Dagblað

Ataaseq assigiiaat ilaat

Dagblað - 27.01.1926, Qupperneq 1

Dagblað - 27.01.1926, Qupperneq 1
Miðuikudag 27. janúar 1926. I. árqanqur. 302. tölublað. WagBíaé ORÁÐVENDNI í viðskiftura manna á milli virðist fara svo í vöxt að til vandræða horfir. Og sumstaðar er ástand- ið svo alvarlegt, að heiður heilla þjóða er í veði, og þau atvik hafa komið fyrir, að nærri hefir riöið að fullu lánstrausti þjóð- anna út á við. Er þar styzt á að minnast seðlafölsunarmálið ungverska, sem er sú stórkosl- legasta peningafölsun sem sögur fara af, Er skörin óneitanlega farin að færast upp í bekkinn, þegar konungbornir menn og æðstu valdhafar landsins eru aðal-forspi akkarnir að slikum óhappaverkum, og jafnvel yfir- menn kirkjunnar eru við þau riðnir. En það víðar pottur brotinn en i Ungverjalandi og virðist svo sem óráðvendi í við- skiftum og ýmislegt glæpsam- legt atferli gangi nú yfir heira- inn sem einskonar faraldur. Er það líka svo að fleira virð- ist smitandi en venjulegar far- sóttir, og er t. d. öllum kunnugt hvernig hernaðaræðið getur grip- ið heilar þjóðir hverja af ann- annari og ýmsar öfgastefnur gagnsýrt alt þjóðiif stærstu landa. Sú glæpaalda sem nú gengur yfir heiminn er þeirrar tegund- ar að um verulega smitun virð- ist vera að ræða þótt ekki sé hægt að segja hvar hún eigi upptök sín. í Ameriku hefir ýmsum afbrotum fjölgað svo mikið siðuslu ár að öllum hugs- andi mönnum slendur ógn af. Morð, rán og ýms önnur of- beldisverk fara svo að segja dagvaxandi, þrátt fyrir alt sem gert er til að stemma stigu fyrir þessum ófarnaði. Við lofum oft þá sérstöðu vora að vera að mestu lausir við þau þjóðarböl sem mest þjaka sumum stórþjóðunum og vfst er um það, að Lmattstaða laudsius og einangrun hefir sína kosli þótt mörgum finnist eriið- leikatnir vegna aðslöðunnar vera Qiiklu meiri og að sömu leyti lítt bærilegur. En svo margþætt er nú samband vort við um- heiminn orðið, að við förum ekki nema að nokkru leyti á rois við þær ineginstefnur sem mest ber á i bugsun og athöfn- um heimsþjóðanna. Að meira eða minna leyti verðum við vanalega varir við forsmekk þess sem mest ber á í umheim- inum en bölstefnur rikjandi ald- arfars eru ekki síður langdiæg- ar en þær sem miða til batn- andi þjóðlifs. — Þessa höfum við á stundum mátt kenna og jafnvel nú á þann hátt að okk- ur getur orðið til mikils álits- hnekkis út á við. Eins og kunnugt er hefir gjald- eyrir Frakka verið í mjög lágu veröi núna undanfarið og hefir þvf mátt fá ýinsar vörur frá Frakklandi fyrir mun lægra verð en þær hafa kosiað hér í versl- unum. Þetta hafa margir notað sér og fengið sendar vörur frá Frakklandi milliliðalaustogþann ig notið góðs af lággengi frönsku myntarinnar. Mætti ætla að engurn væri það of gott og engin ástæða lil að amast við slikum viðskiftum. En þetta yirðist ætla að fara á annan veg. — Það, er svo sagt að fjöldi pantana hafi verið sendur héð- an til Paiísar, en nöfn og heim- ili sendanda búin til, svo send- ingarnar verða auðvitað endur- sendar héðan. Er líklegt að þeir, sem þetta aðhafast, ætli með þvi að vinna verslunarsléttinni þarft verk, þótt annað muni verða uppi á teningnum, og má telja víst að verslunarsléttin, sem heild, fordæmi þessa aðferð eins og vera ber og telji hana að öllu ieyti óverjandi. 1 síðasta Verði er vikið að þessu máli og farið hörðum oiöuni um þá, sem gera sig seka um þelia athæfi, og jatn- framl bent á þann álitshnekki, sem okkur er af því búinn. Er gott að sqm flestir víti þetta framferði, svo þeir sem að þvi standa sjái hvoru megin almenn- ingsálitið er. Þessi aðferð er mjög ósamboðin frjálsri sam- kepni, og svo óheiðarleg, að hún er allra víta verð. Eimskipafélagið og kaupdeilan. Blöðin hafa verið furðu hljóð- lát ura kaupdeilu þá, sem nú . stendur yfir milli stjórnar Eim- skipafélags íslands og háseta og kyndara á skipum þess. Nú hefir Gullfoss legið hér í 10 daga, skipverjar verið afskráðir og honum lagt út á ytri höfn, ferð skipsins til Vestfjarða fallið niður og bráðum komið að á- ætluðum burtfarardegi til út- landa. Emnig er ákveðið að hin skipin verði líka stððvuð jafn- skjótt og þau koma hingað, ef ekki næst samkomulag um kaup- gjaldið áður. Maður skyldi ætla að meira en lítið bæri á milli, þegar tek- ið er til þeirra neyðarúrræða að stöðva jafn dýr og nauðsyn- leg skip og þessi eru. En það er varla hægt að segja að svo sé, þar sem aðeins er um lítil- fjörlega kauplækkun að ræða, sem hlýtur að vera hverfandi lítill liður á reksturskostnaði fé- lagsins, hvort sem hann lækkar eða stendur í stað. — Því hafa margir réttilega haldið fram, að alt kaupgjald ætti að lækka samhliða lækkandi vöruverði, en það á ekki að ráðast á garð- inn þar sem hann er lægstur, og láta kauplækkunina bitna fyrst á þeirn, sem minst hafa borið úr býtum. Kaup íslenzkra farmanna hefir hingað til ekki verið svo hátt, að sú atvinna hafi verið eftirsóknarverð. Þess vegna er nú minni ástæða til kauplækkunar þar en víða ann- arstaöar. En kauplækkunin er

x

Dagblað

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblað
https://timarit.is/publication/605

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.