Búnaðarrit - 01.01.1917, Blaðsíða 74
68
BÚNAÐARRIT
aði því fóðrið sitt betur síðari árin. Mjólkin er virt á
9 aura kílógrammið, áður en feitirannsókn var gerð, og
er það fullhátt samanborið við smjörmagnið, eftir að
það varð þekt.
Vonandi vaknar félag petta aftur og heldur þá áfram
að bæta kúakyn Dalamanna, eins og það var byrjað á.
A. 24. Nautgriparœldarfélag Rauðasands er gam-
alt félag. Ekki verður sagt, að því hafl orðið mikið á-
gengt enn, og heflr þó kynbótanaut verið fengið langt
að (frá Meðalfelli i Kjós). 1913—14 var taðan hrakin,
en sumarið 1911 mjólkuðu kýr þar venju fremur vel.
1914—15 er meðalkú í félaginu gefið 526 kg. af votheyi.
A. 25. NaidgriparæJdarfélag Rvítsíðinga og
A. 26. Nautyriparœktarfélag Stafholtstungna eru
hvorttveggja ung félög. í þeim báðum eru fremur góð-
ar kýr, sem þó eiga fyrir höndum að batna, því enn
eru þær misjafnar mjög. 1913—14 er þar sem annar-
staðar á Suður- og Vesturlandi hrakin taða, og er því
kýrarðurinn minni en ella hefði verið.
A. 27. Naidgriparœktarfélag Önfirðinga á starf sitt
fram undan sér, og skulum víð vona, að það næst, þegar
skýrslurnar verða gerðar upp, geti litið til baka á gott
starf og mikinn árangur.
Gjafa- og geldstöðutíminn í vestfirzku félögunum er
sá sami og í þeim sunnlenzku (33—36 vikur og 6—7
vikur).
IV. Félögin á Austurlandi
eru engin. Því þarf hvorki rúm né tíma til að tala um
þau í þetta sinn. En vonandi fæðast þau, því meðan
þau voru, sýndi það sig, að kýrnar þar voru eins mis-
jafnar og í hinum fjórðungunum, og því er þeirra þörf
þar sem annarsstaðar.