Búnaðarrit - 01.01.1917, Blaðsíða 110
104
BÚNAÐARRIT
gráðugt og unnu vel ab því, svo ekki hafði þýðingu að
láta fráganginn fyrir hesta; þær héldu húsinu sæmilega
þurru, og yfir höfuð sýndist meltingin vera í góðu lagi.
Aftur á móti voru ærnar í hinum flokkunum ekki
eins sællegar á svip, enda hafa þær mörgum sinnum
fleiri veikindadaga, og þykist eg þó ekki hafa gert of
mikið úr þeim, sízt hjá lýsis-ánum. Samt vil eg taka
fram, að ullin á lýsis-ánum fór vel, var þvöl og virtist
vera fitumikil; það sama átti sér stað með síldarmjöls-
ærnar. Bæði heygjafa- og lýsis-ærnar unnu ekki eins vel
að fóðrinu eins og hinir flokkarnir og átu það dræmara
og bleyttu húsið undir sér.
Af hverju þessi mismunur á útliti og heilsufari stafar,
vil eg ekki neitt fullyrða. Hvort það er tilviljun eða hvort
mikil heygjöf og lýsisgjöf hefir veiklandi áhrif á melting-
una, eða hvort olíuköku-, rúgmjöls- og síldarmjöls-gjöfin
hefir sérstaklega bætandi áhrif á meltinguna eða eitt-
hvað annað, sem því veldur, skal eg ekki segja, en frekari
tilraunir í þessa átt ættu að leiða það í ijós.
Til þess að gefa svolitla hugmynd um afurðir ánna í
hverjum flokki fyrir sig set eg hér
S k ý r s 1 u
um tölu og þyngd lambanna undan tilrauna-ánum nýborinna.
Tala ánna I. flokkur II. flokkur III. flokkur IV flokkur V. flokkur
Lömb tals Pyngd alls merknr Lömb tals Þyngd alls merkur Lömb tals _w ^ 3 o >1’c3 a! •Qh 3 Lömb tals Pyngd alls merkur jz •O 2 -4 Pyngd alls merkur
1 2 26 2 23 2 24 2 30 i 17
o 2 21 i 15 1 19 2 27 1 17
3 I ]9 2 27 2 21 1 18 1 15
4 2 22 2 21 1 17 l 15
5 2 31 i 18 1 18 1 17
0 ] 15 i 13 i 18 2 24 1 16
7 1 19 2 21 2 23 2 22
8 1 19 2 24 1 15 i 17 » »
Samtals .. 10 141 12 154 10 136 12 174 8 119
Meðaltal . ■■ 14,1 12,8 13,6 » 14,5 » 15,0