Búnaðarrit - 01.08.1915, Blaðsíða 22
BÚNAÐARRIT
180
kr. 7,50 fyrir hvern metra af 15 sm. viðum pípum
— 10,— — — — — 17,B — — —
— 11,50 — — — — 20 — — —
— 13,50 — — — — 22,b — — —
— 16,— — Stálpípur: 25 —
kr. 12,— fyrir hvern metra af 20 sm. víðum pípum
— 12,50 ----- — — — 22,5 — — —
— 13— — ■— — — 25 — — —
— 13,50 — — — — 27,5 — — —
- 14,- — — — 30 — — —
IV. Aflstöðin og leiðslurnar.
Aflstöðin er, eins og áður var á minst, ætíð sett við
neðri enda pípnanna, og er mikilsvert að hún sé svo
nærri bænum sem unt er, bæði til þess að rafmagns-
leiðslan frá stöðinni til bæjarins verði sem styzt, og að
sem fljótlegast og hægast sé að gæi.a vélanna, setja þær
í gang og stöðva, stilia snúningshraðann o. fl., sem oft
getur komið fyrir á degi hverjum. Húsið má vera mjög
lítið, en þarf að vera vel bygt og rakalaust, hvort sem
það er gert úr steinsteypu eða torfi, þiljað að innan, því
vélarnar þola ekki raka. Vélaundirstaðan þarf að vera
úr steinsteypu, en góifið má vera trégólf eða steypt, og
er þá bezt að rjóða lítilsháttar tjöru á það til þess að
ekki þyiiist ryk upp úr því. Stærð hússins fer nokkuð
eftir því, hvort heldur er reimdráttur millum túrbínunnar
og rafmagnsvélarinnar, eða ásendar beggja vélanna eru
i þess stað tengdir saman. Vanalega mun nægja að
flatarmál hússins sé 2X2,s metri og vegghæðin 3 metrar.
í húsinu eru tvær vélar, t.úrbínan og rafmagnsvélin,
og á einhvern vegginn er fest tafla með mælum, er sýna
straum og spennu rafmagnsins, sem rafmagnsvélin sendir
heim í bæinn. A töflu þessari skal og vera mælir, er