Búnaðarrit - 01.01.1917, Blaðsíða 106
100
BÚNAÐARRIT
Fyrst framan af vetrinum vó eg ærnar vikulega, en
er á leið meðgöngutíma ánna og þær fóru að verða kvið-
miklar, lét eg liða lengra á milli vigtardaganna. Áleit
eg að það gerði ekki til hvað tilraunirnar snerti, en
hélt að ærnar gætu haft ilt af því hnjaski, sem af vigt-
inni leiddi.
Eg hafði fyrir reglu að reka ærnar til beitar, ef þær
náðu nokkursstaðar til jarðar og veður var gott, þó ekki
væri takandi í mál að draga af þeim fóður fyrir það.
Þessa daga alla kalla eg beitardaga. Þetta gerði eg til
þess að sjá, hvernig matfóðrið reyndist þegar beitt væri,
í samanburði við það þegar gefið er inni.
Það er mjög vanalegt, að beri á slekju í ám, sérstak-
lega á vissu tímabili meðgöngutímans. Verða sumar að
eins linar, daufar á svip, stamar í holdi og hafa ekki
góð þrif, aðrar fá hlessu og jafnvel sótt, kviðdragast og
leggja af.
Mér þófti fróðlegt að sjá, hvaða áhrif matfóðrið hefði
á heilsufar ánna, og þess vegna reyndi eg að ákvarða
veikindadagana, jafnvel þó það sé mjög mikið vandaverk.
Reikningur
yfir fóðrunarkostnað tilrauna-ánna á Leifsstöðum
veturinn 1914—1915.
I. flokkur 2770 ® hey á 3 aura Kr. 83,10
II. 1860 ® hey á 3 aura kr. 55,80
60 ® rúgmjöl á 11 aura — 6,60
167,63 ® rúgmjöl á 17,5 au. — 29,34 — 91,74
III. — 1860 ® hey á 3[ aura kr. 55,80
170,33 ® olíukökur á 12 au. — 20,44 — 76,24
IV. 1385 ® hey á 3 aura kr. 41,55
173,83 íí síldarmjöl á 7,5 au. — 13.04
45,94 ® lýsi á 66 aura — 3,03 — 57,62
V. - 2078 ® licy á 3 aura kr. 62,34
60,25 ® Iý8Í á 6,6 aura — 3,98 — 66,32