Búnaðarrit - 01.01.1917, Blaðsíða 78
72
BÚNAÐARRIT
1912 —’13......................1959
1913— ’14 .................... 2456
1914— ’15 .................... 2555
Síðan nautgriparæktarfélögin fóru ab starfa, hafa lands-
meðalkýrnar reynst eins og eftirfarandi skýrsla sýnir:
r Tala r' fullmjólkandi kúa Mjólk kg. Feiti % Smjör kg. Töðueiningar
1904—’05 831 2210 1 1 3028
1905—’06 1374 2216 3,59 88,56 2744
1906—’07 976 2199 3,68 90,16 2727
1907—’08 1134 2247 3,56 89,25 2390
1908—’09 1233 2249 3,68 89,74 2452
1909—’'10 1350 2234 3,60 89,58 2468
1910—''11 1646 2270 3,55 89,75 2435
1911—12 2015 2306 3,62 93,02 2169
1912—13 1959 2302 3,63 93,12 2200
1913—14 2456 2087 3,65 84,93 2289
1914—16 2555 2342 3,71 96,88 2191
Þessar tölur sýna mikið betur árangur félagsskaparins
en langt lesmál, og það má vera blindur maður, sem
ekki sér hann.
Á þeim 11 árum, sem félögin hafa starfað, hafa kýrnar
batnað svo, að þær mjólka nú um 100 lítra meira, og
úr allri mjólkinni fást um 6 kg. smjör meira en áður
til jafnaðar. Og jafnframt þessu eru kýrnar orðnar þurftar-
minni, þær eta nú til jafnaðar um 500 kg. töðu minna
en þær gerðu fyrstu árin. Þetta er svo mikil framför,
að ársarður kýrinnar hefir aukist um nál. 25 krónur, og
munar það fyrir allar kýrnar í eftirlitsfélögunum 60—70
þúsundum króna á ári.
Þó ekki verði hér meira sagt um árangur félaganna,
má af þessu sjá, að hann er þó nokkur, en hann getur
orðið miklu meiri, og verður vikið að því um leið og
ættir beztu kúnna verða raktar.