Búnaðarrit

Årgang

Búnaðarrit - 01.08.1915, Side 3

Búnaðarrit - 01.08.1915, Side 3
Um rafveitu á sveitabæjum. Eftir Quðmund Hlíðdal raf-verkfræðing. Til þess að rafveitu með vatnsafli verði komið á, þarf að vera lækur eða á með nægum halla rétt við bæinn eða sem næst honum. Oft má veita læknum eftir skurði út úr farvegi sínum og nota svo brekku eða halla í túninu. Því brattari og því hærri sem brekkan er, því betri er aðstaðan. Fyrirkomidag rafveitunnar er í stuttu máli vanalega sem hér segir (sjá 1. mynd): Stífla er gerð í lækinn ofan við halla þann, sem nota skal, og vatnið leitt í pípum niður fyrir hallann. Þar eru pípurnar skeyttar við túrbínu (nokkurs konar vatnahjól), sem snýst fyrir þrýsting vatnsins. Túrbínan snýr aítur rafmagnsvélinni, en hún framleiðir rafmagnið, og er því síðan veitt eftir lcopar- þráðum heim í bæinn og inn í herbergin, þar sem það á að notast til Ijósa, suðu, liitunar, mótora eða annara hluta. 1. mynd sýnir fyrirkomulag slíkrar vatnsafl- stöðvar. Á myndinni til vinst.ri sést ofan yflr hana alla, tjörnina, þróna, pípurnar og húsið með túrbínunni og rafmagnsvélinni, sem er knúð með leðurreim frá túrbínunni. Á myndinni til hægri er þverskurður gegn uni þetta alt; þ. e. a. s. við hugsum okkur að skorið væri þvert niður í gegn um húsendann og jörðina með fram pípunum upp í tjörn, og við sæjum svo í sárið. Ut úr tjörninni, þverbeint á straumstefnuna, gengur '11

x

Búnaðarrit

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Búnaðarrit
https://timarit.is/publication/595

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.