað i kvöld á Hótel Heklu.
Sálarrannsóknarfélagið heldur að-
alfund sinn í kvöld i Iðnó. Auk lög-
boðinna fundarstarfa ætlar Einar
H. Kvaran að skýra frá merkilegri
sálrænni reynslu manns eins hér í
bænum.
Esmeralda hin heimsfræga saga
Victor Hugo’s er nú sýnd á kvik*
mynd á Nýja Bíó. Er hún ein af
dýrustu kvikmyndum sem teknar
hafa verið og þurfti hálft annað ár
til aö fullgera liana, en um 4 pús.
manna unnu aö henni að meira
eða minna leyti. Allur kostnaður við
myndartökuna varð um 9 milj. kr.
Nýja >gpenni8töð« hefir Rafmagns-
veitan í hyggju að byggja við norð-
urenda Ingólfsstrætis eða Kalkofns-
vegar, en ekki hefir henni enn ver-
ið endaulega ákveðiun staður.
Peningar:
Sterl. pd............... 22,15
Danskar kr............. 112,67
Norskar kr.............. 92,84
Sænskar kr............ 122,13
Dollar kr............... 4,56’/«
Gullmörk .............. 108,61
Fr. frankar ............ 17.29
Hollenzk gyllini........183,48